Bæjarráð

2591. fundur 14. apríl 2011 kl. 08:15 - 10:15 í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá

1.1104017 - Framkvæmdaráð 13/4

10. fundur

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Ég tel mjög óeðlilegt að tilboð sé ekki birt í fundargerð framkvæmdaráðs. Þetta er enn ein stefnan um þöggun og leynd í störfum meirihlutans.

Gunnar Ingi Birgisson"

 

Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Ég þakka Gunnari Inga Birgissyni kærlega fyrir vinsamlega ábendingu. Þessu verður kippt í liðinn.

Guðríður Arnardóttir"

 

Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Skógrækt í Lækjarbotnum á ekki að vera á kostnað berjalyngs.

Ómar Stefánsson"

 

Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Ég þakka Ómari Stefánssyni fyrir ábendinguna og tek undir hana.

Guðríður Arnardóttir"

2.1104090 - Lausar kennslustofur við Hörðuvallaskóla og leikskóla

Bæjarráð vísar málinu til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu.

3.1101242 - Tilhögun innkaupamála

Tillaga frá Ármanni Kr. Ólafssyni um átak í innkaupum stofnana.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

4.1104005 - Íþróttaráð 13/4

2. fundur

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks taka undir bókun undir lið 7.

5.1101865 - Stjórn skíðasvæða hbsv. 4/4

312. fundur

6.1101996 - Stjórn Sorpu bs. 4/4

284. fundur

7.1104014 - Umhverfis- og samgöngunefnd 11/4

2. fundur

Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:

"Hvað kostar hraðamyndavél?

Ármann Kr. Ólafsson"

8.1103380 - Tillaga um útboð vegna reksturs á Salalaug

Frá bæjarstjóra, lögð fram að nýju tillaga Sjálfstæðisflokks um að bjóða út rekstur sundlaugarinnar í Versölum, sem frestað var í bæjarráði 31/3.

Tillögunni var vísað til framkvæmdaráðs á síðasta fundi bæjarstjórnar.

9.1104174 - Tillaga um endurskoðun reglna um niðurgreiðslur á æfingagjöldum til íþrótta- og frístundastarfs

Tillaga frá fundi bæjarstjórnar 12/4, sbr. lið 8 í fundargerð.

Bæjarráð felur íþróttaráði og forvarna- og frístundanefnd að endurskoða reglur um frístundastyrki.  Sviðsstjóri menntasviðs skal skipa tengilið og sérstakan starfsmann nefndanna vegna verkefnisins.

10.1104175 - Tillaga um sameiginlega stefnu/áætlun til að sporna við einelti innan stofana bæjarins

Tillaga frá fundi bæjarstjórnar 12/4, sbr. lið 8 í fundargerð.

Bæjarráð samþykkir að skipa starfshóp um mótun aðgerðaráætlunar Kópavogs gegn einelti. Í jafnréttisstefnu bæjarins er gert ráð fyrir að aðgerðaráætlun liggi fyrir þegar bregðast skal við eineltismálum. Barátta gegn einelti er mannréttindamál og skal því fela jafnréttis- og mannréttindanefnd að hafa yfirumsjón með mótun stefnunnar í samstarfi við eftirtaldar nefndir:

skólanefnd, leikskólanefnd, íþróttaráð og forvarna- og frístundanefnd.

11.1010338 - Erindisbréf framkvæmdaráðs

Drög að erindisbréfi framkvæmdaráðs vísað aftur til bæjarráðs til úrvinnslu.

Bæjarráð frestar afgreiðslu.

12.1104181 - Skýrsla forðagæslumanns um búfé í Kópavogi 2010-2011

Skýrsla forðagæslumanns um búfé í Kópavogi 2010-2011

Lagt fram.

13.907136 - Skemmuvegur 50/Skemmuvegur 48, sameining lóða.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 12/4, umsögn um erindi Kristjáns Ólafssonar hrl. varðandi Skemmuveg 50, þar sem lagt er til að erindinu verði hafnað.

Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra umhverfissviðs og hafnar erindinu.

 

Gunnar I. Birgisson situr hjá við afgreiðslu málsins.

14.1103052 - Tillaga um áheyrnarfulltrúa

Frá velferðarráðuneytinu, dags. 12/4, álit um setu áheyrnarfulltrúa í félagsmálaráði og barnaverndarnefnd. Álit ráðuneytisins er að seta áheyrnarfulltrúa er heimil þegar fjallað er um almenn málefni, en ekki um málefni einstaklinga.

Lagt fram.

