Bæjarráð

3042. fundur 08. apríl 2021 kl. 08:15 - 10:26 Fjarfundur - Microsoft Teams
Fundinn sátu:
  • Birkir Jón Jónsson formaður
  • Karen E. Halldórsdóttir varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ármann Kristinn Ólafsson bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.2101185 - Ársreikningur Kópavogsbæjar 2020

Frá fjármálastjóra, lögð fram drög að ársreikningi Kópavogsbæjar fyrir árið 2020.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa ársreikningi Kópavogsbæjar fyrir árið 2020 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Gestir

  • Ingólfur Arnarson fjármálastjóri - mæting: 08:15

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.2101223 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2021

Frá fjármálastjóra, lagður fram viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2021.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa viðauka við fjárhagsáætlun til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.2101255 - Skólagarðar 2021

Frá verkefnastjóra á umhverfissviði, dags. 29. mars, lögð fram tillaga um fyrirkomulag og þátttökugjald fyrir Skólagarða Kópavogs árið 2021.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fyrirkomulag Skólagarða verði með sama sniði árið 2021 og var á síðasta ári og að þátttökugjald verði 5.700 krónur.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.2102298 - Þjónustuapp - samningur um þróun þjónustuapps

Frá forstöðumanni upplýsingatæknideildar, dags. 16. mars, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild til að ganga til samninga við Stefnu ehf. um þróun á þjónustuappi. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi.
Fundarhlé hófst kl. 9:33, fundi fram haldið kl. 9:49

Bæjarráð samþykkir framlagðan samning, að viðbættu uppsagnarákvæði 10. gr., með þremur atkvæðum gegn atkvæði Theódóru S. Þorsteinsdóttur og hjásetu Péturs H. Sigurðssonar.

Bókun:
"Undirritaður bendir á að flest af því sem er í appinu á að vera aðgengilegt annarstaðar fyrir íbúa Kópavogs. Undirritaður telur að farsælla sé að fara með þetta verkefni inn í samstarfsvettvang um stafrænt ráð sveitarfélaganna sem verið er að koma á laggirnar."
Pétur H. Sigurðsson

Bókun:
"Samningurinn ber með sér að verið sé að koma sér undan útboðsskyldu. Upphafleg samningsdrög tilgreindu kostnað sem var langt yfir opinberum viðmiðunarmörkum fyrir útboð. Nú hefur verkið verið bútað niður auk þess sem vísað er til möglegrar aðkomu fleiri sveitarfélaga, þó ekkert sé staðfest í þeim efnum. Engin verðkönnun var heldur gerð þegar þjónustusali var valinn, líkt og ber að gera samkvæmt lögum. Ennfremur er samningurinn ótímasettur sem er óheimilt, bæði samkvæmt innkaupareglum Kópavogsbæjar og lögum. Verkefnalýsingin er óljós, og ekki liggur fyrir þarfagreining á hvaða liðum ætti að forgangsraða til að bæta þjónustu við íbúa Kópavogs. Þá telja undirritaðar að farsælast væri að vinna verk sem þetta í samráði og samstarfi við önnur sveitarfélög. Kópavogsbær er þegar þátttakandi í samstarfsvettvangi á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga og hefur greitt háar fjárhæðir til þeirrar vinnu."
Theódóra S. Þorsteinsdóttir og Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.2103781 - Nýbýlavegur 22, American Style. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 6. apríl, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 18. mars, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Gleðiheima ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Nýbýlavegi 22, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

Ýmis erindi

6.2003929 - Aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir atvinnulíf og heimili - COVID-19

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 30. mars, lagt fram erindi um aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu gegn samdrætti í þjóðarbúskapnum.
Lagt fram.

Ýmis erindi

7.21031115 - Styrktarsjóður EBÍ 2021. Boð um að senda inn umsókn

Frá EBÍ, dags. 26. mars, lagt fram erindi þar sem aðildarsveitarfélög EBÍ eru hvött til að senda inn umsókn í styrkstarsjóð EBÍ fyrir lok aprílmánaðar.
Lagt fram.

Ýmis erindi

8.21031130 - Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið vekur athygli á nýsamþykktu frumvarpi vegna málefna sveitarfélaganna og Covid 19

Frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, dags. 31. mars, lagt fram erindi þar sem vakin er athygli á að Alþingi hefur samþykkt frumvarp til breytinga á ýmsum lögum vegna málefna sveitarfélaga og Covid-19 faraldursins.
Lagt fram.

