Velferðar- og mannréttindaráð

15. fundur 09. mars 2026 kl. 16:15 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Dagskrá

Skrifstofa Ráðgjafar

1.2603384 - Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 11.2.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Skrifstofa Starfsstöðva og þróunar

2.26022407 - Áfrýjun heimsendur matur

Áfrýjun dags. 18.2.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Skrifstofa Starfsstöðva og þróunar

3.2512537 - Kæra nr. 786-2025. NPA. Málsmeðferð

Lagður fram til kynningar úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála dags. 24.2.2026.

Skrifstofa Starfsstöðva og þróunar

4.26011311 - Breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð

Lagðar fram til kynningar og umræðu breytingar á reglum Kópavogsbæjar um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk.

Skrifstofa Starfsstöðva og þróunar

5.26011302 - Breytingar á reglum um styrki til náms- verkfæra og tækjakaupa

Lagðar fram til kynningar og umræðu breytingar á reglum Kópavogsbæjar um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir.

Barnavernd

6.26022701 - Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður Pírata í velferðar- og mannréttindaráði leggur fram fyrirspurn um verklag vegna vistunar barna

Í ljósi nýlegrar umfjöllunar um alvarlega annmarka á verklagi og eftirliti með vistun barna á vegum félagsþjónustu sveitarfélaga óskar undirrituð eftir minnisblaði með svörum við eftirfarandi spurningum:

1. Hver er ferillinn þegar ábending eða vísbending berst um að aðbúnaði barna í vistun á vegum Kópavogsbæjar sé ábótavant t.d. frá barni, foreldri eða skóla?

2. Hvaða ráðstafanir eru gerðar varðandi vistun barnsins á meðan mál er rannsakað?

3. Hvaða kröfur eru gerðar um eftirlit á vettvangi, til dæmis óboðaðar heimsóknir og viðtöl við barn án viðveru vistforeldra?

4. Hvernig er tryggt að upplýsingar um áhyggjur, ábendingar og niðurstöður athugana vegna vistunar barns berist milli viðeigandi stofnana og sveitarfélaga, þannig að mál falli ekki milli kerfa?

5. Hvaða stuðningur stendur fyrrum skjólstæðingum Kópavogsbæjar, bæði börnum og foreldrum þeirra, til boða í dag og hvernig er tryggt að hann sé aðgengilegur?

Önnur mál

7.2603948 - Virkniþing í þágu eldra fólks

Lagt fram til kynningar minnisblað um Virkniþing Kópavogsbæjar í þágu eldra fólks sem haldið var 25.2.2026.

Önnur mál

8.22067459 - Kynning á starfsemi velferðarsviðs

Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðar- og mannréttindaráðs.