Afgreiðslur byggingarfulltrúa

424. fundur 01. ágúst 2025 kl. 11:00 - 11:33 á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Guðrún Hauksdóttir starfsmaður nefndar
  • Sigurbjartur Halldórsson aðstoðarbyggingarfulltrúi
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurgeir Sveinsson
  • Harri Ormarsson lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Guðrún Hauksdóttir fulltrúi byggingarfulltrúa.
Dagskrá

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

1.25061915 - Dalsmári 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi fyrir færanlegum kennskustofum að Dalsmári 1-3.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

2.25051607 - Hlíðarvegur 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi fyrir að byggja 4 íbúða fjölbýlishús á tveimur hæðum í stað einbýli að Hlíðarveg 15.
Vísað til skipulagsfulltrúa með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

3.2507975 - Meltröð 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi fyrir að stækka kvisti að Meltröð 10.
Vísað til skipulagsfulltrúa með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

4.2502771 - Fjallalind 108 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi fyrir þegar byggðum bílskúr, stoðveggur, bætt hefur verið hurð og glugga á neðri hæð og stækka svalir á efri hæð að Fjallalind 108.
Frestað, vísað til athugasemda

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

5.2506996 - Hlíðarhvarf 21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi fyrir að byggja 184,4m2 einbýlishús á einni hæð að Hlíðarhvarfi 21.
Frestað, vísað til athugasemda

Fundi slitið - kl. 11:33.