Jakob Sindri Þórsson teymisstjóri stafrænnar þróunar, David Young hönnuður hjá Metal, Gunnar Guðmundsson deildarstjóri íþróttadeildar og Vésteinn Bjarnason forritari hjá Wise.


Kópavogsbær hefur tekið í notkun rafrænt sundkort sem hægt er að kaupa á netinu og setja beint í símaveski. Kortið gildir í Salalaug og Kópavogslaug og er selt á www.sund.kopavogur.is.

Með innleiðingunni verður einfaldara fyrir íbúa og aðra gesti sundlauga Kópavogs að ganga frá kaupum þegar þeim hentar, hvort sem það er í síma eða tölvu. Að kaupum loknum er kortinu bætt í símaveski notanda og það síðan virkjað í afgreiðslu sundlauganna áður en það er notað í fyrsta sinn.

Einfaldari kaup og betra aðgengi

Markmið verkefnisins er að gera þjónustu sundlauga Kópavogs aðgengilegri og minnka þörfina fyrir handvirka afgreiðslu við kaup á sundkortum. Í stað þess að þurfa að ganga frá kaupum á staðnum geta notendur nú keypt árskort á netinu og haft það alltaf tiltækt í símanum.

Í fyrstu útgáfu er hægt að kaupa árskort í sundlaugar Kópavogs. Næsti fasi gerir ráð fyrir að handhafakort/punktakort og stakir miðar bætist við söluna. Samhliða verður mótað ferli til að færa eldri pappírssundkort yfir í stafrænt form.

Lausnin er innleidd í skrefum. Með því að innleiða lausnina í áföngum er hægt að tryggja að ferlið virki vel fyrir bæði notendur og starfsfólk sundlauganna áður en fleiri tegundir korta og miða bætast við.

Virkjað við fyrstu komu

Eftir að viðskiptavinur hefur keypt rafrænt árskort og bætt því í símaveski þarf að virkja kortið í afgreiðslu sundlauganna. Starfsfólk staðfestir kaupin, tekur ljósmynd af korthafa og skráir myndina við kortið.

Myndatakan er hluti af virkjunarferlinu þar sem árskort eru persónubundin. Markmiðið er að tryggja að réttur korthafi noti kortið og að kort veiti ekki aðgang fyrr en mynd hefur verið skráð við það. Þegar virkjun er lokið er hægt að prófa kortið í fyrsta sinn.

Samstarf um stafræna þjónustu

Verkefnið var unnið í samstarfi Kópavogsbæjar, Wise, Metals og Via-System.

Að verkefninu komu Jakob Sindri Þórsson, teymisstjóri stafrænnar þróunar, Gunnar Guðmundsson, deildarstjóri íþróttadeildar, Guðmundur Halldórsson, forstöðumaður Salalaugar og Boðaþings, og Jakob Þorsteinsson, forstöðumaður Kópavogslaugar.

Frá Wise kom Vésteinn Bjarnason að forritun lausnarinnar og frá Metall kom David Young að hönnun viðmóts. Tommy Bach Lauritsen frá Via-System kom einnig að verkefninu sem tengiliður vegna aðgangshliða í sundlaugunum.

Þjónusta sem fólk getur nálgast þegar því hentar

Rafræna sundkortið er dæmi um þjónustu sem færist nær notandanum. Kaupin fara fram á netinu, kortið er geymt í símanum og notandinn þarf ekki að halda utan um plastkort eða pappírskort.

Verkefnið er liður í því að þróa stafræna þjónustu Kópavogsbæjar áfram og gera íbúum og gestum kleift að nálgast þjónustu bæjarins með einfaldari og nútímalegri hætti.