Vorhreinsun

Vorhreinsun í Kópavogi stendur yfir dagana 28. apríl.- 20. maí. Gámar fyrir garðaúrgang verða á fimm stöðum í bænum á meðan hreinsun stendur yfir. 

Settir verða upp opnir gámar fyrir garðaúrgang á fimm stöðum í bænum þar sem íbúar geta losað sig við garðaúrgang sjálfir. Gámarnir verða aðgengilegir á eftirfarandi stöðum 28.apríl til 20. maí.

  • Kársnes, við Vesturvör 14
  • Digranes, við íþróttahúsið Digranesi
  • Smára- og Lindahverfi, neðst á Glaðheimasvæðinu, Álalind 2
  • Sala- og Kórahverfi, við garðlönd, Rjúpnavegur/ Arnarnesvegur
  • Þinga- og Hvarfahverfi, á bílastæði við Vallakór 8

Gámarnir eru einungis fyrir garðaúrgang og óheimilt að setja annað í gámana. Byggingaúrgangi, almennur úrgangi, spilliefnum, málmum, gleri og öðru sem tilfellur skal skilað í endurvinnslustöðvar Sorpu. 

Athugið að ekki verður farið í götur bæjarins til að hirða garðaúrgang.

    Síðast uppfært 18. september 2023