Álfhólsvegur 23

Kynning á byggingarleyfi  í Kópavogi.

Á fundi skipulagsráðs 1. mars 2021 var lagt fram erindi Sigurðar Hafsteinssonar byggingartæknifræðings  dags. 14. desember 2020 fh. lóðarhafa Álfhólsvegar 23  þar sem óskað er eftir að gera breytingu á samþykktum teikningum byggingarfulltrúa frá 27. september 2019 sem gera ráð fyrir að komið verði fyrir fjölbýlishúsi á lóðinni með sex íbúðum á þremur hæðum. Í framlögðum byggingaráformum felst að anddyri fyrstu hæðar stækkar og aðkoma breytist, hvor íbúð á fyrstu hæð mun stækka úr 120,7 m2 í 126,7 m2. Á annarri hæð hússins eru gerðar breytingar á innra skipulagi þannig að hvor íbúð  stækkar úr 110,8 m2 í 115 m2. Á þriðju hæð er einnig breyting á innra skipulagi sem verður til þess að hvor íbúð um sig minnkar lítillega, var 111,8 m2 en verður 109 m2. Útveggir eru lítillega breyttir, komið fyrir innskoti á suðurhlið þar sem anddyri verður komið fyrir og gluggar breytast í samræmi við breytt innra skipulag auk þess sem fyrirkomulagi svala er breytt. Fyrirhuguð heildarstærð nýbyggingarinnar verður 690 m2. Uppdrættir í mvk. 1:50 og 1:100 dags. 14. desember 2020.

Með vísan til 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er eftirtöldum lóðarhöfum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Álfhólsvegar 6, 6a, 8, 8a, 10, 10a, 12, 12a, 14, 14a, 16, 16a, 18, 18a, 19, 20, 20a, 21, 25 og 27, Löngubrekku 47 og Auðbrekku 12, 14, 16, 18 og 20.

Kynning hefst þann 30. mars 2021 og skal ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skila skriflega til Skipulagsdeildar Kópavogs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á skipulag@kopavogur.is fyrir kl. 15:00 fimmtudaginn 30. apríl 2021.

Álfhólsvegur 23
Tímabil
30. mars 2021 - 30. apríl 2021