Bæjarráð

3059. fundur 23. september 2021 kl. 08:15 - 11:50 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Karen E. Halldórsdóttir formaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Helga Hauksdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Ármann Kristinn Ólafsson bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.2108643 - Alþingiskosningar 25. september 2021

Frá bæjarritara, dags. 21.09.2021, lagður fram listi með breytingum á starfsmönnum kjördeilda vegna alþingiskosninganna 25. september 2021.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan lista.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.1905336 - Viljayfirlýsing um byggingu hjúkrunarheimilis

Frá bæjarstjóra, dags. 13.09.2021, lögð fram drög að sameiginlegri viljayfirlýsingu heilbrigðisráðuneytis og Kópavogsbæjar um byggingu nýs hjúkrunarheimilis. Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum þann 16.09.2021.
Bæjarráð samþykkir vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundarhlé hófst kl. 10:27, fundi fram haldið kl. 10:41

Gestir

  • Kristján Sigurðsson framkvæmdastjóri Sunnuhlíðar - mæting: 08:20
  • Svanlaug Guðnadóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar - mæting: 08:20

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.2106799 - Stefnumótun og fjárhagsáætlunargerð 2022

Lögð fram drög að stefnu fjármálasviðs og stjórnsýslusviðs. Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum þann 16.09.2021.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum stefnurnar fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Gestir

  • Kristín Egilsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs - mæting: 08:40

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.2109527 - Stjórnsýsla byggðarsamlaga

Frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir því að viðaukar við stofnsamninga Sorpu bs. og Strætó bs. verði teknir til efnislegrar umræðu, afgreiðslu og staðfestingar. Jafnframt er óskað tilnefninga tveggja fulltrúa sveitarfélagsins í stefnuráð byggðarsamlaganna.
Bæjarráð vísar framlögðum viðaukum við stofnsamninga Sorpu bs. og Strætó bs. til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð tilnefnir jafnframt Margréti Friðriksdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur í stefnuráð byggðarsamlaganna.

Gestir

  • Hildigunnur Hafsteinsdóttir lögfræðingur SSH - mæting: 09:15
  • Páll Björgvin, framkvæmdastjóri SSH - mæting: 09:15

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.2109197 - Útboð - Sundlaug Kópavogs, sundlaugin Versölum og sundlaugin Boðaþingi - Ræsting

Frá deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 15.09.2021, lögð fram beiðni um heimild til að auglýsa útboð vegna kaupa á ræstingu sundlauga í Kópavogi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

6.2109315 - Borgarholtsbraut 19, Kársnes. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 20.09.2021, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 09.09. 2021, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Kársnes ehf., kt. 560119-2830 um nýtt rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Borgarholtsbraut 19, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

7.2109061 - Borgarholtsbraut 19, Kársnes ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 20.09.2021, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 02.09.2021, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Kársnes ehf., kt. 560119-2830, um tímabundið áfengisleyfi vegna Bjórhátíðar Brauðkaups dagana 1. - 3. október 2021 frá kl. 17:00-23:00, á staðnum Brauðkaup, að Borgarholtsbraut 19, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til umsagnar lögfræðideildar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

8.2108897 - Ósk um umsögn eða athugasemdir við drónaflug til afhendingar í Kópavogi

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags, 13.09.2021, lögð fram umsögn umhverfissviðs um drónaflug við heimsendingar í Kópavogi.
Pétur H. Sigurðsson vék af fundi kl. 11:45.

Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.

Ýmis erindi

9.21081530 - Tilkynning til sveitarfélaga. Innleiðing laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 31.08.2021, lagt fram erindi varðandi innleiðingu laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum 16.09.2021.
Lagt fram.

Gestir

  • Sigrún Þórarinsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs - mæting: 10:55
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs - mæting: 10:55
  • Anna Elísabet Ólafsdóttir sérfræðingur lýðheilsumála - mæting: 10:55

Ýmis erindi

10.2109496 - Umsókn um styrk fyrir verkefnið Samvera og súpa

Frá félagasamtökunum, Samvera og súpa, dags. 16.09.2021, lögð fram umsókn um styrk að upphæð kr. 50.000,- fyrir verkefnið Samvera og súpa sem unnið er í samvinnu við Sjálfsbjörgu og ÖBÍ.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að styrkja verkefnið.

