Íbúasamráð og upplýsingagjöf
Íbúasamráð og upplýsingagjöf – uppbygging í miðbæ Kópavogs
Frá árinu 2019 hefur Kópavogsbær staðið fyrir markvissri upplýsingagjöf og íbúasamráði vegna uppbyggingar í miðbæ Kópavogs, bæði samkvæmt lögum og jafnframt farið lengra en lög kveða á um í þeim tilgangi að skapa sátt um verkið. Samráðið hefur verið samfellt, tekið breytingum í kjölfar ábendinga og sérstök áhersla verið lögð á íbúa Fannborgarsvæðisins og eldra fólk.
Yfirlit þetta er sett fram til að tryggja gagnsæi og sýna heildstæða mynd af þeirri upplýsingagjöf og íbúasamráði sem farið hefur fram á öllum stigum uppbyggingar miðbæjar Kópavogs. Yfirlitið tekur breytingum eftir því sem við á. Hér eru ekki tilteknir þeir fjölmörgu smærri fundir, samráð við einstaklinga, húsfélög, fyrirtæki, félagasamtök eða aðra hagaðila, sem átt hafa sér stað í gegnum árin.
Tímalína samráðs og upplýsingagjafar
Forsaga
- 2017 – Undirbúningur hefst
Undirbúningur endurskipulagningar miðbæjarsvæðisins hefst árið 2017 þegar Kópavogsbær samþykkir sölu á fasteignum á Fannborgarreit með enduruppbyggingu í huga.
- 2018 – Samstarf við framkvæmdaraðila
Kópavogsbær gerði formlegan samning við valinn framkvæmdaaðila um uppbyggingu á Fannborgarreit. Í kjölfarið hófst vinna við forathugun og skipulagslýsingar.
Deiliskipulag kynnt íbúum
- Desember 2019-janúar 2020 – Vinnslutillaga I kynnt
Skipulagslýsingar á vinnslutillögu að aðalskipulagi og skipulagslýsing á vinnslutillögu að deiliskipulagi (dags. 11. nóv. 2019) voru kynntar frá 14. desember 2019 til 23. janúar 2020. Skipulagslýsing var auglýst í Fréttablaðinu og send umsagnaraðilum. Opið hús var haldið á bæjarskrifstofum Kópavogsbæjar dagana 9. og 15. janúar 2020.
Skipulagslýsingarnar voru samþykktar í skipulagsráði 2. mars 2020. - Mars – apríl 2020 – Vinnslutillaga I kynnt og fundur í streymi
Vinnslutillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir miðbæjarsvæðið (Hamraborg, Fannborgarreit og Traðarreit vestur), Vinnslutillaga I, var kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum. Fimmtudaginn 19. mars 2020 var útsending frá kynningu vinnslutillögunnar á vefsíðu Kópavogsbæjar birt í streymi vegna Covid. Vinnslutillaga að breyttu aðalskipulagi dagsett 25. febrúar 2020 var jafnframt í kynningu til 29. apríl 2020, kynnt samhliða vinnslutillögu I að deiliskipulagi.
- Maí – október 2020 – Vinnslutillaga II kynnt og unnin
Vinnslutillaga II (dagsett 14. maí 2020) var kynnt á heimasíðu bæjarins í maí 2020, auglýst í Fréttablaðinu og send umsagnaraðilum. Upptaka af kynningu á vinnslutillögu II var gerð aðgengileg á heimasíðu bæjarins frá 27. maí 2020 og opið hús um Vinnslutillögu II var haldið 25. júní 2020. Athugasemdarfrestur var til 30. júní 2020.
Þann 7. júlí 2020 samþykkti skipulagsráð að á grundvelli vinnslutillögu II yrði hafin vinna við gerð tillögu að breyttu aðalskipulagi og tillögu að deiliskipulagi fyrir svæðið og samhliða þeirri vinnu yrði farið í frekara samráð við íbúa og aðra hagsmunaaðila. Í september 2020 var fengin rýni á vinnslutillögu II frá Yrki arkitektum og Arkís.
