Bæjarráð

3092. fundur 07. júlí 2022 kl. 08:15 - 12:31 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Orri Vignir Hlöðversson formaður
  • Hjördís Ýr Johnson varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson, aðalmaður boðaði forföll og Ásdís Kristjánsdóttir varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Anna Kristín Guðmundsdóttir lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Anna Kristín Guðmundsdóttir lögfræðingur
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.2207051 - Mánaðarskýrslur 2022

Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir jan.-apríl 2022.
Kynnt.

Gestir

  • Ingólfur Arnarson fjármálastjóri, hagdeild - mæting: 08:15
  • Kristín Egilsdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs - mæting: 08:15

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.22031152 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2022

Frá sviðsstjóra velferðarsviðs, lagður fram viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2022.
Frá sviðsstjórum umhverfissviðs og menntasviðs, lagður fram viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2022.
Bæjarráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum framlagða viðauka.

Gestir

  • Kristín Egilsdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs - mæting: 09:15
  • Ingólfur Arnarson fjármálastjóri, hagdeild - mæting: 09:15

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.2203355 - Göngu- og hjólastígur meðfram Lindarvegi

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 4. júlí, lagt fram minnisblað vegna göngu- og hjólastíga meðfram Lindarvegi.

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 7. júní 2022, lagðar fram niðurstöður útboðs á stígagerð meðfram Lindavegi á milli Fífuhvammsvegar og Arnarnesvegar. Lagt er til við bæjarráð að tilboði Urð og grjót ehf. verði tekið og gerður verði verksamningur við fyrirtækið um verkið.
Niðurstaða Bæjarráð - 3091
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bókun bæjarráðs:
"Bæjarráð ítrekar mikilvægi þess að bæjarráðsfulltrúar hafi aðgang að öllum gögnum mála tímanlega fyrir afgreiðslu þeirra. Útboðsgögn höfðu í þessu tilfelli ekki borist með útsendu fundarboði."
Niðurstaða
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa málinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til nánari skoðunar.

Bókun bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn vill ítreka að heimild til útboðs var ekki borin upp í bæjarráði og þar af leiðandi sáu bæjarráðsfulltrúar ekki gögnin fyrr en að útboðsferli loknu. Þá var ekki tekið mið af hönnunarleiðbeiningum sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins og Vegagerðarinnar fyrir hjólreiðar. Umferðaröryggi á alltaf að vera ráðandi þáttur við skipulag og hönnun hjólaleiða."
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfissvið dags. 4. júlí 2022. Sviðsstjóri mætti og gerði grein fyrir minnisblaði sínu.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur að ganga til samninga við Urð og grjót ehf. um gerð hjóla- og göngustíga meðfram Lindarvegi á milli Fífuhvammsvegar og Arnarnesvegar.

Gestir

  • Ásthildur Helgadóttir, sviðstjóri umhverfissviðs - mæting: 09:50

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.2205989 - Víkurhvarf 5, Dýrheimar. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 21.06.2022, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 19.05.2022, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Dýrheima sf., kt. 610295-2749, leyfi til reksturs í sveitarfélaginum í flokki II. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.22052043 - Selbrekka 20, SJF ehf . Endurnýjun á umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 21.06.2022, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 23.05.2022, þar sem óskað er umsagnar um umsókn SJF ehf., kt. 481215-0990, um endurnýjað rekstarleyfi fyrir gististað í sveitarfélaginum í flokki II. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu aftur til umsagnar lögfræðideildar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

6.22031741 - Hlíðasmári 14 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 20.06.2021, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar styrktarfélags krabbameinssjúkra barna um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 486.000,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 486.000.-

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

7.22067377 - Sandskeiði 1. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 22.06.2022, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Svifflugfélag Íslands, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr.1.134.000,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 1.134.000.-

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

8.22021265 - Skíðaskáli Víkings og ÍR í Bláfjöllum - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 22.06.2021, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Skíðadeildar Víkings og ÍR, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 2.124.060,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 2.124.060.-

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

9.2201912 - Ögurhvarf 6 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 21.06.2022, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar ÁS styrktarfélags um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 8.573.040,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 8.573.040.-

