Kópavogur verður Bókavogur

Opnunarhátíð Kópavogs verður 14.mars í Bókasafni Kópavogs.
Opnunarhátíð Kópavogs verður 14.mars í Bókasafni Kópavogs.

Kópavogsbær stendur dagana 14.–20. mars fyrir sameiginlegu lestrarátaki undir heitinu: Bókavogur – þar sem fjölskyldan les saman.

Opnunarhátíð Bókavogs verður haldin 14.mars á Bókasafni Kópavogs, aðalsafni. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri setur Bókavog og verður boðið upp á skemmtilega dagskrá í safninu milli tvö og fjögur. Þá verður skrímslasmiðja í Lindasafni sama dag.

Markmið Bókavogs er að efla lestraráhuga, styrkja læsi í víðum skilningi og skapa jákvæða upplifun í kringum bækur og lestur fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur í öllum hverfum bæjarins.

Til þessa að lestrarátakið skili sem bestum árangri munu leik- og grunnskólar, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar, íþróttahús og bókasöfn taka þátt með dagskrá sem stendur í mars með megináherslu á 14.-20.mars.

Dagskrá opnunarhátíðar

Kl. 14.00-14.25 Gunnar Helgason rithöfundur les upp úr nokkrum af uppáhalds bókunum sínum og gefur áheyrendum nasaþefinn af næstu bók sem hann er með í smíðum!
Kl. 14.25 Ásdís Kristjánsdóttir setur Bókavog formlega.
Kl. 14.30-16.00 Svakalega sögusmiðjan – Blær Guðmundsdóttir og Eva Rún Þorbergsdóttir
Kl. 15.00-15.45 Fjársjóðskista Astridar Lindgren: Þórunn Arna Kristjánsdótir leikkona leikles sumar af þekktustu sögum Astridar Lindgren.

Fjölbreytt verkefni og dagskrá Bókavogs mynda lifandi og skapandi lestrarhátíð um allan Kópavog, þar sem lestur er gerður að sameiginlegri upplifun barna, ungmenna, fjölskyldna og starfsfólks. Með Bókavogi er lögð áhersla á að gera lestur að gleðigjafa, samverustund og uppsprettu nýrra hugmynda í samfélaginu.