- Haust 2020 til mars 2021 – Kynning á tillögu að breyttu aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi
Að loknu samráðsferlinu hér að ofan var tillaga að breyttu aðal- og deiliskipulagi, sem byggð var á vinnslutillögu II, samþykkt í auglýsingu á fundi bæjarstjórnar 27. október 2020. Umsagnarfrestur var frá 2. jan. til 2. mars 2021. Öll gögn málsins voru aðgengileg á heimasíðu Kópavogsbæjar, þ.m.t. fyrir-og-eftir-myndir og 360° sýn. Tillögurnar voru auglýstar í Fréttablaðinu og Lögbirtingablaðinu og sendar umsagnaraðilum.
Kynningarfundur í beinu streymi var haldinn 14. janúar 2021 og gerður aðgengilegur á heimasíðu Kópavogs.
Gerður var kynningarbæklingur og honum dreift í hús á svæðinu sjálfu og í næsta nágrenni, þar sem helstu atriði í tillögunum tveimur voru tíunduð.
Boðið var upp á símatíma þar sem fólk gat hringt inn og leitað eftir frekari upplýsingum. Sérstök aðstoð var boðin fólki sem ekki hafði aðgang að tölvu/prentara eða óskaði eftir gögnum.
Starfsmenn skipulagsdeildar funduðu með smærri hópum einstakra hagsmunaaðila sem teljast eiga beinna hagsmuna að gæta og fóru yfir atriði málsins og kynningarferlið.
Viðhorfskönnun og umræðuvefhópar voru gerð á vegum Maskínu ehf. sem nýttust við áframhaldandi vinnu við skipulag á svæðinu.
Deiliskipulag samþykkt
- 2021 – deiliskipulag samþykkt
Fullmótuð deiliskipulagstillaga fyrir miðbæjarsvæðið var kynnt íbúum og hagaðilum í upphafi árs 2021. Að loknu samráðsferli var deiliskipulagstillaga samþykkt með breytingum í maí sama ár.
Nýtt deiliskipulag miðbæjar Kópavogs tók formlega gildi í desember 2021.
Byggingaráform staðfest
- 2025 – Byggingaráform staðfest
Vorið 2025 voru byggingaráform fyrir Fannborgar- og Traðarreit staðfest af bæjarstjórn Kópavogs á grunni samþykkts deiliskipulags.
Skipulagsferlinu lauk þar með formlega og undirbúningur framkvæmda hófst, m.a. gerð framkvæmdaáætlunar og áætlunar um áframhaldandi upplýsingagjöf og samráð við íbúa á byggingartímanum.
Framkvæmdir undirbúnar
- Vor og snemmsumars 2025 – Upplýsingavefur og samráðsteymi
Smærri fundir haldnir með hagaðilum.
Kópavogsbær opnaði sérstaka upplýsingasíðu um uppbyggingu miðbæjarins, midbaer.kopavogur.is, þar sem safnað var saman öllum gögnum og fréttum
verkefnisins.
Sérstökum samskiptahópi Kópavogsbæjar og framkvæmdaraðila var komið á fót til að tryggja gott upplýsingaflæði meðan á framkvæmdum stæði. Íbúum var bent á að senda fyrirspurnir á netfangið midbaer@kopavogur.is og gátu einnig skráð sig á póst- og SMS-lista til að fá tilkynningar um stöðu verkefnisins.
- 30. júní 2025 – Opinn íbúafundur í Kópavogskirkju
Fyrsti formlegi upplýsingafundurinn fyrir íbúa og hagsmunaaðila um miðbæjarverkefnið var haldinn 30. júní 2025 í safnaðarheimili Kópavogskirkju. Á fundinum var farið yfir samþykkt deiliskipulag og fyrirhuguð áform kynnt. Fundinum var streymt á netinu og hægt var að horfa á upptöku fundarins á vefsíðu Kópavogsbæjar og Youtube.
