Hlíðarhvammur 12.

Úr fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 12. apríl 2022:

"Sbr. erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa dags. 8. apríl 2022 þar sem sótt er um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við austurhlið hússins alls 56,8 m² að flatarmáli.
Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 1. febrúar 2022.
Embætti skipulagsfulltrúa samþykkti með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Hlíðarvegi 4, 6, 8 og Hlíðarhvammi 10."

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 12:00 föstudaginn 13. maí 2022.

Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.

Hlíðarhvammur 12.
Tímabil
12. apríl til 13. maí 2022
Kynningargögn
Kynningaruppdráttur