Lokað er fyrir kalt vatn í stórum hluta Kópavogs 27.-28. október.
Fyrirhuguð kaldavatnslokun 3.-4. nóvember frestast vegna seinkunar á afhendingu vatnsveitubúnaðar.
Um lokunina:
Vegna framkvæmda við Arnarnesveg þarf að loka fyrir rennsli á köldu vatni í Lindahverfi, Smárahverfi, Digranesi og Kársnesi.
Meira um lokun:
- Lokunin er vegna vinnu við breytingar á stofnlögn og nær hún sem fyrr segir til Lindahverfis, og alls Kópavogs vestan Reykjanesbrautar (Smára, Digranes, Kársnes) .
- Vinsamlegast athugið að það getur myndast loft í kerfinu eftir að vatni hefur aftur verið hleypt á og það getur verið skynsamlegt að hreinsa síur í vatnsinntökum og blöndunartækjum.
- Góð hugmynd gæti verið að fylla á vatnsflöskur fyrir klukkan 22.00 ef þörf er á vatni fyrir nóttina og setja vatn í fötur fyrir klósett.
- Athugið að þau sem eru með varmaskipta geta lent í því að ekki komi heitt vatn á meðan lokun stendur.
- Eingöngu kemur heitt vatn úr blöndunartækjum og því hætta á að fólk brenni sig ef skrúfað er frá krana.
Neyðarsími vatnsveitu er: 840-2690
