Til viðbótar við fundinn fer hugmyndasöfnunin fram á vefnum Betra Ísland, á sérstakri síðu verkefnisins:
👉 https://stellurolo.betraisland.is/group/31732

Gáttin er opin frá 16. apríl til 30. apríl 2026.

Allar innsendar hugmyndir fara í faglega og vandaða yfirferð hjá starfsmönnum Kópavogsbæjar. Í þeirri vinnu er metið hvort hugmyndir falli að markmiði, umfangi og forsendum þessa tiltekna verkefnis, þar á meðal hlutverki svæðisins, skipulagi og ábyrgð sveitarfélagsins. Þær tillögur sem teljast viðeigandi verða nýttar við áframhaldandi vinnslu verkefnisins.

Hugmyndir sem ekki eiga beint við í þessari endurgerð, en eru þess eðlis að þær geti átt erindi síðar, geta – þegar það á við – verið settar í sérstakan hugmyndabanka Kópavogsbæjar. Þar geta þær varðveist og mögulega nýst síðar við frekari uppbyggingu, þróun eða önnur verkefni innan bæjarins.

Með þessu verklagi er tryggt að allar hugmyndir fái málefnalega meðferð og að hugmyndasöfnunin styðji við gagnsæi, jafnræði og markvissa þróun í Kópavogi.