Ýmis erindi

11.2109582 - Umhverfismat á tillögu að nýrri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021 - 2032 fyrir suðvesturhornið

Frá verkefnisstjórn sorpsamlaga á suðvesturlandi, dags. 17.09.2021, lögð fram sameiginleg svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032 á Suðvesturlandi.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.

Fundargerðir nefnda

12.2109003F - Lista- og menningarráð - 132. fundur frá 16.09.2021

Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

13.2109012F - Menntaráð - 84. fundur frá 21.09.2021

Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

14.2109005F - Skipulagsráð - 105. fundur frá 20.09.2021

Fundargerð í 13 liðum.
Lagt fram.

Mál nr. 14.13
Bókun:
"Undiritaður beinir því til bæjarstjóra að verða við ósk formanna húsfélaganna Fannborg 1-9 og Hamraborgarráðsins, Hamraborg 14-38 sem fram kemur í bréfi sem sent var til bæjarstjórnar og fleiri um að halda opinn fund með íbúum svæðisins."
Pétur Hrafn Sigurðsson"
  • 14.3 2002204 Hamraborg - miðbær. Fannborgarreitur og Traðarreitur vestur. Tillaga að deiliskipulagi.
    Lögð fram deiliskipulagstillaga Pálmars Kristmundssonar, arkitekts dags. í október 2020 að deiliskipulagi fyrir Fannborgarreit og Traðarreit-vestur á miðbæjarsvæði Hamraborgar. Breytingin nær til svæðis sem afmarkast af Vallartröð til austurs, Digranesvegi til suðurs, Fannborg 8 til vestur og Hamraborg 10-38 til norðurs. (Reitir B1-1 og B1-3 og B4 í rammahluta Aðalskipulags Kópavogs 2012-2024). Stærð skipulagssvæðisins er um 4.3 ha að flatarmáli. 1) Á Fannborgarreit (á reit B1-1) standa nú þrjár byggingar fyrir atvinnuhúsnæði á 2, 3 og 4 hæðum (gömlu bæjarskrifstofurnar í Fannborg 2, 4 og 6) alls um 5300 m2 sem byggðar voru á árunum 1973-1979. Í tillögunni er gert ráð fyrir að þessar byggingar verði rifnar og nýtt húsnæði á 1-7 hæðum, með stöku byggingum sem eru 8 og 12 hæðir, rísi á svæðinu fyrir allt að 270 íbúðir ásamt verslun og þjónustu. Á jarðhæðum sem snúa að göngugötu (mannlífsás) sem mun verða milli fyrirhugaðra nýbygginga og núverandi íbúðarhúsa við Hamraborg 30-38 er gert ráð fyrir verslun og þjónustu. Áætlað heildar byggingarmagn verður um 18.000 m2 að samanlögðum gólffleti þar af 2000 m2 fyrir verslun og þjónustu. Hámarksnýtingarhlutfall er áætlað 2.04 án bílakjallara og 3.56 með bílastæðakjallara. Gert er ráð fyrir 1 bílastæði fyrir hverja íbúð og 1 bílastæði fyrir hverja 100 m2 í verslunar- og þjónustuhúsnæðis og að lágmarksfjöldi reiðhjólastæða er 2 reiðhjólastæði á íbúð og 1 reiðhjólastæði fyrir hverja 100 m2 verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Heimild er fyrir allt að 200 bílastæðum fyrir verslun- og þjónustu og aðliggjandi byggð á skipulagssvæðinu á reitnum í bílakjallara. Gert er ráð fyrir bílastæðum neðanjarðar. Lóðarmörk og aðkoma breytast. 2) Á Traðarreit-vestur standa nú 8 byggingar á einni til þremur hæðum með samtals 13 íbúðum, þar af 2 atvinnuhúsnæði, sem byggð voru á árunum 1952-1958 alls um 3000 m2. Í tillögunni er gert ráð fyrir að þessar byggingar víki fyrir nýrri byggð á 1-7 hæðum fyrir allt að 280 íbúðir auk verslunar- og þjónustuhúsnæðis alls um 22.000 m2 að samanlögðum gólffleti þar af 1.000 m2 fyrir verslun og þjónustu. Hámarksnýtingarhlutfall er áætlað 2.42 án bílakjallara og 3.90 með bílastæða kjallara. Gert er ráð fyrir 1.25 bílastæði fyrir hverja íbúð og 1 bílstæði fyrir hverja 75 m2 verslunar og þjónustuhúsnæðis. Heimild er fyrir allt að 200 bílastæðum fyrir verslun- og þjónustu og aðliggjandi byggð á skipulagssvæðinu á reitnum í bílakjallara. Lágmarksfjöldi reiðhjólastæða á reitnum er 2 reiðhjólastæði á íbúð og 1 reiðhjólastæði fyrir hverja 75 m2 verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Lóðarmörk og aðkoma breytast. 3) Gert er ráð fyrir göngugötu (mannlífsás) allt frá Vallartröð að Hálsatorgi fyrir verslunar- og þjónustuhúsnæði.
