Nafnasamkeppni

Efnt hefur verið til nafnasamkeppni um heiti á Menningarmiðstöðinni. Tekið er við innsendum tillögum til 26.maí næstkomandi. Dómnefnd fer yfir tillögur og verður höfundi vinningstillögu veitt glæsileg verðlaun. Dómnefndina skipa: Eyrún Ósk Jónsdóttir, skáld og verkefnastjóri fræðslu og miðlunar hjá Bókasafni Kópavogs, formaður nefndarinnar, Bragi Valdimar Skúlason, tónlistamaður, textasmiður og íslenskufræðingur og Hrafnhildur Davíðsdóttir, Kópavogsbúi og nemandi í verkfræði við HÍ.

Senda inn tillögu

Reglur

  1. Þátttaka
    Samkeppnin er opin öllum.
  2. Markmið
    Markmið samkeppninnar er að finna heppilegt og lýsandi nafn á nýja menningarmiðstöð í Smáralind sem endurspeglar hlutverk hennar, staðsetningu og tengsl við Kópavog.
  3. Kröfur til tillagna
    Tillögur skulu:

    • Vera á íslensku (nema sérstök rök mæli með öðru).
    • Vera stuttar, skýrar og auðveldar í notkun.
    • Ekki brjóta gegn höfundarrétti eða vera þegar í notkun í sambærilegu samhengi. Þátttakendur eru hvattir til að láta stuttan rökstuðning fylgja tillögunni.
  4. Fjöldi tillagna
    Hver þátttakandi má senda inn fleiri en eina tillögu.
  5. Skil á tillögum
    Tillögur skulu sendar með rafrænu eyðublaði.
  6. Dómnefnd
    Dómnefnd velur úr innsendum tillögum.
  7. Val og niðurstaða
    Dómnefnd áskilur sér rétt til að:

    • Velja eina tillögu.
    • Sameina eða aðlaga tillögur.
    • Hafna öllum tillögum ef engin telst fullnægjandi.
  8. Réttindi
    Með innsendingu tillögu samþykkir þátttakandi að Kópavogsbær megi nota nafnið án frekari greiðslu eða kvaða.
  9. Birting niðurstöðu
    Niðurstaða verður kynnt opinberlega að loknu mati dómnefndar.
  10. Sama tillaga frá mörgum
    Ef fleiri en einn senda inn þá tillögu sem verður fyrir valinu verður vinningshafi með því að draga úr tillögunum. 



Menningarmiðstöð í Smáralind

 

Menningarmiðstöð í Smáralind