Íbúar Kópavogs geta nú skráð boðgreiðslur rafrænt

Íbúar Kópavogs geta nú skráð boðgreiðslur rafrænt
Íbúar Kópavogs geta nú skráð boðgreiðslur rafrænt

Nú geta íbúar Kópavogs skráð boðgreiðslur rafrænt hjá Kópavogsbæ. Með boðgreiðslum er hægt að skrá greiðslukort og setja gjöld í sjálfvirka greiðslu, í stað þess að greiða hverja kröfu sérstaklega þegar hún berst.

Markmiðið er að bæta þjónustu með einfaldari sjálfsafgreiðslu sem er aðgengileg þegar hentar, auka öryggi og draga úr villuhættu með færri handvirkum skrefum. Sjálfsafgreiðsla boðgreiðslna var jafnframt ein af þeim hugmyndum sem kom fram og naut stuðnings í íbúasamráði Kópavogsbæjar um stafræna þjónustu.

Áður var hægt að óska eftir boðgreiðslum, en þá þurfti að hafa samband við þjónustuver og skráning fór fram með símtali við innheimtudeild.

Fara inn á Minn Kópavog og skrá boðgreiðslur

 

Hluti af Minn Kópavogur

Boðgreiðslur eru fyrsti áfangi innleiðingar á Minn Kópavogur. Minn Kópavogur er auðkenningarlausn sem sameinar aðgang að ólíkum stafrænum þjónustum Kópavogsbæjar sem krefjast innskráningar, óháð því hvaða kerfi er notað á bak við þjónustuna.

Eldri þjónustugátt Kópavogsbæjar er aðgengileg í gegnum Minn Kópavogur, en stefnt er að því að Minn Kópavogur taki smám saman við hlutverki þjónustugáttarinnar.

Minn Kópavogur er í þróun hjá skrifstofu umbóta og þróunar og verður lausnin byggð upp í áföngum með nýjum þjónustum og aukinni virkni og viðmótsforritun.