    Ofangreind tillaga var auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 2. janúar 2021 til 2. mars 2021. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma.
    Á fundi skipulagsráðs 17. maí 2021 var framlögð tillaga að deiliskipulagi ásamt umsögnum í greinargerð dags. 22. apríl 2021 samþykkt með hjásetu Bergljótar Kristinsdóttir og vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar 25. maí 2021 var afgreiðsla skipulagsráðs staðfest með níu atkvæðum.
    Þá er lagt fram erindi Skipulagstofnunar dags. 26. ágúst 2021 þar sem fram kemur að stofnunin geri athugasemdir við að sveitarstjórn birti auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda. Jafnframt lagt fram erindi skipulagsfulltrúa dags. 17. september 2021 þar sem brugðist er við athugasemdum Skipulagsstofnunar og lagðar eru til lagfæringar á deiliskipulagsgögnum sem koma til móts við athugasemdir Skipulagsstofnunar.
    Meðal leiðréttinga eru afmörkun skipulagssvæðisins sem er samræmd í skipulagsgögnum og skipulagssvæðinu lýst með ítarlegri hætti. Skipulagsákvæði sett fram með skýrari hætti fyrir alla reiti svæðisins B1-1, B1-3, B2 og B4. Skilmálatöflu (2) fyrir svæði B1-3 og B2 bætt við á skipulagsuppdrætti. Öryggi og aðgengi á yfirborði og í bílakjallara gerð frekari skil. Aðkoma að bílakjallara gerð skýrari. Bílastæðafjöldi í skilmálatöflu og greinargerð samræmd.
    Tillagan lögð fram að nýju með áorðnum breytingum dags. 15. september 2021.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 105 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með áorðnum breytingum dags. 15. september 2021 með fjórum atkvæðum. Bergljót Kristinsdóttir greiddi atkvæði gegn tillögunni.
    Einar Örn Þorvarðarson og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Bókun frá Bergljótu Kristinsdóttur „Undirrituð sér sér ekki fært að samþykkja þessa tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Hamraborg, miðbæ þó aðeins sé um uppfærslu á framsetningu að ræða. Undirrituð hefur áður kallað eftir heilstæðri skipulagningu alls miðsvæðisins þ.m.t. reitsins vestan við téðan miðbæjarreit sem telja verður sem hluta miðbæjarsvæðis. Miklar breytingar eru fyrirhugaðar á þeim reit í framtíðinni sem munu hafa veruleg áhrif á allt svæðið, m.a. umferð, tengingar við mannlífsás, uppbyggingu almenningsrýma, samgöngumiðju og verslun svo eitthvað sé nefnt. Skammsýni og þjónkun við lóðarhafa ræður hér för sem er ekki góð blanda. Enn fremur er undirrituð afar ósátt við að ekki þótti ástæða til að ná sátt við næstu nágranna reitanna B1-1 og B4 og enn eru mál óútkljáð vegna aðkomu að eignum sem fyrir eru á svæðinu, bæði á verktíma og til framtíðar.“
    Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  • 14.6 2109491 Skíðasvæðið í Bláfjöllum. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram erindi Ómars Ívarssonar skipulagsfræðings fyrir hönd Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, dags. 15. september 2021 þar sem sótt er um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að efri hluta byggingarreits nýrrar stólalyftu Gosa við Suðurgil verði hliðrað um 60-70m til suðurs. Vegna færslu byggingarreits til suðurs færist rör- og rafdreifikerfi fyrir snjóframleiðslu samhliða. Neðri hluta byggingarreits nýrrar stólalyftu Drottningar við Kóngsgil verði