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

10.22021179 - Hamraborg 1-3, Kópavogi. Númer fasteignar: 0101 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 21.06.2022, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar SOS barnaþorps, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr.634.464,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 634.464.-

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

11.22033024 - Lækjarbotnar/skíðaskáli 117015 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 20.06.2022, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Glímufélagsins Ármanns, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr.1.508.976,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 1.508.976.-

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

12.2203188 - Víkurhvarf 1. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 20.06.2022, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar RM Heklu um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr.3.334.781,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 3.334.781,-

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

13.22052059 - Rjúpnasalir 1. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 24.06.2022, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar frá Lionsklúbbnum Muninn og Ýr, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr.176.760,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 176.760.-

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

14.2203399 - Hamraborg 10 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 20.06.2022, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Soroptimistasamband Íslands, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr.167.760,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr.167.760.-

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

15.22067574 - Nýbýlavegur 1. Heimild til framsals lóðarleigusamnings

Frá lögfræðideild, dags. 28.06.22, lögð fram beiðni um framsal lóðarinnar Nýbýlaveg 1 frá Olís ehf. til dótturfélags í eigu Haga, BBL 178 ehf.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til úrvinnslu bæjarstjóra.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

16.22067500 - Silfursmári 1-3, 5-7 og 12. Heimild til framsals

Frá lögfræðideild, dags. 27.06.22, lögð fram beiðni til bæjarráðs um samþykki til að framselja lóðirnar Silfursmára 1-3, 5-7 og 12.
Bæjarráð samþykkir framsal lóðarinnar með fimm atkvæðum.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

17.22052080 - Frá kærunefnd útboðsmála. Kæra Reykjafells ehf. vegna útboðs Kópavogsbæjar nr. 2202125

Lögð fram til kynningar kæra til kærunefndar útboðsmála vegna útboðs á umferðarljósabúnaði við Smárahvammsveg og Fífuhvammsveg, ásamt greinargerð lögfræðideildar vegna málsins.
Lagt fram.

Ýmis erindi

18.2203168 - Hækkun á jafnaðartaxta NPA samninga

Afgreiðslu var frestað á fundi velferðarráðs þann 7.3.2022 og frekari upplýsinga óskað.
Greinargerð deildarstjóra dags. 19.5.2022 ásamt þar til greindum fylgiskjölum lögð fram til afgreiðslu.
Niðurstaða Velferðarráð - 103
Velferðarráð samþykkir tillögu um hækkun jafnaðartaxta fyrir sitt leyti.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Niðurstaða
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi hækkun jafnaðartaxta NPA samninga, enda rúmist fjárheimildir innan ramma velferðarsviðs:

Jafnaðartaxti sólarhringssamninga, frá 1. janúar 2022 til 30. apríl 2022 = 5.963 kr.
Jafnaðartaxti sólarhringssamninga, frá 1. maí 2022 til 31. desember 2022 = 6.717 kr.

Jafnaðartaxti sólarhringssamninga með hvíldarvöktum, frá 1. janúar 2022 til 30. apríl 2022 = 5.441 kr.
Jafnaðartaxti sólarhringssamninga með hvíldarvöktum, frá 1. maí 2022 til 31. desember 2022 = 6.000 kr.

Jafnaðartaxti NPA samninga án næturvakta, frá 1. janúar 2022 til 30. apríl 2022 = 5.622 kr.
Jafnaðartaxti NPA samninga án næturvakta, frá 1. maí 2022 til 31. desember 2022 = 6.157 kr.

Gestir

  • Sigrún Þórarinsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs

Ýmis erindi

19.2008519 - Ósk um aðkomu Kópavogsbæjar að húsnæðismálum HSSK

Frá HSSK, dags. 14.06.2022, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir aðkomu Kópavogsbæjar að nýju húsnæði að Tónahvarfi 8.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.

Ýmis erindi

20.22067437 - Umsókn um styrk vegna starfsemi í þágu fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu

Frá Sjálfsbjörg, félagi hreyfihamlaðra, dags. 21.06.2022, lögð fram umsókn um styrk að upphæð kr. 100.000,-
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til bæjarritara til afgreiðslu.

