Þorrasalir 37

Í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breyttu á deiliskipulagi  í Kópavogi.

Á fundi skipulagsráðs 29. mars 2021 var lagt fram erindi Sigurðar Hallgrímssonar arkitekts dags. 26. mars 2021 fh. lóðarhafa Þorrasala 37. Í breytingunni felst að byggingarreitur þegar samþykktrar viðbyggingar stækkar um 22 m2 og á suðurhlið hússins verður reist viðbygging á 1 hæð, samtals 18 m2. Að auki er gert ráð fyrir nýju anddyri við hlið þess sem nú er, samtals um 15 m2. Byggingarmagn eykst úr 392 m2 í 447 m2, nýtingarhlutfall fer úr 0,53 í 0,60. Uppdráttur í mkv.1:500 og 1:1000 dags. 26. mars 2021.lagt fram erindi Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 16. apríl 2021 fh. lóðarhafa Nýbýlavegar 10 þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi. Í breytingu felst að byggingarreitur breytist lítillega og stækkar um 40 cm. til suðurs og 60 cm. til norðurs. Að öðru leiti er vísað í gildandi deiliskipulag Auðbrekku þróunarsvæðis, Nýbýlavegur 2-12 sem samþykkt var í bæjarstjórn 22. september 2020 og birt í b- deild stjórnartíðinda 4. desember 2020. Uppdráttur í mkv. 1:1000 dags. 19. apríl 2021.

Með vísan til 2. mgr. 43. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum lóðarhöfum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Þorrasala 6, 8, 10, 35, Þrúðsala 18 og bæjaryfirvöldum í Garðabæ. 

Kynning hefst þann 26. apríl 2021 og skal ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skila skriflega til Skipulagsdeildar Kópavogs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á skipulag@kopavogur.is fyrir kl. 15:00 miðvikudaginn 26. maí 2021.

Þorrasalir 37
Tímabil
26. apríl 2021 - 26. maí 2021