Markmiðið með vefnum er að einfalda aðgengi að frístundastarfi og bæta yfirsýn fyrir foreldra og forráðamenn og þá sem vilja sækja frístundastarf.

Í stað þess að leita á mörgum mismunandi vefsíðum er framboðið nú aðgengilegt í einni miðlægri gátt, með áreiðanlegum og reglulega uppfærðum upplýsingum um það sem er í boði.

Börn og ungmenni sækja oft tómstundir þvert á bæjarmörk og með frístund.is er auðvelt að sjá allt framboð á höfuðborgarsvæðinu, hvort sem starfið er í Kópavogi eða í nágrannasveitarfélögum. Þetta eykur yfirsýn, einfaldar val á tómstundum og stuðlar að jafnræði í aðgengi að íþrótta- og tómstundastarfi.

Frístund.is er samstarfsverkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.