Molinn miðstöð unga fólksins

Molinn miðstöð unga fólksins er fyrir fólk á aldrinum 16 til 25 ára. Molinn er staðsettur að Hábraut 2, 2.hæð.

Molinn miðstöð unga fólksins býður upp á fjölbreytta þjónustu fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára. Um er að ræða ýmiskonar starf í formi námskeiða, viðburða, ráðgjöf- og stuðning, og aðstöðu til listsköpunar. Húsið er opið öllu ungu fólki, öll velkomin.

  • Fyrir hvað stendur Molinn?

    Molinn býður ungu fólki upp á jákvætt félagslegt umhverfi þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Markmið Molans er að bjóða ungu fólki upp á þjónustu sem höfðar til ungs fólks og ungt fólk kallar eftir. Í húsnæði Molans er þráðlaus netaðgangur og gestir geta fengið afnot af tölvum. Hægt er að nýta sér aðstöðuna til ýmiskonar afþreyingar, en í Molanum er pool borð, aðstaða til að læra, horfa á sjónvarpið, spila tölvuleiki og fleira.

  • Hvað býður Molinn upp á?

    Molinn leggur áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt starf sem höfðar til ungmenna. Stór hluti starfsemi Molans flokkast undir opið frístundastarf, en einnig lögð áhersla á fjölbreytt hópastarf sem unnið er í samvinnu við ungmennin sem Molann sækja. 

    Molinn býður upp á ráðgjöf- og stuðning en í Molanum er starfandi Ráðgjafi ungmenna sem hefur það hlutverk að aðstoða ungmenni sem á þurfa að halda, að þau fái þjónustu sem er í samræmi við þarfir þeirra. Ráðgjafi skipuleggur og stýrir ráðgjöf og stuðning við hópa ungmenna eða einstaklinga.

    Í samvinnu við Bergið headspace er boðið upp á ráðgjöf- og stuðning í Molanum, fyrir ungt fólk aldrinum 16-25 ára. Þjónusta og ráðgjöf Bergsins headspace er ungmennum að kostnaðarlausu og þau geta sjálf haft frumkvæði að því að sækja sér ráðgjöf. Ráðgjafi á vegum Bergsins headpace hefur viðveru í Molanum einn dag í viku á miðvikudögum frá kl. 09.00-12.00. Þjónustan er þannig uppbyggð að ungmenni á aldrinum 16-25 ára, geta óskað eftir þjónustu og fengið viðtal við ráðgjafa með skömmum fyrirvara. Ráðgjöf getur einnig verið fjarráðgjöf í gegnum Köru Connect. Tvær skráningarleiðir eru í boði.

    1. Fara á www.bergid.is og óska eftir þjónustu - setja í athugasemdadálkinn að viðkomandi vilji hitta ráðgjafa í Molanum í Kópavogi.
    2. Starfsmenn Molans aðstoða ungmenni sem á þurfa að halda að finna lausan tíma hjá Berginu headspace. 

     

    Molinn leggur áherslu á að bjóða ungu fólki aðstöðu til listsköpunar. Í Molanum er starfandi umsjónarmaður skapandi verkefna sem skipuleggur skapandi störf með ungu fólki. Umsjónarmaður skapandi verkefna veitir leiðsögn og skipuleggur námskeið, smiðjur, sýningar og viðburði tengt list,-, menningu- og nýsköpun fyrir ungt fólk. Molinn hefur einnig  usmjón með Skapandi sumarstörfum þar sem ungu fólki gefst tækifæri að þróa hugmyndir sínar og vinna sjálfstætt. Í Molanum er einnig gott stúdíó sem ungmenni hafa aðgang að og geta nýtt eins og þeim hentar, í samvinnu við starfsmenn Molans.

  • Opnunartímar Molans

    Mánudagur 14.00-17.00

    Þriðjudagar 14.00-22.00

    Miðvikudagar 14.00-22.00

    Fimmtudagar 14.00-22.00

    Einnig er hægt að nýta húsnæði Molans fyrir utan auglýstan opnunartíma í samvinnu við starfsmenn Molans.

    Hafðu samband í síma 441-9290 eða sendu okkur póst á molinn@molinn.is

Síðast uppfært 03. nóvember 2023