Ýmis erindi

9.2103993 - Til umsagnar frumvarp til laga um loftferðir, 586. mál

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 24. mars, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um loftferðir (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Ýmis erindi

10.21031052 - Til umsagnar frumvarp til laga um almannavarnir (almannavarnarstig ofl), 622. mál

Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 27. mars, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um almannavarnir (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Fundargerð

11.2103023F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 312. fundur frá 26.03.2021

Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram

Fundargerð

12.2103018F - Barnaverndarnefnd - 118. fundur frá 24.03.2021

Fundargerð í einum lið
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13.21031118 - Fundargerð 264. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 29.03.2021

Fundargerð í 48 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

14.2103011F - Leikskólanefnd - 127. fundur frá 18.03.2021

Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

15.2103022F - Lista- og menningarráð - 124. fundur frá 25.03.2021

Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.

Fundargerð

16.2103010F - Skipulagsráð - 95. fundur frá 29.03.2021

Fundargerð í 23 liðum.
Lagt fram.
  • 16.4 1905126 Dalaþing 13. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram breytt tillaga Einars Ólafssonar arkitekts að breyttu deiliskipulagi á lóðinni. Í gildandi deiliskipulagi er á lóðinni gert ráð fyrir einbýlishúsi á tveimur hæðum, stakstæðum bílskúr og hesthúsi ásamt gerði. Í breyttri tillögu felst að komið verði fyrir tveimur einbýlishúsum á einni hæð ásamt parhúsi á tveimur hæðum auk þess sem aðkoma að húsunum breytist með vegi og bílastæðum miðlægt á lóðinni. Parhús Dalaþing 13a og 13b er áætlað 400 m2 að flatarmáli á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr og fjórum bílastæðum á lóð. Einbýlishús Dalaþing 13c er áætlað um 220 m2 að flatarmáli á einni hæð með innbyggðum bílskúr og þremur bílastæðum á lóð. Einbýlishús Dalaþing 13d er áætlað um 210 m2 að flatarmáli á einni hæð með þremur bílastæðum á lóð. Lóðin er 3.349 m2 að flatarmáli og verður nýtingarhlutfall eftir breytingu 0,25. Á fundi skipulagsráðs 15. júlí 2019 var samþykkt með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar yrði auglýst. Kynningartíma lauk 18. september 2019 og bárust ábendingar og athugasemdir við tillöguna. Tillagan sem nú er lögð fram er breytt að því leiti að byggingarreitum fyrirhugaðra húsa hefur verið breytt og staðsetning þeirra endurskoðuð til að koma til móts við sjónarmið athugasemdaaðila. Breytt tillaga er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmyndum dags. 26. mars 2021.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 95 Skipulagsráð samþykkir með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu með áorðnum breytingum. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 16.6 2011714 Vatnsendahvarf. Deiliskipulagslýsing.
    Lögð fram að nýju tillaga skipulagsdeildar að deiliskipulagslýsingu með tilvísan til 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir nýtt deiliskipulag í Vatnsendahvarfi dags. 26. mars 2021. Niðurstaða Skipulagsráð - 95 Skipulagsráð samþykkir framlagða lýsingu og að hún verði kynnt í samræmi við 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 16.7 2011485 Arnarnesvegur frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut. Deiliskipulagslýsing.
    Lögð fram tillaga verkfræðistofunnar Eflu fh. Kópavogsbæjar og Reykjavíkurborgar, dags. 19. mars 2021, að deiliskipulagslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag Arnarnesvegar 3. áfanga. Fyrirhugað deiliskipulag nær til hluta Arnarnesvegar frá gatnamótum Arnarnesvegar og Rjúpnavegar að fyrirhuguðum gatnamótum Breiðholtsbrautar og Arnarnesvegar og veghelgunarsvæða hans sem nær að jafnaði 30 metra út frá miðlínu vegarins. Hluti veghelgunarsvæðis Arnarnesvegar er innan sveitarfélagsmarka Reykjavíkur, en stærsti hluti vegarins liggur innan sveitarfélagsmarka Kópavogs. Arnarnesvegur sem liggur innan marka skipulagssvæðisins er um 1,9 km að lengd og liggur frá suðaustur hluta Leirdals að grænu opnu svæði norðan Breiðholtsbrautar.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 95 Skipulagsráð samþykkir framlagða lýsingu og að hún verði kynnt í samræmi við 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 16.10 2103946 Hraunbraut 14. Kynning á byggingarleyfi. Umsókn um auka íbúð.
