Fréttir

Tilkynningar

Viðburðir

02.11.2025 kl. 20:00 - Salurinn

Söngleikjastælar

Vegna fjölda áskoranna munu Bjarni Snæbjörns og Sigga Eyrún snúa aftur í Salinn með tónleikaröðina SÖNGLEIKJASTÆLA. Tónleikaröðin sló í gegn í fyrra og er óður til söngleikjanna þar sem ný og gömul söngleikjatónlist fær að njóta sín í meðförum reyndra söng-leikara ásamt hljómsveit. Að þessu sinni verða þrennir tónleikar sem teygja sig yfir allan veturinn þar sem hverjir tónleikar eru með ólíka nálgun á formið.  2. nóvember: Nýstirnið Salka Gústafsdóttir og þjóðargersemin Jóhann Sigurðarson koma sem gestasöngvarar og flytja sín uppáhalds söngleikjalög.7. febrúar: Sprúðlandi fjölskyldutónleikar um miðjan dag þar sem börn á öllum aldri fá að syngja með.25. apríl: Sprengju-tónleikar með Söngleikjakórnum Viðlag.  SMELLTU HÉR TIL AÐ KAUPA ÁSKRIFT Á ALLA ÞRJÁ TÓNLEIKANA Á EINSTÖKU TILBOÐI Sigga Eyrún og Bjarni Snæbjörnsson eru ástríðufullir söng-leikarar. Samstarf þeirra hófst á Reykjavík Pride árið 2008 með söngleikjaparinu Viggó og Víólettu. Síðan þá hafa þau lagt hjarta og sál í söngleikjaformið og skemmt landanum á sviðum leikhúsanna, á árshátíðum, í afmælum og víðar. Meðal söngleikja sem þau hafa tekið þátt í eru: Vesalingarnir, Mary Poppins, Kardemommubærinn, Sem á himni, Slá í gegn, Ronja Ræningjadóttir, Jesus Christ Superstar, Frost og Góðan daginn, faggi.  Hljómsveitin er sem fyrr skipuð okkar fremsta tónlistarfólki: Karl Olgeirsson: hljómsveitarstjóri spilar á píanó, hljómborð, harmonikku o.fl.Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir á trommur/slagverkAndri Ólafsson á bassa
17.01.2026 kl. 13:00 - Gerðarsafn

Baby Rave með DJ Ívari Pétri

Baby Rave er fjölskyldustund fyrir börn á öllum aldri til þess að dansa og hreyfa sig eins og þau listir. Listamaðurinn og plötusnúðurinn Ívar Pétur (FM Belfast) fer með gesti í ferðalag um allan heiminn og jafnvel út í geim með tónlistinni einni saman og fagna fjölbreytileika og fegurð listar og menningar frá sem flestum heimshornum. Lögð er áhersla á vinalega og skemmtilega stemningu þar sem börn á öllum aldri eru boðin velkomin á vinalegt rave. Viðburðurinn er haldin í tengslum við sýninguna Skúlptúr skúlptúr performans sem er sýningarstýrt af Jo Pawlowskx. Fjölskyldustundir menningarhúsanna fara fram á laugardögum frá klukkan 13, á víxl á Bókasafni Kópavogs (aðalsafni og Lindasafni), Gerðarsafni, Salnum eða Náttúrufræðistofu Kópavogs. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir. Hjólastóla aðgengi á Gerðarsafni er gott og aðgangur ókeypis.
18.01.2026 kl. 14:00 - Gerðarsafn

Jasa Baka | Gjörningafyrirlestur | Performance lecture

Jasa Baka býður gestum á gjörningafyrirlestur, sögustund með hugleiðsluívafi; búa til uppskrift að álögum fyrir þarfir okkar sem samfélags, heimsækja fornar gyðjusagnir og táknfræði guðdómlegs femínisma til að endurhugsa, finna jafnvægi, nærast og hvílast.Viðburðurinn fer fram inni í sýningunni Skúlptúr skúlptúr performans og verður á ensku. Jasa er ein af listafólki sýningarinnar sem stendur til 25. janúar.
19.01.2026 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs

Bróderíklúbburinn á Lindasafni

Ertu byrjandi eða með áralanga reynslu af bróderíi? Viltu kannski rifja upp gamla takta og hitta aðra sem deila sama áhuga? Þá gæti Bróderíklúbburinn hentað fyrir þig. Bróderíklúbburinn hittist á mánudögum á Lindasafni í Núpalind 7 kl. 14:00. Öll velkomin og heitt á könnunni.
21.01.2026 kl. 12:15 - Náttúrufræðistofa Kópavogs

Hvað er flokkun?