15.1104069 - Boðsbréf í tilefni afhendingar reiðhjólahjálma til barna í 1. bekk grunnskóla

Frá Eimskip hf., dags. 5/4, tilkynning um fyrirhugaða árlega afhendingu reiðhjólahjálma þann 27. apríl nk. og nemendum úr einum 1. bekk boðið til afhendingarinnar.

Bæjarráð færir Kiwanis-hreyfingunni og Eimskip þakkir fyrir gott framtak. Erindinu vísað til bæjarstjóra til afgreiðslu.

16.1104086 - Staðsetning þjónustustofnana fyrir fatlaða í Kópavogi

Frá Þroskahjálp, dags. 7/4, athugasemdir varðandi fyrirhugaða staðsetningu þjónustustarfsemi við fatlað fólk og óskað eftir viðræðum við fulltrúum bæjarins til að ræða þessi mál.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra og felur honum að funda með bréfriturum.

17.1104169 - Ósk um samstarf vegna sumarnámskeiða

Frá Kópavogsdeild Rauða krossins, dags. 7/4, óskað eftir þátttöku Kópavogsbæjar í sambandi við námskeið fyrir börn á aldrinum 8 - 10 ára í sumar.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs til umsagnar.

18.1104164 - Hamraborg 10, Café Dix. Leyfi til að setja út borð og stóla

Frá Cafè Dix, tölvupóstur dags. 12/4, óskað leyfis til að hafa borð og stóla fyrir utan veitingastaðinn.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.

19.902203 - Aðstaða mötuneytis í Snælandsskóla

Frá Foreldri úr skólaráði Snælandsskóla, dags. 12/4, hugmynd um nýja aðstöðu fyrir mötuneyti skólans.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.

20.1104173 - Fróðaþing 14. Lóðarumsókn.

Frá Ingibjörgu Björgvinsdóttur og Baldri Frey Stefánssyni, dags. 13/4, umsókn um lóðina Fróðaþing 14, ásamt umsögn skrifstofustjóra umhverfissviðs, þar sem lagt er til að samþykkja umsóknina.

Bæjarráð samþykkir að úthluta Ingibjörgu Björgvinsdóttur, kt. 241256-3599 og Baldri Frey Stefánssyni, kt. 190182-7389 byggingarrétti að lóðinni Fróðaþing 14.

21.1104102 - Ársskýrsla 2010

Ársskýrsla Landmælinga Íslands fyrir árið 2010.

Lagt fram.

22.1104101 - Stefnumótun Landmælinga Íslands 2011-2015

Frá Landmælingum Íslands, dags. 7/4, bæklingurinn Stefnumótun Landmælinga Íslands 2011 - 2015.

Lagt fram.

23.1104100 - Ársreikningur skíðasvæðanna 2010

Ársreikningur skíðasvæða hbsv. fyrir árið 2010.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða fjármál skíðasvæða innan stjórnar SSH.

24.1104178 - Málefni Bókasafns Kópavogs 2011

Ársskýrsla Bókasafns Kópavogs fyrir 2010

Lagt fram.

25.1104177 - Málefni Náttúrufræðistofu Kópavogs 2011

Ársskýrsla Náttúrufræðistofu Kópavogs 2010.

Lagt fram.

26.1104185 - Fyrirspurn um lóðamál

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn um lóðaúthlutun:

"Hve mörgum lóðum hefur verið úthlutað á þessu ári? Hve margar lóðir hafa verið greiddar og hve mörgum lóðum skilað?

Gunnar Ingi Birgisson"

27.1104186 - Fyrirspurn um kostnað við Skjólbraut 1.

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:

"Hvert er heildarverðmæti húss með breytingum og búnaði? Hvert er framlag ríkisins til framkvæmdarinnar? Hver verður innheimt leiga bæjarsjóðs á ári hverju?

Gunnar Ingi Birgisson"

28.1104187 - Fyrirspurn um kostnað við smíði nýrrar heimasíðu

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:

"Hver er kostnaður við gerð nýja vefsins og til hverra var sá kostnaður greiddur? Hvað kostar vistun og þjónusta Eplica á ári?

Gunnar Ingi Birgisson"

29.1104188 - Fyrirspurn um gömlu stúku á Kópavogsvelli

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:

"Hvað kostar að gera við leka í gömlu stúkunni svo hún verði nothæf? Í hvað er hún notuð í dag?

Gunnar Ingi Birgisson"

30.1104189 - Fyrirspurn um notkun á nýju stúku á Kópavogsvelli

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:

"Hver er notkun á stúku Kópvogsvallar? Er einhver útleiga af mannvirkinu?