    Lagt fram erindi Luigi Bartolozzi arkitekts dags. 11. mars 2021 fh. lóðarhafa Hraunbrautar 14. Á lóðinni er steinsteypt þriggja hæða hús með þremur íbúðum og sambyggðum bílskúr, byggt 1968. Í erindinu er óskað eftir að breyta 57,6 m2 rými, staðsett undir tvöföldum bílskúr á lóðinni í íbúð á eigin fastanúmeri. Á upphaflegum teikningum af húsinu er þetta rými merkt sem geymsla en frá árinu 1985 hefur rýmið verið notað sem íbúð. Samþykki meðeiganda og lóðarhafa í grennd liggur fyrir. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 11. mars 2021. Niðurstaða Skipulagsráð - 95 Skipulagsráð hafnar famlögðu erindi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Einar Örn Þorvarðarson og Bergljót Kristinsdóttir sitja hjá við afgreiðslu málsins.
    Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 16.12 2011563 Hlíðarvegur 26. Kynning á byggingarleyfi.
    Á fundi skipulagsráðs 1. febrúar 2021 var erindi Páls Poulsen byggingarfræðings dags. 5. október 2020 fh. lóðarhafa Hlíðarvegar 26 hafnað. Í framlögðu erindi var óskað eftir að fjölga íbúðum í húsinu og fá jarðhæðina samþykkta sem íbúð á eigin fastanúmeri. Með breytingunni væru þrjár íbúðir í húsinu; íbúð á jarðhæð 76,3 m2, íbúð á 1. hæð: 148,6 m2 og íbúð á 2. hæð: 143,4 m2. Samþykki meðeigenda lá fyrir.
    Á fundi bæjarráðs 25. febrúar 2021 var tekin fyrir beiðni Hjalta Steinþórssonar lögmanns, fh. lóðarhafa, um endurupptöku máls. Bæjarráð samþykkti að vísa málinu til bæjarlögmanns til umsagnar. Á fundi bæjarráðs 25. mars 2021 var samþykkt endurupptaka málsins og vísað til nýrrar málsmeðferðar. Þá lögð fram umsögn lögfræðideildar dags. 17. mars 2021.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 95 Skipulagsráð samþykkir framlagt erindi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 16.13 2011091 Vatnsendablettur 1b. Breytt aðalskipulag.
    Lagt fram erindi Jakobssona ehf. dags. 3. nóvember 2020 þar sem óskað er eftir breytingu á landnotkun Vatnsendabletts 1b sem er 7.088 m2 að flatarmáli. Samkvæmt aðalskipulagi Kópavogs er landið skilgreint sem opið óbyggt svæði en óskað er eftir að Kópavogsbær samþykki að breyta landnotkun á svæðinu þannig að þar verði heimilt að byggja 7 íbúðarhús. Þá lagt fram minnisblað lögfræðideildar dags. 25. mars 2021. Niðurstaða Skipulagsráð - 95 Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 16.18 2103928 Markavegur 7. Beytt deiliskipulag.
    Lagt fram erindi Jódísar Ástu Gísladóttir byggingarfræðings, dags. 3. mars 2021 fh. lóðarhafa Markarvegar 7 með ósk um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að á lóðinni verði reist reiðskemma á lóðarmörkum sem sameinast hesthúsum sem fyrirhugað er að byggja á Markavegi 7 og 8 þannig að reiðskemman verði sameiginleg. Eins er óskað eftir að gólfkóti á báðum lóðum verði jafnaður þannig að gólfkóti Markavegar 7 fari úr 104,5 í 105,0 og gólfkóti Markavegar 8 fari úr 105,5 í 105,0. Nýtingarhlutfall eftir breytingu verður 0.32. Uppdráttur í mkv. 1:500 og 1:1000 dags. 25. febrúar 2021. Niðurstaða Skipulagsráð - 95 Skipulagsráð samþykkir með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 16.19 2103929 Markavegur 8. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram erindi Jódísar Ástu Gísladóttir byggingarfræðings, dags. 3. mars 2021 fh. lóðarhafa Markarvegar 8 með ósk um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að á lóðinni verði reist reiðskemma á lóðarmörkum sem sameinast hesthúsum sem fyrirhugað er að byggja á Markavegi 7 og 8 þannig að reiðskemman verði sameiginleg. Eins er óskað eftir að gólfkóti á báðum lóðum verði jafnaður þannig að gólfkóti Markavegar 7 fari úr 104,5 í 105,0 og gólfkóti Markavegar 8 fari úr 105,5 í 105,0. Nýtingarhlutfall eftir breytingu verður 0.32. Uppdráttur í mkv. 1:500 og 1:1000 dags. 25. febrúar 2021. Niðurstaða Skipulagsráð - 95 Skipulagsráð samþykkir með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 16.20 2103898 Kópavogsbraut 69. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram erindi Sigurðar Hallgrímssonar arkitekts fh. lóðarhafa Kópavogsbrautar 69 þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að hús sem stendur á lóðinni verður rifið og í stað þess reist parhús á tveimur hæðum. Húsið verður í heildina 356 m2, hvor íbúð um 180 m2. Gert er ráð fyrir fjórum bílastæðum, tvö fyrir hvora íbúð. Nýtingarhlutfall lóðarinnar verður 0,49 eftir breytingu. Uppdrættir í mkv. 1:200 og 1:1000 dags. 11. mars 2021. Niðurstaða Skipulagsráð - 95 Skipulagsráð samþykkir með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Bergljót Kristinsdóttir greiðir atkvæði gegn tillögunni.