- 3. júlí 2025 – Íbúafundur í Gjábakka (Fannborg 8)
Þann 3. júlí 2025 var haldinn íbúafundur sérstaklega ætlaður eldri íbúum Fannborgar 8 (íbúðum Sunnuhlíðarsamtakanna) og öðrum gestum Gjábakka. Á þessum óformlega fundi gafst tækifæri til að ræða sérstök hagsmunamál eldri íbúa og svara spurningum þeirra í minni hópi.
- 18. nóvember 2025 – Upplýsingafundur í Kópavogsskóla
Kynningarfundur fyrir íbúa á áhrifasvæði Fannborgarreitsins og aðra hagsmunaaðila var haldinn 18. nóvember 2025 í Kópavogsskóla. Á fundinum var meðal annars farið yfir fyrirkomulag ástandsskoðana á nálægum húsum og annan undirbúning áður en framkvæmdir hæfust. Fundinum var streymt og upptaka gerð aðgengileg á vef bæjarins.
Fundurinn var auglýstur með dreifiriti og tölvupóstur sendur á tölvupóstlista.
- 25. nóvember 2025 – Íbúafundur í Gjábakka
Annar íbúafundur, sérstaklega ætlaður íbúum Fannborgar 8 (Sunnuhlíðaríbúðum) og gestum Gjábakka, var haldinn þann 25. nóvember 2025. Eldra fólki gafst þar kostur á samtali við verktaka og bæjarstarfsmenn um framkvæmdirnar í nágrenninu.
- Desember 2025 – Hreinsunar- og ástandsskoðunarfasi
Í lok árs 2025 hófst svokallaður 0. fasi framkvæmda: hreinsun innan úr tómum byggingum (Fannborg 2, 4 og 6) og samskipti við íbúa vegna ástandsskoðana á nálægum húsum. Verkfræðistofa (VSÓ) framkvæmdi úttektir á íbúðum á áhrifasvæðinu og var hver skoðun skipulögð í nánu samráði við íbúa. Haft var samráð við formenn húsfélaga eða íbúana sjálfa til að finna hentugan tíma og tryggja viðveru þeirra. Niðurstöður þessara skoðana voru skráðar og varðveittar með fullum trúnaði.
Niðurrif hefst
- 28. janúar 2026 – Upplýsingafundur um niðurrif (1. fasi)
Opinn upplýsingafundur var haldinn 28. janúar 2026 í safnaðarheimilinu Borgum (Hábraut 1a) fyrir íbúa og fyrirtæki á Fannborgarsvæðinu. Þar var kynntur fyrsti áfangi framkvæmda og niðurrifsfasi (niðurrif Fannborgar 2, 4 og 6) og íbúum gerð grein fyrir framkvæmdaáætlun og öryggismálum tengdum niðurrifinu. Fundinum var streymt og glærusýning fundarins gerð aðgengileg á vefnum að honum loknum. Fundurinn var auglýstur með dreifiritum sem dreift var 21. janúar 2026 og póstur sendur á tölvupóstlista.
- 3. febrúar 2026 – Íbúafundur fyrir Fannborg 8
Haldið var áfram að funda sérstaklega með íbúum Fannborgar 8 (Sunnuhlíðaríbúða) til að ræða stöðu niðurrifsframkvæmda og hagsmunamál eldri íbúa. Sérstakur fundur var haldinn 3. febrúar 2026 með þeim íbúum þar sem farið var yfir gang verksins og spurningum svarað.
- 25. mars 2026 – dreifiriti dreift
Dreifiriti var dreift í nálæg hús og fyrirtæki með upplýsingum um framkvæmdir, þar sem niðurrifi á Fannborg 2 var lokið og niðurrif á Fannborg 4 og 6 var að hefjast.
- Jan – apríl 2026 – upplýsingagjöf
Uppfærð upplýsingasíða opnar um miðjan apríl 2026. Einnig eru tölvupóstlisti og sms-listar notaðir þegar við á.