Bæjarráð

3008. fundur 02. júlí 2020 kl. 08:15 - 12:45 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Helga Hauksdóttir varamaður
  • Karen E. Halldórsdóttir varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Hákon Helgi Leifsson vara áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður
  • Ármann Kristinn Ólafsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá
Samkvæmt 35. gr. laga nr. 138/2011 og 32. gr. samþykktar Kópavogsbæjar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella í sumarleyfi hennar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.2003249 - Mánaðarskýrslur 2020

Frá bæjarritara, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir starfsemi í maí.
Lagt fram.

Gestir

  • Ingólfur Arnarson fjármálastjóri - mæting: 08:15

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.20051187 - Arnarskóli-Reglur um innritun og útskrift

Frá menntaráði, lagðar fram endurskoðaðar reglur um innritun og útskrift nemenda fyrir Arnarskóla. Bæjarstjórn vísaði reglunum til seinni umræðu á fundi sínum þann 23. júní sl.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðar reglur um innritun og útskrift nemenda fyrir Arnarskóla.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.1812353 - Kársnesskóli við Skólagerði - Hönnun

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 30. júní, lagt fram erindi um stöðu framkvæmda og hönnunar við nýbyggingu Kársnesskóla við Skólagerði.
Lagt fram.

Fundarhlé hófst kl. 11:38, fundi fram haldið kl. 11:47.

Gestir

  • Steingrímur Hauksson sviðsstjóri umhverfissviðs - mæting: 11:20

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.20061325 - Slökkvitæki og brunaslöngur, þjónusta og úttektir.

Frá sviðsstjóra umhverfisviðs, dags. 29. júní, lagðar fram niðurstöður útboðs í slökkvitæki, brunatæki, þjónustu og úttektir fyrri allar stofnanir Kópavogsbæjar. Lagt er til að samið verði við lægstbjóðanda Öryggismiðstöðina.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Öryggismiðstöðina.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.20061322 - Öryggisviðvörunarkerfi, fjarvöktun og útkallsþjónusta.

Frá sviðsstjóra umhverfisviðs, dags. 29. júní, lagðar fram niðurstöður útboðs í öryggisviðvörunarkerfi, fjarvöktun og útkallsþjónustu vegna allra stofnana Kópavogsbæjar. Lagt er til að samið verði við lægstbjóðanda Securitas.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Securitas.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

6.20061324 - Öryggisviðvörunarkerfi, þjónusta og úttektir.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 29. júní, lagðar fram niðurstöður útboðs í öryggisviðvörunarkerfi, þjónustu og úttektir fyrir allar stofnanir Kópavogbæjar. Lagt er til að samið verði við lægstbjóðanda Securitas.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Securitas.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

7.2006389 - Dalsmári 7. Breiðablik, ungmennafélag. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 8. júní, þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn Breiðabliks, kt. 480169-0699, um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Dalsmára 7, 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn sem umsagnaraðili staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð staðfestir með fimm atkvæðum að afgreiðslutími og staðsetning staðar sé innan marka reglna og skipulags sveitarfélagsins.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

8.20061052 - Urðahvarf 8. Lyfjabúð. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um lyfsöluleyfi.

Frá lögfræðideild, dags. 30. júní, lögð fram umsögn um lyfsöluleyfi fyrir nýja lyfjabúð að Urðarhvarfi 8 í Kópavogi að beiðni Lyfjastofnunar.
Bæjarráð veitir með fimm akvæðum jákvæða umsögn um umsókn um lyfsöluleyfi að Urðarhvarfi 8.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

9.2006222 - Hlíðarsmári 8, Austurlandahraðlestin ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um endurnýjun á rekstrarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 16. júní, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 26. júní, þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn Austurlandahraðlestarinnar ehf., kt. 520503-3230, um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn sem umsagnaraðili staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð staðfestir með fimm atkvæðum að afgreiðslutími og staðsetning staðar sé innan marka reglna og skipulags sveitarfélagsins og veitir jákvæða umsögn.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

10.2003339 - Funalind 2. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Leikfélags Kópavogs um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 890.275,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