    Kristjana H Kristjánsdóttir, verkefnastjóri á skipulagsdeild, víkur af fundi við afgreiðslu málsins.
    Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 16.21 2103900 Kópavogsbraut 71. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram erindi Sigurðar Hallgrímssonar arkitekts fh. lóðarhafa Kópavogsbrautar 71 þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að hús sem stendur á lóðinni verður rifið og í stað þess reist parhús á tveimur hæðum. Húsið verður í heildina 356 m2, hvor íbúð um 180 m2. Gert er ráð fyrir fjórum bílastæðum, tvö fyrir hvora íbúð. Nýtingarhlutfall lóðarinnar verður 0,49 eftir breytingu. Uppdrættir í mkv. 1:200 og 1:1000 dags. 11. mars 2021. Niðurstaða Skipulagsráð - 95 Skipulagsráð samþykkir með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Bergljót Kristinsdóttir greiðir atkvæði gegn tillögunni.

    Kristjana H Kristjánsdóttir, verkefnastjóri á skipulagsdeild, víkur af fundi við afgreiðslu málsins.
    Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

17.2103977 - Fundargerð stjórnar Reykjanesfólksvangs frá 10.03.2021

Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

18.21031085 - Fundargerð 896. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 26.03.2021

Fundargerð í 36 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

19.21031022 - Fundargerð 337 fundar stjórnar Strætó frá 12.03.2021

Fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

20.2104029 - Tillaga bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um endurskoðun samþykktar um hundahald

Tillaga bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um endurskoðun samþykktar um hundahald.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu heilbrigðiseftirlitsins.

Erindi frá bæjarfulltrúum

21.2104042 - Tillaga bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um að vinna og birta samfélagsskýrslu samhliða ársreikningi

Tillaga bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um að Kópavogsbær láti vinna árs- og samfélagsskýrslu og birti með stafrænum og aðgengilegum hætti á heimasíðu Kópavogsbæjar. Jafnframt að skoða kosti þess að nota GRI staðal til þess að halda utan um efnahagsleg, umhverfisleg og félagsleg áhrif Kópavogsbæjar við gerð samfélagsskýrslunnar.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og sviðsstjóra fjármálasviðs.

Erindi frá bæjarfulltrúum

22.2104043 - Tillaga bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um að bæta við vaxtarsvæði túlípana í bæjarlandi og auki við gróðursetningu sumarblóma og blómstrandi runna

Tillaga bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um að Kópavogsbær bæti við vaxtarsvæði túlípana (haustlauka) í bæjarlandinu, auki verulega við gróðursetningu sumarblóma og blómstrandi runna.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.

Erindi frá bæjarfulltrúum

23.2104044 - Ósk bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um kynningu á viðhorfskönnun varðandi Fannborgarsvæðið

Bæjarfulltrúi Theódóra S. Þorsteinsdóttir óskar eftir að fá kynningu á viðhorfskönnun er varðar Fannborgarsvæðið.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Erindi frá bæjarfulltrúum

24.2104046 - Ósk bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um samráðsfund um deiliskipulagslýsingu á Vatnsendahvarfi

Bæjarfulltrúi Theódóra S. Þorsteinsdóttir óskar eftir að fá samráðsfund um deiliskipulagslýsingu á Vatnsendahvarfi.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fundi slitið - kl. 10:26.