Afgreiðslur byggingarfulltrúa

439. fundur 13. mars 2026 kl. 11:00 - 11:48 á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Guðrún Hauksdóttir starfsmaður nefndar
  • Valdimar Gunnarsson byggingarfulltrúi
  • Sigurbjartur Halldórsson aðstoðarbyggingarfulltrúi
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Þórunn Vilmarsdóttir
  • Harri Ormarsson lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Guðrún Hauksdóttir fulltrúi byggingarfulltrúa.
Dagskrá

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

1.26031057 - Álalind 14-16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi fyrir svalalokunum á fyrstu til níundu hæð fjölbýlishúsins, á lóð Álalindar 14.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

2.2507384 - Digranesheiði 31 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 17m2 viðbyggingu ofan á staðsteyptan bílskúr þar sem svalir eru nú samþykktar, breytingu á innra skipulagi á efri hæð, og breyta bílskúr í studió íbúð, á lóð Digranesheiðar 31.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

3.2508491 - Fannborg 4, umsókn um byggingarleyfi (niðurrif).

Sótt er um leyfi fyrir niðurrifi á 513m2 skrifstofubyggingu á tveimur hæðum á lóð Fannborgar 4.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Óheimilt er að rífa hús neðar en að efri brún plötu yfir bílastæðahúsi.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

4.2508489 - Fannborg 6, umsókn um byggingarleyfi (niðurrif)

Sótt er um leyfi fyrir niðurrifi á 515m² skrifstofubyggingu á þremur hæðum, á lóð Fannborgar 6.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Óheimilt er að rífa hús neðar en að efri brún plötu yfir bílastæðahúsi.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

5.23042152 - Hafnarbraut 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á gluggum og innihurðum fjölbýlishúss, á lóð Hafnarbrautar 10.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

6.2603810 - Hagasmári 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi á rýmum U315 og U316 og sameina í eitt 199m2 rými, á lóð Hagasmára 1.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

7.26011265 - Hamraborg 11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á brunavörnum veitingastaðar á 1. hæð og kjallara, á lóð Hamraborgar 11.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

8.2510460 - Hæðarhvarf 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 246m2 einbýlishús á tveimur hæðum, á lóð Hæðarhvarfs 4.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

9.2509912 - Kambavegur 1 Dreifistöð - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að uppfæra málsetningar á teikningum fyrir dreifistöð, á lóð Kambavegar 1.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

10.2601437 - Reynihvammur 27 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi íbúðar og sameignar, fjarlægja burðarveggi, á lóð Reynihvamms 27.



Samþykki meðeiganda liggur fyrir og teikning burðarþolshönnuðar.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Áskilið er að gera þarf nýja eignaskiptayfirlýsingu.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

11.25081318 - Roðahvarf 23 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að uppfæra málsetningar á teikningum fyrir dreifistöð, á lóð Roðahvarfs 23.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

12.25031630 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Skjólbraut 5

Sótt er um leyfi til að hækka þak hússins og setja kvisti á þakið, einn kvist að norðanverðu og annan að sunnanverðu, á lóð Skjólbrautar 5.
Vísað til skipulagsfulltrúa með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

13.26011525 - Smáratorg 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi á léttum innveggjum og innréttingum 10, 11 og 18 hæð, á lóð Smáratorgs 3.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

14.25102303 - Stöðvarhvarf 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 580m2 fjórbýlishús á tveimur hæðum, á lóð Stöðvahvarfs.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

15.26011310 - Urðarhvarf 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi í rými 0303 á léttum innveggjum og innréttingum, á lóð Urðarhvarfs 8.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

16.26021990 - Skemmuvegur 4A - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi og bæta tveimur gluggum á vesturhlið, á lóð Skemmuvegar 4A.
Frestað, vísað til athugasemda.

Fundi slitið - kl. 11:48.