Gunnar Ingi Birgisson"

31.1102510 - Bókun vegna mætingar á nefndarfundi

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks ítrekuðu fyrirspurn um mætingarhlutfall bæjarfulltrúa Næstbesta flokksins í bæjarráð og bæjarstjórn og óska eftir skriflegu svari.

Formaður bæjarráðs óskaði fært til bókar að upplýsingar um mætingar á fundi eru aðgengilegar í fundargerðum.

32.1104190 - Tillaga um skipan rýnihóps um framtíð sundlauganna

Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi tillögu:

"Bæjarráð felur bæjarstjóra Kópavogs að kalla saman rýnihóp um framtíð sundlauganna í Kópavogi.  Hlutverk hópsins er að greina aukin sóknarfæri sem felast í þjónustu lauganna því alltaf má gera betur, auka aðsókn, þjónustu og hagkvæmni í rekstri.  Bæjarstjóra er falið að leggja fram tillögur hópsins eigi síðar en 28. apríl nk.

Guðríður Arnardóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Guðný Dóra Gestsdóttir, Rannveig Ásgeirsdóttir"

 

Bæjarráð samþykkir tillöguna. Bæjarráð beinir því til bæjarstjóra að fulltrúar meiri- og minnihluta komi að vinnunni.

33.1104191 - Tillaga um að heimgreiðslur falli niður

Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi tillögu:

"Bæjarráð Kópavogs samþykkir að heimgreiðslur í Kópavogi falli niður frá og með 1. september 2011.  Þjónusta dagforeldra verður áfram niðurgreidd af Kópavogsbæ um 35 þús. kr/mánuði.


Greinargerð:  Í fjárhágsáætlun ársins 2011 er gert ráð fyrir að kostnaður vegna heimgreiðslna nemi um 125 milljónum.  Fjöldi þeirra foreldra sem fá heimgreiðslur með börnum sínum undir 2ja ára hefur aukist umfram spár og stefnir því kostnaður bæjarins í 150 milljónir vegna þessa.  Fjárhagsleg rök, sem og félagsleg, hníga öll að því að foreldrum barna undir 2ja ára sem ekki nýta sér þjónustu dagforeldra eða leikskóla sé ekki greitt sérstaklega enda mun Kópavogsbær áfram niðurgreiða gæslu barna þeirra foreldra sem vinna utan heimilis.  Strax eftir staðfestingu bæjarstjórnar skal tilkynna ákvörðunina bréfleiðis til þeirra sem þiggja heimgreiðslur.

Samhliða þessari ákvörðun verður unnið að því að fjölga leikskólarýmum í Kópavogi strax um næstu áramót.

Guðríður Arnardóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Guðný Dóra Gestsdóttir, Rannveig Ásgeirsdóttir"

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Við mótmælum þessari tillögu harðlega og vísum tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Þá óskum við eftir upplýsingum um sparnað sem hlýst af þessari tillögu á ársgrundvelli.

Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson"

Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Þetta eru enn ein svikin í kjölfar sameiginlegrar fjárhagsáætlunar og ekki bara dæmi um tvöfeldni meirihlutans heldur fjórfeldni.

Ármann Kr. Ólafsson"

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Það hefur legið fyrir í nokkurn tíma að kostnaður vegna heimgreiðslna myndi fara fram úr áætlun á árinu, það var kynnt í bæjarráði og rætt í bæjarstjórn þann 12. Apríl sl.  Þar sem fjárhagsáætlun ársins var unnin sameiginlega af öllum flokkum höfum við kallað eftir samráði við minnihlutann um viðbrögð en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lýst því yfir að þeir sjái enga ástæðu til að bregðast við og jafnframt talið ástættanlegt að þessi liður fari fram úr áætlun.  Við tökum ekki undir slík vinnubrögð og bregðumst því við eins og við teljum best.

Guðríður Arnardóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Guðný Dóra Gestsdóttir, Rannveig Ásgeirsdóttir"

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:

Þegar rýnt er í þennan lið þá sjáum við að hækkunin er ekki vegna heimgreiðslna heldur aðallega vegna fjölgunar hjá dagmæðrum og kemur til vegna skorts á leikskólaplássum. Í ljósi þessa er verið að kippa fótunum (afkomu) undan fjölda fjölskyldna. Það er langt síðan meirihlutinn hætti að hafa nokkuð samráð við minnihlutann eins og glöggt mátti sjá við breytingar á stjórnsýslu bæjarins.

Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson"

34.1001158 - Dagskrá bæjarstjórnarfundar

I Fundargerðir nefnda

II Kosningar

Fundi slitið - kl. 10:15.