,,Hvað er“ er erindaröð á vegum Náttúrufræðistofu Kópavogs. Sérfræðingar úr ýmsum áttum eru fengnir til að varpa ljósi á ólík hugtök og fyrirbæri og skýra þau út á mannamáli. Viðfangsefni þessa hádegiserindis er flokkun. Við munum við skoða hvernig er hægt að draga úr magni rusls sem við framleiðum, til hvers við erum að flokka ruslið okkar og hvað verður um allt ruslið. Fer þetta ekki allt í sömu holuna? Jóhannes Bjarki Urbancic er sérfræðingur í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun. Sem þýðir að hans vinna felst í að minnka magnið af rusli sem við framleiðum, auka endurvinnslu, styðja við nýsköpun og passa að ruslið okkar fari í réttan farveg. Langar þig að vita hvað verður um ruslið okkar? Þá er þetta viðburður fyrir þig! Erindið fer fram í Náttúrufræðistofu Kópavogs. Öll velkomin og aðgangur ókeypis.
21.01.2026 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín hittist alla miðvikudaga á 2. hæð aðalsafns. Heitt á könnunni og öll velkomin! Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Kaðlín | Bókasafn Kópavogs.
21.01.2026 kl. 18:00 - Menning í Kópavogi

Ljóðstafur Jóns úr Vör

Ljóðstafur Jóns úr Vör verður afhentur við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi, miðvikudaginn 21. janúar 2026. Við sama tilefni verða úrslit kunngjörð í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs.Boðið verður upp á léttar veitingar að athöfn lokinni. Öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.Um Ljóðstaf Jóns úr VörÁrið 2001 var stofnað til ljóðasamkeppni á vegum Lista- og menningarráðs Kópavogs og Ritlistarhóps Kópavogs, sem hlaut nafnið Ljóðstafur Jóns úr Vör, í minningu skáldsins sem lést 4. mars 2000. Jón fæddist á Vatneyri við Patreksfjörð 21. janúar 1917 en starfaði lengst af í Kópavogi þar sem hann var hvatamaður að stofnun bókasafnsins og síðar fyrsti bæjarbókavörður bæjarfélagsins. Jón starfaði að menningarmálum með ýmsum hætti, var til dæmis bæði bóksali og ritstjóri, en fyrst og fremst var hann brautryðjandi í íslenskri ljóðagerð. Fjölmargar ljóðabækur hans lifa með þjóðinni og ber þá helst að nefna óð hans til æskustöðvanna, ljóðabálkinn Þorpið. Jón úr Vör lést 4. mars árið 2000.Ljóðstafur Jóns úr Vör er veittur að lokinni samkeppni þar sem öllum er frjálst að senda inn frumsamin ljóð á íslensku, og undir dulnefni. Hér takast því á reyndari skáld og þau yngri í jöfnum leik. Veitt eru peningaverðlaun og verðlaunaskáldið fær til varðveislu í eitt ár silfurskreyttan göngustaf, sem var í eigu Jóns úr Vör. Á stafinn er festur skjöldur með nafni verðlaunahafa ásamt ártali. Verðlaunin eru veitt við hátíðlega athöfn á fæðingardegi Jóns úr Vör þann 21. janúar ár hvert. Eftirfarandi hafa hlotið Ljóðstaf Jóns úr Vör 2025Anna Rósa Árnadóttir: Skeljar 2024Vala Hauksdóttir: Verk að finna2023Sunna Dís Másdóttir: Á eftir þegar að þú ert búin að deyja 2022Brynja Hjálmarsdóttir: Þegar dagar aldrei dagar aldrei 2021Þórdís Helgadóttir: Fasaskipti 2020Björk Þorgrímsdóttir: Augasteinn 2019Brynjólfur Þorsteinsson: Gormánuður 2018Sindri Freysson: Kínversk stúlka les uppi á jökli 2017Ásta Fanney Sigurðardóttir: Silkileið nr. 17 2016Dagur Hjartarson: Haustlægð  2015Ljóðstafur ekki veittur  2014 Anton Helgi Jónsson: Horfurnar um miðja vikuna 2013Magnús Sigurðsson: Tunglsljós 2012Hallfríður J. Ragnheiðardóttir: Triptych  2011Steinunn Helgadóttir: Kaf  2010Gerður Kristný: Strandir 2009 Anton Helgi Jónsson: Einsöngur án undirleiks  2008Jónína Leósdóttir: Miðbæjarmynd 2007Guðrún Hannesdóttir: Offors 2006 Óskar Árni Óskarsson: Í bláu myrkri 2005 Linda Vilhjálmsdóttir: Niður 2004 Hjörtur Marteinsson: Hvorki hér né … 2003 Ljóðstafur ekki veittur 2002 Hjörtur Pálsson: Nótt frá Svignaskarði
22.01.2026 kl. 12:15 - Bókasafn Kópavogs