Ýmis erindi

21.22067502 - Bréf frá Eftirlitsnefnd (EFS) vegna ársreiknings 2021

Frá EFS, dags. 22.06.2022, lagt erindi varðandi ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2021.
Lagt fram.

Gestir

  • Ingólfur Arnarson fjármálastjóri, hagdeild - mæting: 11:33

Ýmis erindi

22.22068211 - Erindi frá Stúdentaráði Háskóla Íslands varðandi málefni stúdenta sem heyra undir sveitarstjórnarstigið

Frá Stúdentaráði Háskóla Íslands, dags. 28.06.2022, lagt fram erindi frá málefni stúdenta sem heyra undir sveitarstjórnarstigið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu.

Fundargerðir nefnda

23.2206010F - Lista- og menningarráð - 141. fundur frá 27.06.2022

Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

24.2206012F - Leikskólanefnd - 142. fundur frá 26.06.2022

Fundargerð í fimm liðuum.
Lagt fram.

Fundargerð

25.2206008F - Menntaráð - 98. fundur frá 28.06.2022

Lagt fram.
  • 25.3 2102649 Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna
    Minnisblað sviðsstjóra velferðar- og menntasviðs dags. 22.6.2022, ásamt þar til greindum fylgiskjölum, lagt fram. Niðurstaða Menntaráð - 98 Menntaráð samþykkir fyrir sitt leiti að sviðstjórar mennta- og velferðasviðs fái umboð til að ráðstafa framlagi Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu í þágu farsældar barna. Menntaráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs. Niðurstaða Bæjarráð staðfestir afgreiðslu menntaráðs með fimm atkvæðum.

Fundargerðir nefnda

26.2206011F - Velferðarráð - 104. fundur frá 27.06.2022

Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
  • 26.6 2102649 Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna
    Minnisblað sviðsstjóra velferðar- og menntasviðs dags. 22.6.2022, ásamt þar til greindum fylgiskjölum, lagt fram til afgreiðslu. Niðurstaða Velferðarráð - 104 Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að sviðsstjórar velferðar- og menntasviðs fái umboð til að ráðstafa framlagi Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu í þágu farsældar barna. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs. Niðurstaða Bæjarráð staðfestir afgreiðslu velferðarráðs með fimm atkvæðum.

