02.11.2025 kl. 20:00 - Salurinn
Vegna fjölda áskoranna munu Bjarni Snæbjörns og Sigga Eyrún snúa aftur í Salinn með tónleikaröðina SÖNGLEIKJASTÆLA. Tónleikaröðin sló í gegn í fyrra og er óður til söngleikjanna þar sem ný og gömul söngleikjatónlist fær að njóta sín í meðförum reyndra söng-leikara ásamt hljómsveit.
Að þessu sinni verða þrennir tónleikar sem teygja sig yfir allan veturinn þar sem hverjir tónleikar eru með ólíka nálgun á formið.
2. nóvember: Nýstirnið Salka Gústafsdóttir og þjóðargersemin Jóhann Sigurðarson koma sem gestasöngvarar og flytja sín uppáhalds söngleikjalög.7. febrúar: Sprúðlandi fjölskyldutónleikar um miðjan dag þar sem börn á öllum aldri fá að syngja með.25. apríl: Sprengju-tónleikar með Söngleikjakórnum Viðlag.
SMELLTU HÉR TIL AÐ KAUPA ÁSKRIFT Á ALLA ÞRJÁ TÓNLEIKANA Á EINSTÖKU TILBOÐI
Sigga Eyrún og Bjarni Snæbjörnsson eru ástríðufullir söng-leikarar. Samstarf þeirra hófst á Reykjavík Pride árið 2008 með söngleikjaparinu Viggó og Víólettu. Síðan þá hafa þau lagt hjarta og sál í söngleikjaformið og skemmt landanum á sviðum leikhúsanna, á árshátíðum, í afmælum og víðar. Meðal söngleikja sem þau hafa tekið þátt í eru: Vesalingarnir, Mary Poppins, Kardemommubærinn, Sem á himni, Slá í gegn, Ronja Ræningjadóttir, Jesus Christ Superstar, Frost og Góðan daginn, faggi.
Hljómsveitin er sem fyrr skipuð okkar fremsta tónlistarfólki:
Karl Olgeirsson: hljómsveitarstjóri spilar á píanó, hljómborð, harmonikku o.fl.Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir á trommur/slagverkAndri Ólafsson á bassa
12.03.2026 kl. 10:00 - Bókasafn Kópavogs
Kristín Flygenring verður með fræðslu um svefn ungra barna. Hún mun fjalla um góðar svefnvenjur, daglúra, háttatíma, næturvaknanir og fleira sem bætir svefn ungra barna.
Kristín Flygenring er sérfræðingur í barnahjúkrun og starfar á göngudeild barna með svefnvanda á Barnaspítala Hringsins. Hún heldur úti vefsíðunni Svefnráðgjöf.is ásamt instagram síðu með fræðslu um svefn fyrir foreldra.
Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu.
Fylgist með í Facebook-hópnum Foreldramorgnar | Bókasafn Kópavogs.
Ókeypis aðgangur og öll velkomin.
12.03.2026 kl. 20:30 - Salurinn
Hin lífsseiga spjalltónleikaröð Jóns Ólafssonar, Af fingrum fram, heldur ótrauð áfram inn í sextánda starfsvetur sinn í Salnum.
Krúner – og kalypsókóngurinn sjálfur, Bogomil Font, verður í slagtogi með Sigtryggi á þessum tónleikum og morgunljóst að eitthvað verður dillað sér í þægilegum sætum Salarins. Sigtryggur Baldursson á glæstan feril að baki sem trymbill í hljómsveitum eins og Þeyr, Kukl og Sykurmolunum og stökk svo fullskapaður dægurlagasöngvari með Hljómsveit Konráðs Bé áður en hann stofnaði Milljónamæringana sem sérhæfir sig í suðuramerískri tónlist. Það verður því í mörg horn að líta þegar þessi frábæri sagnamaður og einstaka séntilmenni verður tekinn á beinið af annars geðþekkum gestgjafanum, Jóni Ólafssyni.
