Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Hugmyndasöfnun hefst að nýju 15. september 2021.
Hér má finna svör við algengum spurningum varðandi verkefnið. Ef nánari upplýsinga er óskað er hægt að hafa samband við Þjónustuver Kópavogsbæjar í síma 441 0000 eða í gegnum netfangið okkarkopavogur(hjá)kopavogur.is
Markmið verkefnisins er að:
Tvær leiðir eru til að koma hugmynd á framfæri, annars vegar á rafrænum hugmyndavef og hins vegar á íbúafundum. Haldnir verða fimm íbúafundir, einn í hverju hverfi, þar sem þar sem íbúar geta rætt hugmyndir sínar og sameinast um að koma allt að 7 hugmyndum áfram í kosningu í vetur af hverjum fundi. Á hugmyndavefnum er einnig hægt að kynna sér hugmyndir annarra og ræða þær.
Þú skráir þig inn í vefinn með netfangi eða Facebook aðgangi og byrjar á að gefa hugmyndinni þinni nafn, útskýrir hana nánar og rökstyður. Hægt er að staðsetja hugmyndina á korti og láta mynd fylgja með til nánari útskýringar.
Þú þarft að byrja á því að fara inn á vefsíðu verkefnisins. Þar býrðu þér til aðgang annað hvort með netfangi eða Facebook aðgangi. Að því loknu getur þú bætt við nýrri hugmynd, gefið henni nafn, útskýrt hana nánar, staðsett á korti og látið mynd fylgja með. Þú getur sett inn eins margar hugmyndir og þú vilt en mundu að hugmyndirnar þurfa að vera á bæjarlandi.
Já, þú getur fengið aðstoð. Ef nánari upplýsinga eða aðstoðar er óskað vinsamlegast hafið samband í Þjónustuver Kópavogsbæjar í síma 441-0000 eða í tölvupóst á netfangið okkarkopavogur(hjá)kopavogur.is.
Opið er fyrir innsetningu hugmynda frá 15. september til 13. október 2021. Hugmyndir eru lagðar fram á hugmyndavef verkefnisins eða á íbúafundum.
Til að hugmynd eigi möguleika á að komast í kosningu þarf hún að:
Unnið er með fimm hverfi Kópavogs eins og þeim er skipt skv. aðalskipulagi, þ.e. Kársnes, Digranes, Smárahverfi, Fífuhvammur (Lindir og Salir), og Vatnsendi.
Verkefnið er til tveggja ára og eru 200 milljónum varið í framkvæmdir sem skiptast á milli fimm hverfa Kópavogs. Hvert hverfi fær 10 milljónir í grunnupphæð og eftir standa því 150 milljónir sem skiptast á milli hverfanna í hlutfalli við íbúafjölda. Fjármagnið skiptist því á eftirfarandi hátt:
Bæjarhluti |
Íbúar alls* |
Hlutfall allra íbúa |
Kjörgengir íbúar* |
Grunnupphæð |
Skipting skv. íbúafjölda |
Heildarupphæð |
Kársnes |
5.889 |
(15,4%) |
5.032 |
10.000.000 |
23.000.000 |
33.000.000 |
Digranes |
13.327 |
(34,8%) |
11.514 |
10.000.000 |
52.000.000 |
62.000.000 |
Smárahverfi |
3.465 |
(9,1%) |
2.901 |
10.000.000 |
14.000.000 |
24.000.000 |
Fífuhvammur |
6.739 |
(17,6%) |
5.652 |
10.000.000 |
26.000.000 |
36.000.000 |
Vatnsendi |
8.856 |
(23,1%) |
7.053 |
10.000.000 |
35.000.000 |
45.000.000 |
Samtals |
38.276 |
(100%) |
32.152 |
50.000.000 |
150.000.000 |
200.000.000 |
* Tölur fengnar úr Þjóðskrá 6. apríl 20121. Auk þessara íbúa eru 280 íbúar óstaðsettir i hús eða utan svæða. |
Matshópur skipaður starfsmönnum Kópavogsbæjar fer yfir innsendar hugmyndir út frá skilyrðu verkefnisins.
Haldið er vel utan um allar þær hugmyndir sem safnast og þær skoðaðar nánar fyrir önnur verkefni þó þær komist ekki áfram í framkvæmd í Okkar Kópavogi.
Að íbúar forgangsraði verkefnum í einu hverfi út frá því fjármagni sem því hverfi hefur verið úthlutað.
Kosningar eru frá 26. janúar 2022 til hádegis 9. febrúar 2022.
Þú mátt kjósa í einu hverfi af fimm og ert ekki bundin/n við að kjósa í þínu hverfi.
Kosningar eru rafrænar, kosningavefur verður opinn á meðan kosningarnar standa yfir.
Allir sem fæddir eru árið 2008 og eldri og eru með lögheimili í Kópavogi hafa rétt til að kjósa, en verða að hafa Íslykil eða rafræn skilríki. Veldu þér hverfi til að kjósa í og útdeildu því fjármagni sem hverfinu hefur verið úthlutað. Að því loknu þarf að ýta á "kjósa" og skrá inn rafræn skilríki eða Íslykil.
Þú getur kosið eins oft og þú vilt en aðeins síðasta kosning gildir.
Allar nánari upplýsingar um rafræn skilríki má nálgast á www.audkenni.is og um Íslykil á www.island.is/islykill.
Framkvæmdir hefjast fljótlega eftir að kosningu lýkur.
200 milljónum er varið í framkvæmdir.