Holtagerði 20

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 20. september 2021 var lagt fram erindi Jakobs Emils Líndal arkitekts dags. 1. september 2021 fyrir hönd lóðarhafa Holtagerðis 20. Óskað er eftir leyfi til að byggja 8m² svalir á vesturhlið 2. hæðar. Undirritað samþykki sameigenda liggur fyrir.

Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Holtagerðis 15, 16, 18, 22, Kársnesbrautar 69 og 71.

Kynning hófst 27. september 2021 og skal ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skila skriflega til skipulagsdeildar Kópavogsbæjar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á skipulag@kopavogur.is  fyrir kl. 15:00 miðvikudaginn 27.  október 2021.  

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.

 

Holtagerði 20
Tímabil
27. september 2021 - 27. október 2021
Kynningargögn
Holtagerði 20