Bæjarráð

3027. fundur 10. desember 2020 kl. 08:15 - 10:00 Fjarfundur - Microsoft Teams
Fundinn sátu:
  • Birkir Jón Jónsson formaður
  • Karen E. Halldórsdóttir varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ármann Kristinn Ólafsson bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.2011715 - Leiksvæði í Kópavogi, aðgerðaráætlun.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 30. nóvember, lögð fram drög að aðgerðaráætlun fyrir leiksvæði í Kópavogi skv. greinargerð garðyrkjustjóra dags. 30. nóvember.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa aðgerðaráætlun um endurnýjun leiksvæða í Kópavogi til umsagnar nefnda og ráða bæjarins.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.2012006 - Yfirlit útboða 2021, fyrirhuguð á vegum umhverfissviðs.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 1. desember, lagt fram yfirlit fyrirhugaðra útboða á vegum umhverfissviðs árið 2021.
Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.2009252 - Svæði fyrir Bogfimifélagið.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 4. desember, lögð fram umsögn sviðsstjóra menntasviðs og umhverfissviðs um beiðni Bogfimifélagsins Bogans frá 8. september um æfingaraðstöðu fyrir félagið í Kópavogi.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu að svo stöddu þar sem ekki er gert ráð fyrir verkefninu í fjárhagsáætlun.

Ýmis erindi

4.2012092 - Tilkynning um töku manntals og húsnæðistals árið 2021

Frá Hagstofu Íslands, dags. 27. nóvember, lagt fram erindi um upplýsingagjöf sveitarfélaga vegna fyrirhugaðrar töku manntals og húsnæðistals árið 2021.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarritara.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.2011606 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um umferðarstýringu á höfuðborgarsvæðinu

Frá SSH, lögð fram umsögn um fyrirspurn sem barst á fundi bæjarráðs þann 26. nóvember sl. varðandi umferðarstýringu á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.

Ýmis erindi

6.2012055 - Umferðarljósastýringar á höfuðborgarsvæðinu

Frá SSH, lögð fram skýrsla með niðurstöðum úttektar á umferðarljósastýringum á höfuðborgarsvæðinu ásamt glærukynningu og erindisbréfi samstarfshóps sveitarfélaganna og Vegagerðarinnar um umferðarljósastýringar, sem var til afgreiðslu á stjórnarfundi SSH þann 30. nóvember sl.
Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.

Fundarger?

7.2012007F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 305. fundur frá 04.12.2020

Fundargerð í 10 liðum.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

8.2011022F - Barnaverndarnefnd - 114. fundur frá 02.12.2020

Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fyrir.

Fundargerðir nefnda

9.2012054 - Fundargerð 515. fundar stjórnar SSH frá 30.11.2020

Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

10.2012081 - Fundargerð 386. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 06.11.20

Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.

