Bæjarráð

2988. fundur 06. febrúar 2020 kl. 08:15 - 10:17 á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Fundinn sátu:
  • Birkir Jón Jónsson formaður
  • Karen E. Halldórsdóttir varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.1911110 - Mælkó - Innanhúss hugbúnaðarþróun

Kynning á stöðu þróunar á hugbúnaðinum Mælkó, tengingu við framfaravogina og frekari möguleika.
Kynning.

Gestir

  • Ingimar Þór Friðriksson deildarstjóri UT deildar - mæting: 08:15

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.1905121 - Mánaðarskýrslur 2019

Frá fjármálastjóra, lagðar fram mánaðarskýrslur fyrir september, október, nóvember og desember.
Lagt fram.

Gestir

  • Ingólfur Arnarson fjármálastjóri - mæting: 08:55

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.2001260 - Málefni skíðasvæðanna

Frá fjármálastjóra, dags. 4. febrúar, lögð fram umsögn um viðauka við samkomulag um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.2001564 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa Pírata um erindisbréf forsætisnefndar.

Frá lögfræðideild, dags. 31. janúar, lagt fram svar við fyrirspurn í bæjarráði þann 23. janúar sl. um hvenær erindisbréf forsætisnefndar hefði verið samþykkt.
Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.1912425 - Fyrirspurn frá Pírötum um íþróttaráð

Frá starfsmanni íþróttadeildar, dags. 3. febrúar, lagt fram svar við fyrirspurn í bæjarráði þann 19. desember sl. um formennsku í íþróttaráði.
Lagt fram.
Sigurbjörg E. Egildóttir vék af fundi kl. 9:35

Ýmis erindi

6.2001874 - Hafnarbraut 9 og 13-15. Beiðni um lækkun gatnagerðargjalda

Frá BK Legal, dags. 30. janúar, lagt fram erindi f.h. Kársnesbyggðar ehf. um lækkun gatnagerðargjalda vegna Hafnarbrautar 9 og Hafnarbrautar 13-15.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarlögmanns

Ýmis erindi

7.1902211 - Hafnarbraut 4-8. Óskað eftir lækkun gatnagerðargjalda

Frá BK Legal, dags. 29. janúar, lagt fram erindi um endurupptöku á beiðni Hafnarbyggðar ehf. um lækkun gatnagerðargjalda vegna Hafnarbrautar 4-8.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarlögmanns

Ýmis erindi

8.2001895 - Til umsagnar: Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 35/1970, um Kristnisjóð o.fl., með síðari breytingum (ókeypis lóðir), 50. mál

Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþings, dags. 30. janúar, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um Kristnisjóð (ókeypis lóðir), þingmannafrumvarp.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns

Ýmis erindi

9.2001889 - Til umsagnar: Tillaga til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld, 64. mál.

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 30. janúar, lögð fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld, þingmannatillaga.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns

Ýmis erindi

10.2001808 - Útboðsgögn vegna framkvæmda á skíðasvæðum frá samstarfsnefnd skíðasvæðanna

Frá samstarfsnefnd skíðasvæðanna, dags. 28. janúar, lögð fram til upplýsinga útboðsgögn vegna framkvæmda á skíðasvæðum.
Lagt fram.

Fundargerð

11.2001025F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 284. fundur frá 30.01.2020

Fundargerð í 9 liðum.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

12.2001013F - Lista- og menningarráð - 109. fundur frá 21.01.2020

Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13.2001018F - Lista- og menningarráð - 110. fundur frá 24.01.2020

Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.