Talaðu við mig um vonina - ljóðagjörningur

Talaðu við mig um vonina heitir ljóða- og tónlistarsyrpa sem Kristín Lárusdóttir sellóleikari og raftónskáld og ljóðskáldið Anton Helgi Jónsson flytja í hádeginu fimmtudaginn 22. janúar í Bókasafni Kópavogs á dögum ljóðsins. Í syrpunni er tvinnað saman tónum og texum sem tjá hugsanir á uggvænlegum tímum, stríðsáhyggjur og örvæntingu sem og drauma um frið og betri heim. Dagskráin hefst kl. 12.15 og stendur í hálftíma. Hún er hluti af dögum ljóðsins í Kópavogi. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin. Anton Helgi Jónsson hefur fengist við ljóðagerð af ýmsu tagi um hálfrar aldar skeið. Hans nýjasta bók, Ég hugsa mig, kom út 2024. Kristín Lárusdóttir, hefur fengist við sellóleik og kennslu í fjöldaára. Hún hefur einnig samið tónlist og gefið út á geisladiskum. Sá nýjasti, Kría, kom út árið 2023.
23.01.2026 kl. 11:00 - Bókasafn Kópavogs

Get together

Get Together meet-ups will be held at the Library in Kópavogur, on the first floor in the Tilraunastofa - meeting room. The meet-ups are international meetings open to refugees, asylum-seekers, immigrants, and anyone seeking companionship. Whether you're a family or an individual, you're welcome to join us. Each week, we gather and do relaxing activities like painting, weaving, crafting, and more. It's all about getting together, making new friends, and sharing stories in a warm, supportive space.Get Together meet-ups are a collaboration between GETA aid organization and the Library in Kópavogur.We offer free coffee and treats for everyone! These meet ups are sponsored by Vinnumálastofnun. Get Together heldur alþjóðlegan fjölskyldu- og vinahitting á Bókasafni Kópavogs, á fyrstu hæð í Tilraunastofunni. Þetta er alþjóðlegur hittingur fyrir flóttafólk, hælisleitendur, innflytjendur og öll sem vilja félagsskap.Viðburðurinn er bæði fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Í hverri viku munum við hittast og gera eitthvað skemmtilegt saman eins og að mála, prjóna, föndra o.fl. Í Get together hittum við nýja vini og deilum sögum okkar í þægilegu og öruggu umhverfi. Get Together er samstarfsverkefni milli GETA hjálparsamtök og Bókasafn Kópavogs. Við munum bjóða upp á kaffi og með því! Þessi viðburður er styrktur af Vinnumálastofnun.
24.01.2026 kl. 11:30 - Bókasafn Kópavogs

