Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Þessi gönguhringur er umhverfis hina óbyggðu Vatnsendahlíð. Gengið er af stað við Guðmundarlund sunnan megin í hlíðinni og er sama hvor áttin er valin á hringnum. Á sumrin er fólk sérstaklega hvatt til þess að veita fuglunum athygli enda er farið um ólík vistkerfi á stuttum tíma. Allt frá spörfuglunum í skógi vöxnum Guðmundarlundi og á öðrum kjarri vöxnum svæðum, í ríki mófugla í Vatnsendahlíð og að vatnafuglunum á Elliðavatni. Fjallasýn er til allra átta í góðu skyggni og forvitnilegt er að sjá misgengisdalina og ímynda sér Elliðavatn eins og það var áður en það varð að miðlunarlóni og stækkaði svo mikið. Leiðin er fær allt árið en það getur verið að skynsamlegt sé að leggja bílum við íþróttahúsið Kórinn á snjóþungum dögum á veturna. Farið er um fjölbreytta slóða og geta sumir þeirra orðið blautir í vætutíð en einnig er farið um malarvegi og nýlega malbikaða stíga. Fjallað er um nokkra staði á leiðinni í molum á Wikiloc.
Þarna eru göngustígar og reiðstígar þvers og kruss. Þegar þið eruð gangandi eða hjólandi þá er mikilvægt að hafa í huga að hestar eru alls konar og geta hræðst ýmislegt. Það er því góð regla að þegar þið mætið hestafólki að stíga til hliðar af stígnum og hinkra róleg á meðan hestar fara fram hjá.
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin
Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
Myndavefur Kópavogsbæjar birtir einnig gömul myndbönd úr Kópavogi. Sjáðu gömul myndbönd úr Kópavogi.
Vissir þú af opnu bókhaldi Kópavogsbæjar? Þarna getur þú skoðað hvert og í hvað peningarnir fara.
Álfhóll við Álfhólsveg er jökulsorfinn klapparhóll sem nýtur bæjarverndar sem bústaður álfa.
Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.