Sveitarstjórnarkosningar 2026

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí 2026.
Local government election will be held in Iceland on May 16th 2026.

Rafræn meðmælasöfnun 

Þann 3. mars 2026 opnar fyrir rafræna meðmælasöfnun í Kópavogi fyrir framboð til sveitarstjórna. Söfnun er opin til 10. apríl næstkomandi kl. 12.00 þegar framboðsfrestur rennur út. Stofnun meðmælasöfnunar vegna framboðs til sveitarstjórnar fer fram inni á Ísland.is.

Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til sveitarstjórnar

Hyggjast framboð safna meðmælum á pappír skulu meðmælin skráð inn í söfnunina fyrir viðkomandi framboð á Ísland.is.

 

Kjörfundur

Kjörfundur í Kópavogi stendur yfir frá 09.00 til 22.00. Kjörstaðir í Kópavogi eru tveir, íþróttahúsið Smárinn og íþróttahúsið Kórinn.

Íbúar vestan Reykjanesbrautar og í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu Smáranum, Dalsmára 5. Íbúar austan Reykjanesbrautar að frátöldum þeim sem búa í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu Kórnum, Vallakór 12.

Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér á kjörstað með því að framvísa kennivottorði eða nafnskírteini eða á annan fullnægjandi háttað mati kjörstjórnar. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörskránni afhentir fulltrúi í kjörstjórn honum einn kjörseðil.

 

Kjörstjórn

Yfirkjörstjórn í Kópavogi skipa: Helgi Magnússon, Jón Guðlaugur Magnússon, Jón Ögmundsson. Aðsetur kjörstjórnar á kjördag verður í íþróttahúsinu Smáranum. Talning atkvæða fer fram í íþróttahúsinu Kórnum að kjörfundi loknum.

Talning

Talning atkvæða í sveitarstjórnarkosningum þann 16. maí 2026 í Kópavogi fer fram í íþróttahúsinu Kórnum að Vallakór 12–14 og hefst að kjörfundi loknum kl. 22.

Kjörskrá

Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 liggur frammi í þjónustuveri á Bæjarskrifstofum Kópavogs, Digranesvegi 1, frá og með 24. apríl næstkomandi. Ef einhverjar athugasemdir eru við kjörskrána ber að snúa sér með þær til bæjarlögmanns.

Kosning utan kjörfundar

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla við embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu vegna kosninga til sveitarstjórna sem fram fara 16. maí 2026 hefst þann 17. apríl nk.  Staðsetning ókunn. Nánar um kosningu utan kjörfundar 2026.

Opnunartími:
Kemur inn síðar

Information in English

Information in English about the election.

Síðast uppfært 02. mars 2026