Fundargerð

11.2011015F - Skipulagsráð - 88. fundur frá 07.12.2020

Fundargerð í 20 liðum.
Lagt fram.
  • 11.2 2007804 Víðigrund 21. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Ingunnar Hafstað arkitekts, dags. 25. september 2020, fh. lóðarhafa Víðigrundar 21 þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi fylgir Víðigrund 21 bílskúrsréttur á lóð við hlið óbyggðar bílgeymslu Víðigrundar 35. Í breytingunni felst að reisa bílgeymslu og kjallara undir hana, samtals 64,4 m2 að stærð við hlið fyrirhugaðrar bílgeymslu Víðigrundar 35. Komið verður fyrir gluggum á austurhlið, þremur á efri hæð bílgeymslunnar og tveimur á kjallara. Íbúðarhúsið að Víðigrund 21 er skráð 130 m2 og eftir breytingu verður íbúðarhúsið ásamt bílskúr og kjallara 196,4 m2. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:200 dags. 25. september 2020. Á fundi skipulagsráðs 5. október 2020 var samþykkt með tilvísan í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Víðigrundar 19, 21, 31, 33, 35, 37 og 39. Kynningartíma lauk 2. desember 2020. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartímanum. Niðurstaða Skipulagsráð - 88 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 11.3 2007805 Víðigrund 35. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram að nýju ð lokinni kynningu erindi Ingunnar Hafstað arkitekts, dags. 25. september 2020, fh. lóðarhafa Víðigrundar 35 þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi. Í gildandi deiliskipulagi lóðarinnar frá október 2017 er gert ráð fyrir að reisa bílgeymslu og tengibyggingu við húsið, samtals 57 m2. Í breytingunni felst að undir bílgeymsluna verður komið fyrir kjallararými sem tengist núverandi kjallara hússins. Auk þess verður komið fyrir anddyri sem tengir íbúðarhúsið við bílgeymsluna svo rýmið verður innangengt bæði frá kjallara og aðalhæð, heildar fermetrafjöldi bílgeymslu og kjallararýmis verður 95 m2. Gert er ráð fyrir útidyrahurð frá kjallara á suðurhlið hússins og tröppum upp, tröppurnar liggja 2,5 m. frá lóðarmörkum. Íbúðarhúsið að Víðigrund 35 er skráð 280,1 m2 og eftir breytingu verður íbúðarhúsið ásamt bílskúr, anddyri og kjallara 371, m2. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:200 dags. 25. september 2020. Á fundi skipulagsráðs 5. október 2020 var samþykkt með tilvísan í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Víðigrundar 19, 21, 31, 33, 35, 37 og 39. Kynningartíma lauk 2. desember 2020 Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartímanum. Niðurstaða Skipulagsráð - 88 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 11.6 2009017 Bollasmári 6. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Emils Þórs Guðmundssonar byggingatæknifræðings dags. 30. ágúst 2020 fh. lóðarhafa Bollasmára 6 með ósk um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að reisa sólstofu á vesturhlið hússins með útgengi frá efri hæð. Fyrirhuguð stækkun er 21,8 m2. Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 30. ágúst 2020. Á fundi skipulagsráðs 2. nóvember 2020 var samþykkt að framlögð tillaga verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lóðarhöfum í Bollasmára 1-9 og Brekkusmára 1, 3, 5, 7 og 9. Kynningartíma lauk 2. desember 2020. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartímanum. Niðurstaða Skipulagsráð - 88 Skipulagsráð samþykkir tillöguna. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 11.9 2009375 Reynihvammur 5. Kynning á byggingarleyfi.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Jóns Guðmundssonar arkitekts dags. 20. september 2006, breytt 3. september 2020 fh. lóðarhafa Reynihvamms 5. Óskað er eftir að stækka bílgeymslu um 14,8 m2 sem verður eftir breytingu 48,5 m2 og koma fyrir svölum ofan á bílskúr. Anddyri 1 hæðar er stækkað um 5,7 m2 og felldur út stigi innanhúss og komið fyrir anddyri þar sem stigaopið var áður. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 20 september 2006, breytt 3. september 2020. Á fundi skipulagsráðs 21. september 2020 var samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Reynihvamms 3, 7, Hlíðarvegar 18 og 20. Kynningartíma lauk 4. nóvember 2020. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 12. nóvember 2020 var afgreiðslu málsins frestað og vísað til umsagnar skipulags- og byggingardeildar. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 7. desember 2020. Niðurstaða Skipulagsráð - 88 Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 11.12 2010120 Gulaþing 23. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram erindi Einars Ólafssonar arkitekts, dags. 13. nóvember 2020 fh. lóðarhafa Gulaþings 23 þar sem óskað eftir breytingu á deiliskipulagi. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja einbýlishús á tveimur hæðum á lóðinni, heildarbyggingarmagn samtals 400 m2. Í framlögðu erindi er óskað eftir að breyta einbýlishúsi í parhús á tveimur hæðum með óbreyttu heildarbyggingarmagni þ.e. samtals 400 m2. Bílastæðum fjölgar úr þremur í fjögur. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:2000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 13. nóvember 2020. Niðurstaða Skipulagsráð - 88 Skipulagsráð samþykkir að auglýsa framlagða tillögu með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 11.16 2012041 Hraunbraut 14. Kynning á byggingarleyfi.
    Lagt fram erindi Luigi Bartolozzi arkitekts dags. 18. nóvember 2020 fh. lóðarhafa Hraunbrautar 14. Á lóðinni er steinsteypt þriggja hæða hús með þremur íbúðum og sambyggðum bílskúr, byggt 1968. Óskað erf eftir ð breyta 57,6 m2 rými, staðsett undir tvöföldum bílskúr á lóðinni í íbúð á eigin fastanúmeri. Á upphaflegum teikningum af húsinu er þetta rými merkt sem geymsla en frá árinu 1985 hefur rýmið verið notað sem íbúð. Auk þess er óskað eftir að breyta þaki bílskúrs í íverustað og reisa handrið meðfram þakkanti. Samþykki meðeiganda og lóðarhafa aðliggjandi lóða liggur fyrir. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 18. nóvember 2020. Niðurstaða Skipulagsráð - 88 Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

12.2012082 - Fundargerð 387. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 02.12.20

Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13.2011014F - Umhverfis- og samgöngunefnd - 134. fundur frá 24.11.2020

Fundargerð í 5. liðum.
Lagt fram.
  • 13.3 2011510 Breytingar á skiltum og umferðarrétti
    Kynntar breytingar á umferðarrétti og bann við bifreiðastöðum á nokkrum stöðum í bænum.

    Niðurstaða Umhverfis- og samgöngunefnd - 134 Umhverfissvið samþykkir framlagðar tillögur að breytingu á umferðarrétti og bann á bifreiðastöðum. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar og auglýsingar í B-deild stjórnartíðinda.

Fundi slitið - kl. 10:00.