13.03.2026 kl. 11:00 - Bókasafn Kópavogs
Get Together meet-ups will be held at the Library in Kópavogur, on the first floor in the Tilraunastofa - meeting room. The meet-ups are international meetings open to refugees, asylum-seekers, immigrants, and anyone seeking companionship. Whether you're a family or an individual, you're welcome to join us.
Each week, we gather and do relaxing activities like painting, weaving, crafting, and more. It's all about getting together, making new friends, and sharing stories in a warm, supportive space.Get Together meet-ups are a collaboration between GETA aid organization and the Library in Kópavogur.We offer free coffee and treats for everyone!
These meet ups are sponsored by Vinnumálastofnun.
Get Together heldur alþjóðlegan fjölskyldu- og vinahitting á Bókasafni Kópavogs, á fyrstu hæð í Tilraunastofunni. Þetta er alþjóðlegur hittingur fyrir flóttafólk, hælisleitendur, innflytjendur og öll sem vilja félagsskap.Viðburðurinn er bæði fyrir fjölskyldur og einstaklinga.
Í hverri viku munum við hittast og gera eitthvað skemmtilegt saman eins og að mála, prjóna, föndra o.fl. Í Get together hittum við nýja vini og deilum sögum okkar í þægilegu og öruggu umhverfi.
Get Together er samstarfsverkefni milli GETA hjálparsamtök og Bókasafn Kópavogs.
Við munum bjóða upp á kaffi og með því!
Þessi viðburður er styrktur af Vinnumálastofnun.
13.03.2026 kl. 20:00 - Salurinn
Bæjarlistamaður Kópavogs, Sigríður Beinteinsdóttir, verður með glæsilega ferilstónleika í Salnum í mars en það seldist upp á fyrstu tónleikana á mettíma.
Aukatónleikar verða því haldnir þann 13. mars og fara í sölu föstudaginn 16. janúar kl. 12:00!
Ekki missa af þessu!
Sigga er löngu orðin þjóðþekkt og spannar ferillinn hennar vel yfir 40 ár, lögin á ferlinum orðin næstum óteljandi. Sigga hefur gefið út margar sóló plötur á sínum ferli og lögin orðin mörg. Allar sólóplötur Siggu hafa náð gullplötu sölu og nokkrar þeirra platínu sölu. Lög eins og Brú yfir boðaföllin, Til eru fræ, Þakklæti, Ég og þú, Skýið ofl. eru af sólóplötum Siggu og lög sem flestir ættu að þekkja. Ekki má gleyma Stjórninni sem hefur verið þungamiðjan í söngferli Siggu og lög eins og Ég lifi í voninni, Ég fæ aldrei nóg af þér, Við eigum samleið og fleiri lög sem hafa kætt landann.
Ekki má gleyma Eurovision þátttöku Siggu en hún tók þátt með Grétari Örvars og Stjórninni 1990 með lagið Eitt lag enn, 1992 fór Sigga og Stjórnin aftur með lagið Nei eða Já ásamt Sigrúnu Evu og 1994 fór Sigga sem sóló artisti með lagið Nætur.
Þetta verður skemmtileg kvöldstund þar sem Sigga ásamt hljómsveit fer yfir skemmtilegan feril og syngur öll helstu lögin ásamt því að segja skemmtilegar sögur af sjálfri sér og frá ferlinum. Þetta er kvöld fyrir alla aðdáendur Siggu.
Ekki láta þennan einstaka viðburð fram hjá þér fara.
