Gæsluvellir eru fyrir börn frá 20 mánaða aldri til 6 ára. Börnin þurfa að vera vel búin því dvöl á gæsluvelli er aðallega útivera. Gæsluvellir eru aðeins starfræktir á sumrin.
Gæta þarf að þolmörkum barna við dvöl þeirra og forráðamenn og starfsfólk hafa samráð um tímalengd dvalar barnsins á gæsluvellinum.
Muna þarf að skrá barnið hjá starfsfólki, þar sem fram koma m.a. símanúmer forráðamanna, sem hægt er að ná í vegna barnsins á meðan á dvöl þess stendur. Allt starfsfólk gæsluvalla hefur farið á skyndihjálparnámskeið. Farið er eftir ákveðnum leiðbeiningum ef slys ber að höndum og haft samband við forráðamenn hið fyrsta. Öll börn sem skráð eru á gæsluvellina eru slysatryggð.
Gjald fyrir hverja komu á gæsluvöll er 300 kr.
Starfsfólki er leyfilegt að takmarka fjölda barna.