Dagskrá
Afgreiðsla byggingarfulltrúa
1.2604068 - Fossvogsbrú - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að byggja 270 m langa stálbitabrú yfir Fossvog fyrir almenningssamgöngur, göngu- og hjólastíga.
Erindinu fylgir minnisblað Eflu varðandi framkvæmdina dags. 6. júní 2025, yfirfarnir gátlistar I, II og III frá Eflu dags. 28. janúar 2025, 2. maí 2025 og 26. júní 2024, verkáætlun, skýrsla um verkhönnun frá Eflu dags. 29. janúar 2025 og samantekt á hönnunargögnum dags. í maí 2025.
Afgreiðsla byggingarfulltrúa
2.25122403 - Brattatunga 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að byggja 40m2 vinnu-/tómstundahús á suðurenda lóðar, á lóð Bröttutungu 6.
Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltúa dags. 24. mars 2026.
Afgreiðsla byggingarfulltrúa
3.26012058 - Búðakór 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að breyta skilti í LED skilti og stækka niðurávið, ljósflötur austurhliðar stækkaður um 8m² og verður allt að 12m² og vesturhliðar um 4m² og verður allt að 7m², á lóð Búðarkórs 1.
Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltúa dags. 24. mars 2026.
Afgreiðsla byggingarfulltrúa
4.25121388 - Nýbýlavegur 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að byggja 8m2 viðbyggingu á norðurhlið fyrir lyftu á milli 1. og 2. hæðar, á lóð Nýbýlavegar 6.
Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltúa dags. 25. mars 2026.
Afgreiðsla byggingarfulltrúa
5.26021140 - Nýbýlavegur 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulag á nýjum "take away" veitingastað í hluta fyrstu hæðar, á lóð Nýbýlavegar 8.
Afgreiðsla byggingarfulltrúa
6.25111911 - Hallahvarf 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að byggja 302m2 parhús á tveimur hæðum, á lóð Hallarhvarfs 1.
Afgreiðsla byggingarfulltrúa
7.25112020 - Hallahvarf 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að byggja 302m2 parhús á tveimur hæðum, á lóð Hallarhvarfs 3.
Afgreiðsla byggingarfulltrúa
8.26031163 - Smiðjuvegur 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að byggja tvær, samtals 1423m2, viðbyggingar við iðnarðarhús, á lóð Smiðjuvegar 7.
Afgreiðsla byggingarfulltrúa
9.24111664 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Vatnsendablettur 4
Sótt er um leyfi til að byggja 67m2 bílskúr við hlið núverandi íbúðarhús, á lóð Vatnsendabletts 4.
Fundi slitið - kl. 11:24.