Tala og spila

Talar þú smá íslensku og vilt æfa þig? Komdu að spila og tala íslensku á aðalsafni Bókasafns Kópavogs, alla laugardaga frá 11:30-13:00 Kaffi og kósý, kostar ekkert. Velkomin! Hvetjum sérstaklega fjölskyldur til að koma saman og æfa sig í íslensku yfir skemmtilegu spili. Hentar fyrir fullorðna og öll börn sem hafa eirð í sér til að spila. Viðburðaröðin Tala og spila er styrkt af Menningar- og mannlífsnefnd. Español Hablas un poco de islandés y te gustaría practicar? Ven a jugar cartas, tablas y charlar en islandés a la biblioteca principal de Kopavogur, cada sábado 11:30-13:00. Café, ambiente acogedor y entrada gratuita. Adecuado para adultos y niños que pueden concentrarse a jugar de tablas. Bienvenidos! Esta es una serie de eventos financiados en colaboración con Menningar- og mannlífsnefnd. English Do you speak a little Icelandic and want to practice? Come and play card- or board-games and talk Icelandic at the Kopavogur Library, main branch, every Saturday from 11:30-13:00 Coffee and cosy, free. Welcome! We especially want to encourage families to come together and practice Icelandic over a fun game. The event is suitable for grown-ups and children that are able to concentrate on board-games.  Tala og spila is funded by Menningar- og mannlífsnefnd. Polski Czy mówisz trochę po islandzku? Przyjdź pograć w karty albo gry planszowe i mów po islandzku w bibliotece w Kópavogur każdej soboty 11:30-13:00. Kawa i miły czas bezpłatnie. Zapraszamy! Pусский Если вы уже говорите немного по-исландски и хотите заговорить еще лучше, то приходите практиковать язык и играть в игры на исландском языке в библиотеку Копавогура каждую субботу с 11:30 до 13:00. Кофе и уют и все бесплатно. Добро пожаловать!
24.01.2026 kl. 20:00 - Gerðarsafn

Rave reif performans

Gjörningar, dj-sett og lokahóf! ☆ Safnið verður í bleikum rave-búningi þann 24. janúar! ☆ Verið velkomin á gjörningakvöld og danspartý á lokahófi Skúlptúr Skúlptúr Performans í Gerðarsafni.Listamenn sýningarinnar Skúlptúr skúlptúr performans fremja gjörninga.Síðan færum við okkur á neðri hæðina þar sem verður dansað við plötusnúning á glóandi bleiku dansgólfi. Komdu eins og þú vilt vera.Opnaðu hjarta þitt.Hreyfðu líkamann.Englar og uppreisnarmenn velkomnir!Bættu þér í ljúfa kaosklúbbinn! .𖥔 ݁ ˖ ᯓ★.𖥔 ݁ ˖ ✦ ‧₊˚ ⋅.𖥔 ݁ ˖ ✦ ‧₊˚ ⋅˙⋆✮ GJÖRNINGARThe Post Performance Blues BandStyrmir ÖrnCurro Rodriguez DJ-SETTMelerito de Jeré8228 DYRNAR OPNA: 19:55Ókeypis aðgangurÖll velkomin Opið á Króniku-barnumPlakat og hönnun: Studio studio ☆ ☆ ☆ ☆ Viðburðurinn er hluti af Skúlptúr skúlptúr performans og markar lok sýningarinnar.Sýningarstjóri er Jo Pawlowskx.
24.01.2026 kl. 13:00 - Bókasafn Kópavogs

Ljóðakistan

Ljóðakistan, lifandi söngstund fyrir börn og fjölskyldur. Athugið að viðburðurin fer fram kl. 13 og endurtekinn kl. 14 og tekur um það bil 45 mínútur í hvort sinn. Á Dögum ljóðsins bjóðum við börnum og fjölskyldum þeirra í hlýlegt og leikandi ferðalag inn í heim Ljóðakistunnar á Bókasafni Kópavogs. Við fylgjumst með fuglinum Ljóði og hagamúsinni Lagi í ævintýraferð í leit að sínum uppáhalds vísum og syngjum valdar vísur úr Ljóðakistunni. Í gegnum söng, hreyfingu og samveru eru börnin leidd inn í heim ljóða, myndlist og ímyndunarafls. Ljóðakistan er safn tuttugu fallegra, handteiknaðra spjalda með klassískum íslenskum vísum. Á framhliðinni hitta börnin Ljóð og Lag sem leiða þau í gegnum efnið á leikandi og hlýlegan hátt og á bakhliðinni er texti vísunnar. Þannig hvetur Ljóðakistan til söngs, lesturs og dýrmætrar samveru milli kynslóða. Ljóð og Lag er íslenskt menningarverkefni sem sameinar list, sögur, leiki, ljóð og tónlist. Í heimi þar sem hraði og gervigreind ráða ríkjum skapar verkefnið rými fyrir ró, sköpun og tengsl og stendur vörð um það sem við megum ekki missa: Tunguna, menninguna og mannleg tengsl.
Fleiri viðburðir