Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Sumardvöl frístundar er opin í ágúst fyrir verðandi nemendur í 1. bekk. Hún er skipulögð í anda þeirrar stefnu að skapa bætta samfellu milli skólastiga.
Sumardvöl frístundar er opin í ágúst í öllum grunnskólum bæjarins og er í boði fyrir verðandi nemendur í 1. bekk. Sótt er um í gegnum Þjónustugátt Kópavogs. Opnað verður fyrir umsóknir í maí.
Markmiðið er að stuðla að vellíðan, öryggi og jákvæðri aðlögun nemenda, jafnt félagslega sem námslega að umhverfi grunnskólanna áður en formlegt skólastarf hefst.
Gert er ráð fyrir að börn útskrifist úr sínum leikskóla fyrir sumarfrí og hefji aðlögun að næsta skólastigi í sumardvöl við sinn hverfisskóla.
Sumardvölin er opin frá klukkan 8:00 að morgni til kl. 16:00 síðdegis og geta foreldrar valið ólíkan dvalartíma yfir daginn. Tekið er á móti börnunum milli 8:00 – 9:00.
Boðið er upp á heitan mat í hádeginu og hressingu fyrir og eftir hádegi.