11.2003184 - Hamraborg 10. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Soroptimistasambands Íslands um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 145.424,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

12.2002493 - Hamraborg 11. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Rauða krossins um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 476.055,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

13.2003157 - Hlíðarsmári 14. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 477.545,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

14.2004011 - Hlíðarsmári 14. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Lionsumdæmisins á Íslandi um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 702.535,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

15.2006700 - Rjúpnasalir 1. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Lionsklúbbsins Muninn um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 476.055,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

16.2004005 - Sandskeið við Bláfjallaveg. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Svifflugfélags Íslands um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 1.093.660,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

17.2003529 - Víkurhvarf 1. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar RM Heklu um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 1.284.522,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

18.2003529 - Víkurhvarf 1. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Bindindissamtaka IOGT um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 1.284.522,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

19.2002317 - Ögurhvarf 6. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 30. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Áss styrktarfélags um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 6.681.905,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

20.1701668 - Stefnumótun Kópavogsbæjar

Frá verkefnastjóra stefnumótunar, lögð fram til samþykktar tillaga að heimsmarkmiðavísitölu Kópavogs.
Bæjarráð samþykkir að fresta erindinu.

Gestir

  • Jakob Sindri Þórsson sérfr. stjórnsýslusv. - mæting: 08:40
  • Auður Finnbogadóttir verkefnastjóri stefnumótunar - mæting: 08:40
  • Kári S. Friðriksson hagfræðingur - mæting: 08:40

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

21.1701668 - Stefnumótun Kópavogsbæjar

Frá verkefnastjóra stefnumótunar, lögð fram drög að skýrslu OECD um Kópavog.
Lagt fram til kynningar

Gestir

  • Auður Finnbogadóttir verkefnastjóri stefnumótunar - mæting: 09:00
  • Jakob Sindri Þórsson sérfr. stjórnsýslusv. - mæting: 09:00

Ýmis erindi

22.20051001 - Minnkandi starfshlutfall - Atvinnuleysi. Upplýsingar frá Vinnumálastofnun

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 18. júní, lögð fram gögn frá Vinnumálastofnun um fjölda þeirra sem hafa nýtt sér heimild um minnkað starfshlutfall eftir landshlutum.
Lagt fram.

Ýmis erindi

23.20061262 - Tillögur vegna fjármála SORPU bs

Frá Sorpu, dags. 25. júní, lagðar fram tillögur vegna fjármála Sorpu ásamt tillögu að viðauka vegna áætlun um fjármögnun sem vísað er til efnislegrar umræðu og afgreiðslu aðildarsveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu 1 um viðauka við eigendasamkomulag frá 25. október 2013 v. meðhöndlunar úrgangs í Álfsnesi.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu 2 um aðgerðir til að takast á við vanda vegna ófjármagnaðra fjárfestinga Sorpu bs.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun sem felur í sér greiðslur Kópavogsbæjar á árinu 2020 að fjárhæð 81.5 m.kr. verði dregnar af lánalínu bæjarins, sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 24. mars. s.l., vegna samþykktar tillögu 2.

Gestir

  • Helgi Þór Ingason formaður framkvæmdastjóri Sorpu - mæting: 09:30
  • Birkir Jón Jónsson formaður stjórnar Sorpu - mæting: 09:30
  • Birgir Björn Sigurjónsson - mæting: 09:30
  • Páll Guðjónsson - mæting: 09:30

Ýmis erindi

24.2006941 - Vesturvör. Umsókn um lóð undir menningar, afþreyingar, matar og listastarfsemi á Kársnesi

Frá Nature Experiences, dags. 15. júní, lögð fram umsókn um lóð að Vesturvör Kársnesi undir starsfemi tengdri íslenskri náttúru, menningu, listum og mat.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs

Fundargerð

25.2006009F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 293. fundur frá 11.06.2020

Fundargerð í 8 liðum
Bæjarráð staðfestir með fimm atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

Fundargerð

26.2006016F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 294. fundur frá 26.06.2020

Fundargerð í 22 liðum.
Bæjarráð staðfestir með fimm atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