Fundargerð

14.2001005F - Skipulagsráð - 68. fundur frá 03.02.2020

Fundargerð í 15 liðum.
Lagt fram.
  • 14.4 2001204 Smárinn vestan Reykjanesbrautar. Bílastæðahús. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram tillaga ASK arkitekta að þriggja hæða bílastæðahúsi fyrir 310 bíla norðan Smáralindar að Hagasmára 1. Í tillögunni felst jafnframt að lóðamörk Hagasmára 1 breytist við aðkomugötu frá Fífuhvammsvegi að Smáralind og aðkomugatan hliðrast að hluta til vesturs næst Smáralind og fyrirkomulag bílastæða og gatnatengingar næst norðurhlið Smáralindar breytast. Uppdrættir í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 28. janúar 2019.
    Ennfremur lagt fram erindi Helga S. Gunnarssonar, forstjóra Regins hf. dags. 24. janúar 2020 varðandi fyrirhugað bílastæðishús norðan Smáralindar.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 68 Skipulagsráð samþykkir að framlögð tillaga verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 14.8 2001835 Lundur 22. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram tillaga Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 24. janúar 2020 fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina Lund 22. Í breytingunni felst að íbúð á 3. hæð hússins er stækkuð til suðurs í átt að Nýbýlavegi. Uppdrættir ásamt skýringarmyndum í mkv. 1:100 dags. 24. janúar 2020. Niðurstaða Skipulagsráð - 68 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 14.9 2001897 Naustavör 44-50. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram erindi Gunnars Páls Kristinssonar arkitekts dags. 16. október 2018 fh. lóðarhafa Naustavarar 44-50 þar sem óskað er eftir að stækka íbúð á 4. hæð þannig að stofa stækkar um 10 m2 og þaksvalir stækka til austurs. Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. í janúar 2020 ásamt skýringarmyndum. Niðurstaða Skipulagsráð - 68 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 14.10 2001898 Askalind 1. Breytt deiliskipulag. Fyrirspurn.
    Lögð fram fyrirspurn Jóns Hrafns Hlöðverssonar arkitekts dags. 28. janúar 2020 fh. lóðarhafa Askalindar 1. Í fyrirspurninni er óskað eftir leyfi til að hækka áður samþykkta viðbyggingu um eina hæð, viðbótar byggingargagn er áætlað um 180 m2. Uppdrættir í mkv. 1:200, 1:500 og 1:1000 dags. 30. janúar 2020. Niðurstaða Skipulagsráð - 68 Neikvætt. Skipulagsráð bendir lóðarhafa á að sambærileg tillaga með þriggja hæða viðbyggingu við austurhlið Askalindar 1 var grenndarkynnt árið 2015. Í kjölfar athugasemda og ábendinga er bárust á kynningartíma var að hálfu lóðarhafa lögð fram breytt tillaga þar sem fallið var frá þriðju hæðinni til að koma til móts við þær athugasemdir og ábendingar sem bárust. Var sú breytta tillaga lögð fyrir skipulagsráð 21. mars 2016 sem samþykkti tillöguna. Tillagan var samþykkt í bæjarstjórn 12. apríl 2016 og tók hún gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda 25. apríl 2016. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Júlíus Hafstein situr hjá við afgreiðslu málsins.
    Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 14.13 19081140 Hlíðarvegur 31 og 31a. Kynning á byggingarleyfi.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Jóns H. Hlöðverssonar arkitekts dags. 9. ágúst 2019 fh. lóðarhafa Hlíðarvegar 31 þar sem óskað er eftir að skipta lóðinni upp og reisa nýtt íbúðarhús á nýrri lóð, Hlíðarvegi 31a. Um er að ræða byggingu á einni hæð án bílskúrs og gert ráð fyrir þremur bílastæðum á lóð. Ný lóð væri 466 m2 og íbúðarhúsið 128,3 m2, nýtingarhlutfall 0,28. Á fundi skipulagsráðs 4. nóvember 2019 samþykkti skipulagsráð með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum við Hlíðarveg 28, 29, 30, 31, 32, 33, 34, 35, 36, 37, 38, 39, 40 og 72, Hrauntungu 48, 50, 52 og Grænutungu 8. Kynningartíma lauk 10. desember 2019. Ábendingar og athugasemdir bárust á kynningartímanum. Á fundi skipulagsráðs 16. desember 2019 var afgreiðslu málsins frestað og vísað til umsagnar skipulags- og byggingardeildar. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 28. janúar 2020. Niðurstaða Skipulagsráð - 68 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

15.2001888 - Fundargerð 91. fundar svæðisskipulagsnefndar frá 24.02.2020

Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram

Erindi frá bæjarfulltrúum

16.2001793 - Fyrirspurn Theódóru S. Þorsteinsdóttur um fjárfestingaráætlun nýrrar gas- og jarðgerðarstöðvar Sorpu

Lögð fram fjárfestingaráætlun fyrir byggingu nýrrar gas- og jarðgerðarstöðvar Sorpu sem óskað var eftir á síðasta fundi bæjarráðs.
Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

17.2001574 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa BF Viðsreisnar um endurmat á hlutverki nefnda og ráða varðandi stefnumótun innan málaflokka

Frá Theodóru S. Þorsteinsdóttur bæjarfulltrúa BF Viðreisnar, óskað er eftir endurmat á því hvort nefndir og ráð séu að vinna eftir því verklagi sem kemur fram í erindisbréfum og þeim markmiðum sem lagt var upp með um ríkara stefnumótunarhlutverk kjörinna fulltrúa og ráðsmanna í ráðunum og að mat verði lagt á hvort þörf sé á að endurmeta starfshlutfallið. Óskað eftir upplýsingum um hvað búið sé að halda marga stefnumótunarfundi í ráðunum þremur frá því þessi ákvörðun var samþykkt í bæjarstjórn og hvort ráðin séu búin að móta heildarstefnu í málaflokknum og endurskoða aðrar stefnur
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarritara.

Fundi slitið - kl. 10:17.