Logar í skýjum - Vortónleikar Karlakórs Kópavogs

Logar í skýjum er heiti vortónleika Karlakórs Kópavogs að þessu sinni. Við fögnum logandi vorsólarlaginu með söngvum um logandi tilfinningar, ást, eftirsjá, vonir, þrár, söknuður, svik og sættir.

Til að kynda ennfrekar í öllu þessum glæðum verður með okkur einvala lið listamanna, Viðar Gunnarsson bassi, Gissur Páll Gissurarson tenór og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari.

Brennustjóri er Sigurður Helgi og kveikt verður í kl 20.00 30. apríl og 2 maí.

Að loknum tónleikum geta gestir sest niður í brekkuna við Digraneskirkju, skoðað kynjamyndir í skýjunum og velt fyrir sér tilgangi lífsins.

Við hlökkum til að hitta ykkur

Miðasala er á tix.is