Fundargerðir nefnda

27.2206013F - Íþróttaráð - 121. fundur frá 29.06.2022

Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

28.2206005F - Skipulagsráð - 123. fundur frá 04.07.2022

Lagt fram.
  • 28.7 2204337 Borgarholtsbraut 13A. Breytt aðkoma.
    Lagt fram á ný erindi lóðarhafa dags. 6. apríl 2022, þar sem óskað er eftir því að merking bílastæðis við Borgarholtsbraut og innkeyrsla að lóðinni verði heimiluð. Skv. lóðarleigusamningi Borgarholtsbraut 13A dags. 17. apríl 1972 er gert ráð fyrir bílastæði á norðvestur- horni lóðarinnar við Borgarholtsbraut.
    Á fundi skipulagsráðs 16. maí 2022 var afgreiðslu frestað. Vísað til úrvinnslu umhverfissviðs.
    Þá lögð fram umsögn umhverfissviðs dags. 24. júní 2022.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 123 Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með fimm atkvæðum.
  • 28.8 2111369 Melgerði 11. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
    Lagt fram að nýju erindi Hauks Ásgeirssonar byggingarverkfræðings dags. 7. október 2021 f.h. lóðarhafa Melgerðis 11 þar sem sótt er um breytingar á lóðinni. Á lóðinni er steinsteypt 160 m2 einbýlishús á tveimur hæðum byggt 1954 auk 40,2 m² bílgeymslu, byggðri 1972. Í erindinu er óskað eftir reisa viðbyggingu með einni íbúð á tveimur hæðum við vesturhlið íbúðarhússins alls brúttó 139,8 m² að stærð. Jafnframt er bílastæðum á lóðinni fjölgað úr tveimur í fjögur. Byggingarmagn á lóðinni hækkar úr 200,2 m² í 340 m² við breytinguna og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,26 í 0,46. Fjöldi íbúða eykst úr einni í tvær á lóðinni.
    Greinargerð og uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 7. október 2021.
    Á fundi skipulagsráðs 17. janúar 2022 var samþykkt með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Melgerðis 9, 10, 12, 13, 14, Vallargerðis 10, 12 og 14.
    Kynningartíma lauk 3. júní 2022, athugasemdir bárust.
    Á fundi skipulagsráðs 20. júní 2022 var afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
    Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 1. júlí 2022.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 123 Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
    Theódóra S Þorsteinsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.
    Niðurstaða Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með fjórum atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur.
  • 28.9 22033170 Kópavogsbraut 19. Urðarhóll, leikskóli. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs dags. 29. apríl 2022 breytt 30. maí 2022 að breyttu deiliskipulagi Kópavogstúns, samþykkt í bæjarstjórn 8. nóvember 2005 og birt í B- deild Stjórnartíðinda 7. mars 2006.
    Í breytingunni felst að lóðin Kópavogsbraut 19 verður breytt og stækkuð til suðurs, vesturs og austurs. Lóðarstærð breytist og verður 6.130 m2 í stað 950 m2. Auk þess verður stofnuð ný lóð 315 m2 að stærð sem tilheyrir Kópavogsbraut 19, innan svæðis sem skilgreint er sem "frestað svæði" í gildandi deiliskipulagi og fær sú lóð staðfangið Kópavogsbraut 19b.
    Á umræddri lóð nr. 19b verður komið fyrir byggingarreit á einni hæð fyrir færanlega kennslustofu. Svæðið er skilgreint fyrir samfélagsþjónustu í Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040. Hámarks hæð byggingarreitar er áætluð 2.8 - 3 metrar og áætluð stærð byggingarreits er um 135 m².
    Leiksvæði barna mun verða á núverandi leikskólalóð en girðingu verður komið upp umhverfis færanlegu kennslustofuna. Lagður verður upphitaður stígur milli færanlegu kennslustofunnar og leikskólans Urðarhóls. Staðsetning færanlegu kennslustofunnar er tímabundin.
    Uppdrættir í mkv. 1:2000, 1:100 og 1:250 dags. 29. apríl 2022, breytt 30. maí 2022.
    Á fundi skipulagsráðs 30. maí 2022 var samþykkt með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Kópavogsbarðs 5, 7, 9, 11, 13, 15, 17 og 19, Kópavogsbrautar 5A, 5B, 5C, 9, 11 og 17.
    Kynningartíma lauk 1. júní 2022, engar athugasemdir bárust.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 123 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 5 atkvæðum.
  • 28.10 22061308 Álfhólsvegur 15, stækkun lóðar.
    Lagt fram erindi lóðarhafa dags. 14. júní 2022, þar sem óskað er eftir því að heimiluð verði stækkun lóðarinnar til vesturs um rúma tvo metra.
    Greinargerð ásamt skýringarmyndum dags. 14. júní 2022.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 123 Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 5 atkvæðum.

Önnur mál

29.22067501 - Sumarleyfi bæjarstjórnar - fundarfyrirkomulag bæjarráðs

Vegna sumarleyfis bæjarstjórnar mun bæjarráð funda í umboði bæjarstjórnar 7. júlí, 21. júlí og 4. ágúst.
Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi er 23. ágúst nk.
Vegna sumarleyfis bæjarstjórnar mun bæjarráð funda í umboði bæjarstjórnar 7. júlí, 21. júlí og 4. ágúst.
Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi er 23. ágúst nk.

Önnur mál

30.22068209 - Waldorfskólinn í Lækjarbotnum, ósk um deiliskipulag

Frá Waldorfskóla, dags. 29.06.2022, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir því að deiliskipulag verði unnið fyrir Lækjabotna.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs.

Erindi frá bæjarfulltrúum

31.22067603 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um kaup Kópavogsbæjar á veitingum á meirihlutafundum

Frá bæjarfulltúa Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur, dags. 28.06.2022, lögð fram fyrirspurn um kaup Kópavogsbæjar á veitingum á meirihlutafundum.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar bæjarritara.

Fundi slitið - kl. 12:31.