Fífuhvammur (Lindir og Salir)

Fífuhvammur afmarkast af Reykjanesbraut í vestri, Arnanesvegi í norðri, og bæjarmörkum við Reykjavík annarsvegar og Garðabæ hinsvegar. 

Hverfi Kópavogs Digranes Fifuhvammur Kársnes Smárinn Vatnsendi

Eins og allsstaðar í Kópavogi eru falleg og skemmtileg svæði á Fífuhvammi sem gaman er að fara um.

  • Selhryggur

     
    SelhryggurMilli Kópavogs og Reykjavíkur liggur brattur stígur frá Kópavogsdal og að Kórahverfi. Stígurinn er vinsæll meðal  hjólreiðafólks, göngufólks og hlaupara sem vilja koma hjartanu af stað. Þegar komið er upp á hrygginn eru þó nokkur leiksvæði ásamt setbekkjum fyrir þá sem vilja hvíla lúin bein í  fallegu umhverfi. Frá Selhryggnum eru tengingar inn á stígakerfi Kópavogsdals, Seljahverfis, Lindahverfis, Salahverfis og Kórahverfis. Á góðum sumarkvöldum er útsýnið á sólarlagið einstakt frá þessum einstaka göngustíg. 

  • Hádegishólar

    Stúba
    Árið 1992 var reist á Hádegishólum í Salahverfi stúba. Stúba er helgidómur þeirra sem aðhyllast Búddadóm. Hún er byggð samkvæmt tíbeskum hefðum og koma búddistar reglulega til athafna að henni. Auk stúbunar má finna hvalbak á Hádegishólum þar sem ísaldarjökull skóf ofan af landinu efsta lagið og skildi eftir síg grágrýtisklöpp. Á klöppinni má finna jökulrispur sem allar liggja í þá átt sem jökulísinn hopaði fyrir um 10.000 árum.

  • Salalaug

    Salalaug
    Skemmtileg sundlaug í efri byggðum Kópavogs. Sundlaugin er mikið notuð af íbúum jafnt sem gestum. Í sundlauginni má finna heita potta, rennibraut, nuddpott, eimbað og inni sundlaug. Í sundlaugarbyggingunni er ekki bara sundlaug heldur má þar einnig finna líkamsræktarsal og hefur eitt stærsta fimleikafélag landsins, Gerpla, aðstöðu sína í húsinu sem er eitt besta fimleikahús landsins. 

  • Lindaskógur

    Lindaskógur
    Ofan Lindaskóla má finna skóg sem nemendur í leik- og grunnskólum hverfisins hafa verið að rækta. Einnig má finna á svæðinu útikennslustofu nemenda í nágranna skólum svæðisins. Var nafn skógarins ákveðið af nemendum Lindaskóla.

Síðast uppfært 13. janúar 2020