Forsætisnefnd

99. fundur 06. september 2017 kl. 18:15 - 19:59 á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Fundinn sátu:
  • Margrét Friðriksdóttir aðalmaður
  • Sverrir Óskarsson aðalmaður
  • Ása Richardsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Almenn mál

1.1604245 - Skráning fjárhagslegra hagsmuna. Tillaga frá Pétri Hrafni Sigurðssyni og Ásu Richardsdóttur.

Frá bæjarritara, dags. 18. júlí, lögð fram umsögn vegna tillögu um reglur um hagsmunaskráningu bæjarfulltrúa. Bæjarráð samþykkti á fundi þann 27. júlí sl. að vísa málinu til forsætisnefndar til umsagnar.
Frestað til næsta fundar.

Almenn mál

2.1001158 - Dagskrá bæjarstjórnarfundar

I. Önnur mál - fundargerðir
II. Kosningar

Almenn mál

3.1702584 - Útsending bæjarstjórnarfunda

Forsætisnefnd samþykkir samhljóða að hafin verði myndupptaka af fundum bæjarstjórnar frá og með 12. september 2017.

Almenn mál

4.17081667 - Tillaga frá Ólafi Þ. Gunnarssyni. Breyting á bæjarmálasamþykkt, fjölgun bæjarfulltrúa

Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni, bæjarfulltrúa um breytingu á bæjarmálasamþykkt Kópavogs. Bæjarráð samþykkir að 1. grein Bæjarmálasamþykktar Kópavogs hljóði þannig: 1. grein Skipan bæjarstjórnar Bæjarstjórn Kópavogs er skipuð 15 fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt lögum um kosningar til bæjarstjórna. Jafnframt að 27. grein orðist svo: 27. gr. Kosning bæjarráðs. Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa sjö aðalmenn og jafnmarga varamenn í bæjarráð til eins árs. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga. Þeir bæjarfulltrúar og varabæjarfulltrúar, sem kosningu hafa hlotið af sama lista og hinn kjörni bæjarráðsmaður eru varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann bæjarráðs úr hópi kjörinna bæjarráðsmanna. Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Kosning í bæjarráð skal vera leynileg og bundin hlutfallskosning sé þess óskað. Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráðið. Erindinu var vísað til forsætisnefndar í bæjarráði 24.ágúst.
Frestað til næsta fundar.

Almenn mál

5.1705912 - Tillaga um að fundargerðir Ungmennaráðs Kópavogs verði lagðar fyrir bæjarráð og að fulltrúar ungmennaráðs verði boðaðir á fund bæjarstjórnar

Forsætisnefnd óskaði eftir því á síðasta fundi að ábyrgðarmaður Ungmennaráðs komi á næsta fund nefndarinnar til að fara yfir málefni Ungmennaráðs.
Umræður um fundarfyrirkomulag ungmennaráðs.

Gestir

  • Amanda K. Ólafsdóttir - mæting: 18:30
  • Andri Þór Lefever - mæting: 18:30

Fundi slitið - kl. 19:59.