Þjónustuver

Hjá Kópavogsbæ er lögð rík áhersla á að veita íbúum eins góða þjónustu og mögulegt er hverju sinni.  Þjónustuver Kópavogsbæjar er til húsa á Digranesvegi 1.

Starfsmenn þjónustuvers leggja metnað sinn í að svara fyrirspurnum um öll svið í starfsemi bæjarins. Í þjónustuverinu er boðið upp á alla almenna þjónustu við íbúa bæjarins. Verkefnin eru meðal annars:

  • Símsvörun
  • Öll almenn þjónusta við viðskiptavini og starfsmenn bæjarins
  • Upplýsingagjöf um starfsemi bæjarins

Þar má finna ýmis eyðublöð og ítarefni um tiltekna þjónustu. 

Sími Þjónustuversins er 441 0000.

Þjónustuverið er opið mánudaga - fimmtudaga frá kl. 08:00 - 16:00
og frá kl. 08:00  -13:00 á föstudögum.

Fyrir þá sem ekki komast á staðinn er hægt er að hafa samband við þjónustufulltrúa í gegnum samskiptaleiðir hér til hliðar. 

Síðast uppfært 25. nóvember 2022