Afgreiðslur byggingarfulltrúa

437. fundur 13. febrúar 2026 kl. 11:00 - 11:44 á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Guðrún Hauksdóttir starfsmaður nefndar
  • Valdimar Gunnarsson byggingarfulltrúi
  • Sigurbjartur Halldórsson aðstoðarbyggingarfulltrúi
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Þórunn Vilmarsdóttir
  • Harri Ormarsson lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Guðrún Hauksdóttir fulltrúi byggingarfulltrúa.
Dagskrá

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

1.2502834 - Auðbrekka 32 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að breyta 2. hæð í tvær 72 og 73m2 íbúðir og 3. hæð í eina 145m2 íbúð. Setja stálstiga á suðurhlið og stál svalir á norðurhlið og klæða húsið að utan með álklæðningu, á lóð Auðbrekku 32.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

2.25092846 - Borgarholtsbraut 25 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að lyfta lofti íbúðar efri hæðar að hluta til upp í þakvirki og setja tvo þakglugga á þakið, á lóð Borgarholtsbrautar 25.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

3.2504883 - Digranesvegur 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að lagfæra á skráningartöflu á færanlegum kennslustofum, á lóð Digranesvegar 15.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

4.24062194 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Fossahvarf 7

Sótt er um leyfi til að byggja 27m2 viðbyggingu ofaná svalir milli húsa, á lóð Fossahvarfs 7.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

5.26013062 - Hagasmári 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að innrétta skrifstofur ásamt fundarherbergi á 3. hæð, í vestur enda hússins í rými nr. 3515, á lóð Hagasmára 1.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

6.25112376 - Langabrekka 33 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að rífa núverandi 32m2 bílgeymslu og byggja í stað hennar 57m2 bílageymslu á lóðamörkum við Löngubrekku 31. Jafnframt er sótt um leyfi til að byggja stoðvegg á lóðamörk við Álfhólsveg 37 og Löngubrekku 35, á lóðinni Löngubrekku 33.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

7.2509354 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Laufbrekka 3

Sótt er um leyfi til að byggja 11m2 geymslu undir úti stigapalli að norðanverðu, á lóð Laufbrekku 3.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

8.2602324 - Marbakkabraut 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 143m2 einbýlishús á einni hæð sunnan við núverandi hús, á lóð Marbakkabrautar 38.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

9.25121388 - Nýbýlavegur 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 8m2 viðbyggingu á norðurhlið fyrir lyftu á milli 1. og 2. hæðar, á lóð Nýbýlavegar 6.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

10.25031630 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Skjólbraut 5

Sótt er um leyfi til að hækka þak hússins og setja kvisti á þakið, einn kvist að norðanverðu og annan að sunnanverðu, á lóð Skjólbrautar 5.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

11.25101787 - Skyggnishvarf 25 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi fyrir 8m2 dreifistöð, á lóð Skyggnishvarfs 25.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

12.25051316 - Smáratorg 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi fyrir 25m2 LED auglýsingaskjá með birtuskynjara á norðurgafli á 2. hæð, á lóð Smáratorgs 3.



Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltúa dags. 30. janúar 2026.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa 30. jánúar 2026.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

13.2501809 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Urðarhvarf 16

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á brunahönnun hússins og eldhúsi á 1. hæð, á lóð Urðarhvarfs 16.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

14.2507598 - Akrakór 5B - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi 1. hæðar, á lóð Akrakórs 5B.
Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

15.24052624 - Birkihvammur 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi íbúðar á 3ju hæð, á lóð Birkihvamms 9.
Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

16.2512975 - Hæðarhvarf 18 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja tvö 250m2 parhús á tveimur hæðum, á lóð Hæðarhvarfs 18-20
Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

17.24031698 - Nýbýlavegur 32 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að breyta notkun 3ju hæðar í gistiheimili, á lóð Nýbýlavegar 32.
Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

18.25102303 - Stöðvarhvarf 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 579m2 fjórbýlishús á tveimur hæðum, á lóð Stöðvarhvarfs 2.
Frestað, vísað til athugasemda.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

19.2111028 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Víðigrund 23

Sótt er um leyfi til að lagfæra skráningartöflu, á lóð Víðigrundar 23.
Frestað, vísað til athugasemda.

Fundi slitið - kl. 11:44.