14.03.2026 kl. 20:30 - Salurinn
Ðe Lónlí blú bojs er hljómsveit sem stofnuð var upp úr Hljómum síðla árs 1974, reyndar mætti með góðum rökum benda á að þetta sé sama sveitin enda skipuð sama mannskap. Tónlistaráherslur voru þó hvorki hinar sömu, né nafnið og því varla við hæfi að segja þær sömu sveitina.Upphafið má þó rekja til þess að Hljómaliðar vildu breyta um stíl, spila léttari tónlist og brugðu því á það ráð að dulbúa sveitina sem eins konar leynisveitÁ þessum tónleikum ætlum við að fara aftur til áranna 1974 - 1976 og leyfa ykkur að heyra öll vinsælustu lög þeirra.Lög eins og:
Harðsnúna HannaHeim í BúðardalMamma grétOg mörg mörg fleiri
Flytjendur
Hljómsveitarstjóri Magnús Þór SveinssonÚtsetningar Magnús Þór SveinssonSögumaður Valgerður Erlingsdóttir
Hljómsveit kvöldsins
Eiríkur Hilmisson kassagítarFriðrik Örn bassiMagnús Þór hljómborðRagnar Már saxófónnSiggi Ingi trommurYngvi Rafn rafmagnsgítar
Söngvarar kvöldsins
Daníel E. ArnarssonGísli MagnaHreindís Ylva Garðarsdóttir HolmKristján GíslasonSigurlaug Vordís EysteinsdóttirSigurður Dagbjartsson
Bakraddir
Íris Lind VerudóttirRakel Pálsdóttir
Hugmynd- viðburðastjórnun og lagaval
Hulda Jónasdóttir
14.03.2026 kl. 11:30 - Bókasafn Kópavogs
Talar þú smá íslensku og vilt æfa þig?
Komdu að spila og tala íslensku á aðalsafni Bókasafns Kópavogs, alla laugardaga frá 11:30-13:00
Kaffi og kósý, kostar ekkert. Velkomin! Hvetjum sérstaklega fjölskyldur til að koma saman og æfa sig í íslensku yfir skemmtilegu spili. Hentar fyrir fullorðna og öll börn sem hafa eirð í sér til að spila.
Viðburðaröðin Tala og spila er styrkt af Menningar- og mannlífsnefnd.
Español
Hablas un poco de islandés y te gustaría practicar?
Ven a jugar cartas, tablas y charlar en islandés a la biblioteca principal de Kopavogur, cada sábado 11:30-13:00. Café, ambiente acogedor y entrada gratuita. Adecuado para adultos y niños que pueden concentrarse a jugar de tablas. Bienvenidos!
Esta es una serie de eventos financiados en colaboración con Menningar- og mannlífsnefnd.
English
Do you speak a little Icelandic and want to practice?
Come and play card- or board-games and talk Icelandic at the Kopavogur Library, main branch, every Saturday from 11:30-13:00
Coffee and cosy, free. Welcome! We especially want to encourage families to come together and practice Icelandic over a fun game. The event is suitable for grown-ups and children that are able to concentrate on board-games.
Tala og spila is funded by Menningar- og mannlífsnefnd.
Polski
Czy mówisz trochę po islandzku? Przyjdź pograć w karty albo gry planszowe i mów po islandzku w bibliotece w Kópavogur każdej soboty 11:30-13:00. Kawa i miły czas bezpłatnie. Zapraszamy!
Pусский
Если вы уже говорите немного по-исландски и хотите заговорить еще лучше, то приходите практиковать язык и играть в игры на исландском языке в библиотеку Копавогура каждую субботу с 11:30 до 13:00. Кофе и уют и все бесплатно. Добро пожаловать!
14.03.2026 kl. 13:00 - Bókasafn Kópavogs
Fjölskyldustund á Laugardögum
Skrímslasmiðja
Í smiðjunni gefum við ímyndunaraflinu lausan tauminn og sköpum okkar eigin skrímsli og furðuverur. Það er Alexandra Dögg Steinþórsdóttir, rit- og myndhöfundur sem leiðbeinir og eru börn sérstaklega hvött til að skapa skrímsli út frá eigin áhuga og reynslu og skoða hvernig ímyndunaraflið getur breytt hversdagslegum fyrirbærum í furðuverur
14.03.2026 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs
Öll fjölskyldan er boðin hjartanlega velkomin í Bókasafn Kópavogs laugardaginn 14. mars kl. 14-16 á skemmtilega dagskrá sem tengist bókum og bóklestri. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Viðburðurinn er opnunarhátíð Bókavogs sem er lestrarátak sem fram fer í Kópavogi vikuna 14. -20. mars. Fram koma Gunnar Helgason rithöfundur, Þórunn Arna leikkona opnar fjársjóðskistu Astridar Lindgren og í Svakalegu sögusmiðjunni lærum við að búa til sögupersónur og söguþráð.
