Ungmennaráð

56. fundur 26. janúar 2026 kl. 18:00 - 20:00 í Molanum ungmennahúsi Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Maria Motoc aðalmaður
  • Tinna Líf Teitsdóttir aðalmaður
  • Styrmir Steinn Sigmundsson aðalmaður
  • Katrín Hvönn Pétursdóttir aðalmaður
  • Zuzanna Boda aðalmaður
  • Klara Rós Bergmann aðalmaður
  • Óðinn Helgi Pálsson aðalmaður
  • Níels Jóhann Júlíusson aðalmaður
  • Emilía Ísis Nökkvadóttir aðalmaður
  • Bára Freydís Þórðardóttir aðalmaður
  • Magnús Ingi Árnason aðalmaður
Starfsmenn
  • Áslaug Einarsdóttir starfsmaður menntasviðs
Fundargerð ritaði: Áslaug Einarsdóttir verkefnastjóri frístunda- og forvarnadeildar
Dagskrá

Almenn mál - umsagnir og vísanir

1.24053801 - Sáttmáli um símalausa skóla í Kópavogi

Óskað eftir umsögn ungmennaráðs í tengslum við sáttmála um símalaust skóla- og frístundastarf í grunnskólum Kópavogs.



Ungmennaráð styður að gerður sé sameiginlegur sáttmáli um símalaust skólastarf. Fulltrúar ungmennaráðs telja mikilvægt að slíkur sáttmáli byggi á trausti, samráði við börn og ungmenni og raunhæfum lausnum sem styðja nám, líðan og félagslíf nemenda.

Gestir

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - mæting: 18:00
  • Ingibjörg Ýr Pálmadóttir - mæting: 18:00
  • Bergþóra Þórhallsdóttir - mæting: 18:00

Almenn mál

2.25021357 - Barnaþing Kópavogs 2025

Svör við tillögum barna-og ungmennaþings 2025 lögð fram til kynningar

Almenn mál

3.2602055 - Barna- og ungmennaþing 2026

Umræða og undirbúningur fyrir barna- og ungmennaþing 2026.

Barnaþing Kópavogs verður haldið 18.mars 2026, stefnt er á að halda ungmennaþing í sömu viku.

Fundi slitið - kl. 20:00.