Nýbýlavegur 10

Í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breyttu á deiliskipulagi  í Kópavogi.

Á fundi skipulagsráðs 19. apríl 2021 var lagt fram erindi Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 16. apríl 2021 fh. lóðarhafa Nýbýlavegar 10 þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi. Í breytingu felst að byggingarreitur breytist lítillega og stækkar um 40 cm. til suðurs og 60 cm. til norðurs. Að öðru leiti er vísað í gildandi deiliskipulag Auðbrekku þróunarsvæðis, Nýbýlavegur 2-12 sem samþykkt var í bæjarstjórn 22. september 2020 og birt í b- deild stjórnartíðinda 4. desember 2020. Uppdráttur í mkv. 1:1000 dags. 19. apríl 2021.

Með vísan til 2. mgr. 43. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum lóðarhöfum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Nýbýlavegar 10, 10a, 10b, 12, Auðbrekku 25 og Dalbrekku 30 / Laufbrekku 30.

Kynning hefst þann 23. apríl 2021 og skal ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skila skriflega til Skipulagsdeildar Kópavogs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á skipulag@kopavogur.is fyrir kl. 15:00 þriðjusaginn 25. maí 2021.

Nýbýlavegur 10
Tímabil
23. apríl 2021 - 25. maí 2021