Dagskrá:
Kl. 14:00-14:25 Gunnar Helgason rithöfundur les upp úr nokkrum af uppáhalds bókunum sínum og gefur áheyrendum nasaþefinn af næstu bók sem hann er með í smíðum!Kl. 14:25 Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri setur Bókavog formlega.Kl. 14:30-16:00 Svakalega sögusmiðjan – Blær Guðmundsdóttir og Eva Rún ÞorgeirsdóttirKl. 15:00-15:45 Fjársjóðskista Astridar Lindgren: Þórunn Arna Kristjánsdótir leikkona leikles sumar af þekktustu sögum Astridar Lindgren.
15.03.2026 kl. 16:00 - Salurinn
VOX DOMINI er eina söngkeppni sinnar tegundar á Íslandi og er haldin annað hvert ár. Úrslitakeppnin er opin fyrir áheyrendur og fer næst fram í Salnum í Kópavogi 15. mars 2026. Efnisskráin sem þátttakendur geta valið úr er fjölbreytt og það er bæði spennandi og gaman að fá tækifæri til þess að sjá söngvara framtíðarinnar flytja ljóð, aríur og lög eftir íslensk tónskáld. Tónskáld VOX DOMINI 2026 er Jón Ásgeirsson.
Söngkeppnin VOX DOMINI fer fram helgina 14. til 15. mars. VOX DOMINI er eina söngkeppni sinnar tegundar á Íslandi og er haldin annað hvert ár. Hún er ætluð lengra komnum nemendum í klassískum söng og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á söngferlinum. Keppt er í þremur flokkum og þrenn verðlaun veitt í hverjum flokki ásamt því að einn keppandi hlýtur útnefninguna Rödd ársins. Einnig eru veitt áhorfendaverðlaun. Úrslitakeppnin býður upp á fjölbreytta efnisskrá fyrir áheyrendur þar sem söngvarar framtíðarinnar, flytja ljóð, aríur og lög eftir tónskáld ársins.
Keppnin er haldin á vegum Félags íslenskra söngkennara.
//English//
VOX DOMINI is the only singing competition of its kind in Iceland and is held every other year. The final round will take place on March 15th in Salurinn, offering audiences a diverse and rich program, where the singers of tomorrow perform poems, arias, and songs by the selected Composer of the Year. The VOX DOMINI Composer of the Year 2026 is Jón Ásgeirsson.
The competition will be held over the weekend of March 14th–15th, with the final round taking place on the second day in Salurinn. VOX DOMINI is designed for advanced students of classical singing as well as those taking their first steps towards a professional singing career. Participants compete in three categories, with three prizes awarded in each, and one participant receives the honorary title Voice of the Year. Additionally, the audience of the final round selects their favorite singer, who is awarded the Audience Prize.
Hosted by the Icelandic Association of Singing Teachers, VOX DOMINI offers a unique opportunity to experience future voices in classical music, performing poetry, arias, and pieces by this year’s featured composer, Jón Ásgeirsson..
16.03.2026 kl. 15:00 - Bókasafn Kópavogs
Ertu byrjandi eða með áralanga reynslu af bróderíi? Viltu kannski rifja upp gamla takta og hitta aðra sem deila sama áhuga?
Þá gæti Bróderíklúbburinn hentað fyrir þig.
Bróderíklúbburinn hittist á mánudögum á Lindasafni í Núpalind 7 kl. 15:00.
Öll velkomin og heitt á könnunni.
17.03.2026 kl. 10:00 - Bókasafn Kópavogs
Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman hittist alla þriðjudaga á 2. hæð aðalsafns kl. 10. Heitt á könnunni og öll velkomin!
Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is
Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman | Bókasafn Kópavogs