hliðrað um 10m til suðurs. Staðsetning hættumatslínu C vegna snjóflóða neðan Suðurgils verði uppfærð í samræmi við nýja legu línunnar frá Veðurstofu Íslands. Byggingarreit aðstöðuhúss Ulls verði hliðrað til suðurs um 30 m auk þess sem hann lengist um 15 m til vesturs. Vegna færslu byggingarreits til suðurs lengist bílastæði til suðurs að nýrri legu byggingarreits. Uppdrættir í mkv. 1:2000 ásamt greinargerð dags. 15. september 2021. Niðurstaða Skipulagsráð - 105 Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 14.7 2109328 Smiðjuvegur 7. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram erindi Rýma akritekta fyrir hönd lóðarhafa dags. 20. ágúst 2021 þar sem sótt eru um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Í breytingunni felst stækkun á byggingareit til norðurs þar sem fyrirhugað er að reisa einnar hæðar viðbyggingu alls 482 m2 að flatarmáli ásamt því að bílastæðum ofanjarðar er fjölgað um 43. Fyrirhuguð viðbyggingin yrði úr stálgrind og klædd með yleiningum.
    Uppdrættir í mkv. 1:500 ásamt skýringarmyndum dags. 8. júlí 2021.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 105 Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 14.9 2109486 Stefnumótun á umhverfissviði
    Lögð fram stefnumótun umhverfissviðs og aðgerðaráætlun stefnumótunar umhverfissviðs fyrir árið 2022. Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs gerir grein fyrir erindinu.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 105 Skipulagsráð samþykkir framlagt erindi fyrir sitt leyti. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 14.11 2105663 Borgarholtsbraut 3, kynning á byggingarleyfi
    Lagt er fram að nýju að lokinni kynningu erindi Sævars Geirssonar tæknifræðings fyrir hönd lóðarhafa Borgarholtsbrautar 3. Sótt er um að byggja við húsið til suðurs og upp að bílageymslu til austurs, útbúa stærri svalir ofaná og bæta við kvist á 2. hæð til samræmis við kvist á sömu hlið. Í tillögunni er einnig gert ráð fyrir að breyta stigahússglugga og klæða húsið með flísaklæðningu í ljósum lit.
    Sótt er einnig um að fá óskráðan bílskúr samþykktan, 70m², sem byggður hefur verið eftir samþykktum teikningum frá 2008.
    Stærð lóðar skv. fasteignaskrá er 554m². Skv. fasteignaskrá eru 2 íbúðir skráðar - samtals 133.2m².
    Íbúðastærð og bílskúr, samtals núverandi stærð er 226m² samkv. fasteignaskrá.
    Sótt er um að stækka húsið um 45,5m² frá núverandi stærð, eftir breytingu mun húsið verða 271,5m². Núverandi nýtingarhlutfall er 0,40. Eftir breytingu verður nýtingarhlutfallið 0,49. Uppdráttur í mkv. 1:100 dags. 10. maí 2021, afstöðumynd og skráningartafla í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 10. maí 2021, útlit viðbyggingar í mvk. 1:100 dags. 10 maí 2021, götumynd í mkv. 1:200, samþykktar teikningar frá byggingarfulltrúa dags. 16. okt. 2008, byggingarlýsing og athugasemd.
    Kynningartíma lauk 1. september 2021. Athugasemd barst á kynningartíma. Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 17. sept. 2021.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 105 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 14.12 2002554 Umsókn um leyfi fyrir sjálfvirkri veðurstöð í Fossvogsdal.
    Lagt fram að nýju erindi Veðurstofu Íslands, dags. 12. febrúar 2020, þar sem óskað er eftir að setja upp sjálfvirka veðurstöð í austanverðum Fossvogsdal. Veðurstöðinni væri komið fyrir á 10 m. háu mastri auk 1,5 m. háum frístandandi úrkomumæli sbr. skýringamyndir af sambærilegri veðurstöð í Víðidal. Niðurstaða Skipulagsráð - 105 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 11:50.