Afgreiðslur byggingarfulltrúa

350. fundur 19. ágúst 2022 kl. 11:00 - 12:00 á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Guðrún Hauksdóttir starfsmaður nefndar
  • Jens Karl Bernharðsson starfsmaður tæknisviðs
  • Sigurbjartur Halldórsson aðstoðarbyggingarfulltrúi
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsstjóri
  • Þórólfur Óskarsson starfsmaður nefndar
Fundargerð ritaði: Guðrún Hauksdóttir
Dagskrá

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

1.2208163 - Álfkonuhvarf 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Terra Einingar ehf., Hringhella 6, Hafnarfirði, sækir um leyfi til að byggja leikskóla með færanlegum einingum að Álfkonuhvarfi 17.
Teikning: Páll Poulsen.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 19. ágúst 2022. Samrýmist lögum nr. 160/2010

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

2.1804205 - Borgarholtsbraut 21, byggingarleyfi.

Guðrún Sigurgeirsdóttir, Borgarholtsbraut 21, Kópavogi, sækir um leyfi til að endurbyggja kvist á suðurhlið að Borgarholtsbraut 21.
Teikning: Jón Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 19. ágúst 2022. Samrýmist lögum nr. 160/2010

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

3.2208189 - Dalsmári 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Kópavogsbær, Digranesvegi 1, Kópavogi, sækir um leyfi til að gera varnarmannaskýli steypta í sökkli í stað færanlegra að Dalsmára 7.
Teikning: Jakob Líndal.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 19. ágúst 2022. Samrýmist lögum nr. 160/2010

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

4.2208050 - Hlíðarvegur 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Fagsmíði ehf., Hlíðarhjalla 43, Kópavogi, sækir um leyfi til að byggja fjölbýlishús í stað einbýlishús að Hlíðarvegi 15.
Teikning: Andri G. L. Andrésson.
Byggingarfulltrúi vísar umsókninni 19. ágúst 2022 til skipulagsráðs með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

5.22061270 - Markavegur 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Guðjón Jónasson, Fensalir 10, Kópavogi, sækir um leyfi til að byggja hesthús að Markarvegi 7.
Teikning: Ómar Pétursson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 19. ágúst 2022. Samrýmist lögum nr. 160/2010

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

6.2208301 - Smiðjuvegur 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Skiki ehf., Síðumúla 34, Reykjavík, sækir um leyfi til að gera breytingar á gluggum, inngangshurðum og klæðningu að Smiðjuvegur 3.
Teikning: Guðmundur Oddur Víðisson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 19. ágúst 2022. Samrýmist lögum nr. 160/2010

Fundi slitið - kl. 12:00.