Fundargerð

27.2006008F - Hafnarstjórn - 115. fundur frá 22.06.2020

Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

28.20061349 - Fundargerð 257. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 29.06.2020

Fundargerð í 52 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

29.2006015F - Íþróttaráð - 103. fundur frá 25.06.2020

Fuundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

30.2006010F - Leikskólanefnd - 119. fundur frá 18.06.2020

Fundargerð í 4 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

31.2006921 - Fundargerð 885. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 12.06.2020

Fundargerð í 16 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

32.20061166 - Fundargerð 429. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 22.06.2020

Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

33.20061288 - Fundargerð 24. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 22.06.2020

Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

34.2006006F - Umhverfis- og samgöngunefnd - 129. fundur frá 16.06.2020

Fundargerð í 5. liðum.
Lagt fram.
  • 34.1 19081039 Aðgerð og val á umhverfisviðurkenningum Umhverfis- og samgöngunefndar erindi frá Sigurði Sigurbjörnssyni
    Lögð fram tillaga að fyrirkomulagi umhverfisviðurkenninga 2020. Niðurstaða Umhverfis- og samgöngunefnd - 129 Umhverfis- og samgöngunefnd leggur fram breytingartillögu á tillögu í minnisblaði sem er á þann veg að umhverfisviðurkenningar Kópavogsbæjar 2020 verði afhentar 29. ágúst kl. 14. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir breytingartillögu einróma.

Fundargerðir nefnda

35.2006014F - Velferðarráð - 66. fundur frá 22.06.2020

Fundargerð í 14 liðum.
Lagt fram.
  • 35.8 1912120 Búsetuúrræði fyrir börn með neysluvanda
    Greinargerð deildarstjóra dags. 16.06.2020 ásamt þar til greindum fylgiskjölum lögð fram til afgreiðslu. Niðurstaða Velferðarráð - 66 Velferðarráð samþykkti fyrir sitt leyti kostnað vegna vistunar barns á stuðningsheimili. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
    Niðurstaða Bæjarráð samþykkir að fresta erindinu til næsta fundar.
  • 35.14 2006500 Beiðni um samstarf sveitarfélaga varðandi félagsþjónustu fyrir heyrnarlausa og CODA börn á höfuðborgarsvæðinu
    Erindi Félags heyrnarlausra dags. 18.05.2020 lagt fram til afgreiðslu. Niðurstaða Velferðarráð - 66 Velferðarráð samþykkti fyrir sitt leyti að taka þátt í kostnaði við samstarf sveitarfélaga í þjónustu við heyrnarlausa og börn þeirra. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs. Niðurstaða Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.

Erindi frá bæjarfulltrúum

36.20061346 - Beiðni bæjarfulltrúa Theodóru S. Þorsteinsdóttur um að fá fulltrúa frá heilbrigðisnefnd og slökkviliðinu til að ræða eldvarnir og eftirlit

Bæjarfulltrúi Theodóra S. Þorsteinsdóttir óskar eftir því að fá fulltrúa frá heilbrigðisnefnd sveitarfélagsins ásamt fulltrúa frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu á næsta fund bæjarráðs til að ræða eldvarnir og eftirlit.
Lagt fram.

Bókun bæjarráðs:
Bæjarráð hvetur til samræmdra aðgerða allra hlutaðeigandi yfirvalda og hagaðila er koma að eftirliti og utanumhaldi um búsetu í ófullnægjandi húsnæði. Mikilvægt er að allir leggist á eitt um að öryggi fólks.

Gestir

  • Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri - mæting: 10:30
  • Hörður Þorsteinsson - mæting: 10:30

Erindi frá bæjarfulltrúum

37.20061165 - Ósk bæjarfulltrúa Theodóru S. Þorsteinsdóttur um kynningu á fjárhagsáætlunum Sorpu, ásamt rekstrar- og umhverfisáætlunum.

Bæjarfulltrúi Theodóra S. Þorsteinsdóttir óskar eftir að fá kynningu á fjárhagsáætlunum Sorpu ásamt rekstrar- og umhverfisáætlunum.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 12:45.