Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Gæði byggðar eru víðtækt hugtak, sem nær til margra mismunandi
þátta í byggðinni og umhverfinu, jafnt utan dyra sem innan, og fæst
með vönduðu skipulagi og hönnun. Vönduð byggð eykur lífsgæði
íbúanna og stuðlar að bættri lýðheilsu. Í hverfum sem einkennast
af gæðum býr fólk við góða dagsbirtu, hreint loft, gróðursæl svæði,
kyrrð og öryggi. Þar er loft-, hljóð- og sjónmengun haldið í lágmarki
og á götum er lifandi starfsemi og mannlíf.
Til að stuðla að sjálfbærni og auknum gæðum byggðar er mikilvægt að
stytta vegalengdir í verslun og þjónustu og bæta aðgengi vistvænna
ferðamáta. Í aðalskipulagi Kópavogs, svæðisskipulagi
höfuðborgarsvæðisins og landsskipulagsstefnu er talað um 20
mínútna hverfið þar sem er gott framboð af fjölbreyttum húsakosti og
öll helsta þjónusta. Miðað er við að íbúar eigi ekki lengra að sækja í
kjarna en sem nemur tuttugu mínútna göngu. Nærþjónusta dreifist
víðar svo íbúar eigi kost á nauðsynlegustu þjónustu eins og leikskóla,
grunnskóla, íþrótta- og tómstundastarfsemi og matvöruverslun innan
5–10 mínútna göngufjarlægðar.
Hér fyrir neðan er gátlisti um gæði byggðar, sem gott er að fara yfir
þegar farið er í nýja uppbyggingu eða umfangsmiklar breytingar á hinu
byggða umhverfi. Ítarlegri upplýsingar um stefnu Kópavogsbæjar fyrir
uppbyggingu á þróunarsvæðum ásamt mælikvörðum má finna í
Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040.
Er komið til móts við eftirfarandi viðmið um gæði byggðar?
1. Hæfilega þétt og blönduð byggð
Hæfilegur þéttleiki byggðar í samræmi við kringumstæður á hverjum stað þannig að innviðir nýtist sem best og grundvöllur
sé fyrir verslun og þjónustu en á sama tíma sé skuggavarp lágmarkað og björt og skjólsæl dvalarsvæði?
Aðgengi að verslun og þjónustu í nágrenninu og möguleiki á því að ýta undir lifandi starfsemi í hverfinu?
Samhengi við höfuðborgarsvæðið hvað varðar samgöngutengingar, húsnæðisframboð og dreifingu starfa?
Byggingarsaga og minjar og tryggja að haldið sé í mikilvægar byggingar, minjar og sögulegar skírskotanir til að viðhalda
staðaranda?
2. Fjölbreytt og vönduð byggð
Fjölbreyttir húsnæðiskostir innan hverfis sem laða að ólíka þjóðfélagshópa og fólk á mismunandi ævistigum?
Vandaður arkitektúr og borgarhönnun með fjölbreyttum og áhugaverðum lausnum?
Bjartar og vel skipulagðar íbúðir með alla nauðsynlega aðstöðu og gott aðgengi að aðlaðandi útisvæðum?
Vistvænar áherslur og efnisval séu í fyrirrúmi til þess að lágmarka kolefnisfótspor byggðarinnar og bæta lýðheilsu?
3. Gott aðgengi að grænum svæðum
Gott aðgengi að dvalarsvæði á lóð með gegndræpu yfirborði, sem nýtur sólar og skjóls?
Almenningsrými innan byggðarinnar séu áhugaverð, aðlaðandi og aðgengileg fyrir alla aldurshópa?
Gróður á lóðum og almenningsrýmum, sem fegrar umhverfið, ýtir undir líffræðilega fjölbreytni og möguleika á
matjurtaræktun?
Blágrænar ofanvatnslausnir sem taka við ofanvatni og sía áður en að það rennur í viðtaka og grænka umhverfið?
4. Vistvænar og skilvirkar samgöngur
Góðar göngu- og hjólatengingar, sem eru aðlaðandi, vel merktar og öruggar?
Gott aðgengi að almenningssamgöngum, sem tengjast göngu- og hjólaleiðum?
Bílastæði á yfirborði séu ekki yfirgnæfandi í byggðinni, staðsett í skugga, fegruð með gróðri og möguleikar á
rafhleðslu?
Hjólastæði séu örugg og aðgengileg í og við hverja byggingu og helstu áfangastaði?
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin
Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.
Myndavefur Kópavogsbæjar birtir einnig gömul myndbönd úr Kópavogi. Sjáðu gömul myndbönd úr Kópavogi.
Álfhóll við Álfhólsveg er jökulsorfinn klapparhóll sem nýtur bæjarverndar sem bústaður álfa.
Vissir þú af opnu bókhaldi Kópavogsbæjar? Þarna getur þú skoðað hvert og í hvað peningarnir fara.
Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.