Afgreiðslur byggingarfulltrúa

442. fundur 24. apríl 2026 kl. 11:00 - 11:27 á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Guðrún Hauksdóttir starfsmaður nefndar
  • Valdimar Gunnarsson byggingarfulltrúi
  • Sigurbjartur Halldórsson aðstoðarbyggingarfulltrúi
  • Þórunn Vilmarsdóttir
  • Harri Ormarsson lögfræðingur
  • Gylfi Ástbjartsson
  • Freyr Snorrason
Fundargerð ritaði: Guðrún Hauksdóttir fulltrúi byggingarfulltrúa.
Dagskrá

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

1.25112210 - Bæjarlind 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi 2. og 3. hæðar. Á 2. hæð er verslun breytt í skrifstofur og starfsmannaaðstöður, á 3 hæð eru breytingar á léttum veggjum í norðurhluta atvinnuhúsnæðis, á lóð Bæjarlindar 12.



Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltúa dags. 24. mars 2026.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

2.25112169 - Hlíðasmári 15-19 15R - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að leiðrétta skráningu á eignarhaldi á loftræstiklefa, á lóð Hlíðasmára 19.



Skilyrt er að uppfærð eignaskiptayfirlýsing vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

3.25062249 - Holtagerði 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að endurbyggja og stækka núverandi sólstofu úr 17m2 í 26m2 ofan á bílskúr tvíbýlishúss, ásamt því að setja vegg við hlið útitrappa sem styðja munu undir nýjar svalir efrihæðar, á lóð Holtagerðis 4.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

4.26033184 - Kópavogsbraut 1A,B,C - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um að innrétta tvö hjónaherbergi, alls fjögur rými, þar sem áður voru geymslur á jarðhæð deildarinnar Álfhóls . Samhliða þessu er sótt um að grafa frá norðurhlið álmunnar og saga fyrir nýjum gluggum, á lóð Kópavogsbrautar 1C.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

5.26033547 - Melgerði 14 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja yfir verönd framan við forstofu, taka niður burðavegg í eldhúsi og stofu, á lóð Melgerðs 14.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

6.24111664 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Vatnsendablettur 4

Sótt er um leyfi til að byggja 67m2 bílskúr norðaustan megin við hlið núverandi íbúðarhús, á lóð Vatnsendabletts 4.
Samþykkt. Samrýmist ákvæðum laga nr. 160/2010.

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

7.26033837 - Aflakór 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að fá samþykktar reyndarteikningar, gluggum og hurð breytt, á lóð Aflakórs 2.
Frestað, vísað til athugasemda

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

8.2604066 - Bæjarlind 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi og skráningartöflu, jógastudio innréttað í rými 0102, á lóð Bæjarlindar 12.
Frestað, vísað til athugasemda

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

9.25081316 - Dalvegur 30 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingu á staðsetningu spennustöðvar innan byggigarreits, á lóð Dalvegs 30C.
Frestað, vísað til athugasemda

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

10.2604018 - Engihjalli 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að opna á milli rýma 0103 og 0104 og breyta innra skipulagi veitingastaðar, á lóð Engihjalla 8.
Frestað, vísað til athugasemda

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

11.2512667 - Kópavogsbraut 105 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 55m2 bilageymslu og 31m2 svalir norðvestanmegin á núverandi húsi ásamt leyfi fyrir áðurgerðum minniháttar breytingum, á lóð Kópavogsbrautar 105.
Frestað, vísað til athugasemda

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

12.2603244 - Roðahvarf 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 3ja hæða fjölbýlishús ásamt kjallara, samtals 31 íbúð, á lóð Roðahvarfs 10.
Frestað, vísað til athugasemda

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

13.26021990 - Skemmuvegur 4A - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á innra skipulagi og bæta við tveimur gluggum á vesturhlið húss oh innra skipulagi breytt, á lóð Skemmuvegar 4A.
Frestað, vísað til athugasemda

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

14.2511059 - Smiðjuvegur 11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að byggja 27m2 útbyggingu á norðurhlið, breyta innra skipulagi, stærð á millipalli og gluggasetningum í útveggjum, á lóð Smiðjuvegar 11.
Frestað, vísað til athugasemda

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

15.2602871 - Sunnubraut 29 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Sótt er um leyfi til að gera breytingar á þegar byggðu einbýlis húsi. Breytingarnar ná til burðarvirkis ytrabirgðis og innraskipulags. Einnig bætast við fermertar í skráningu þar sem hækka á lofhæð í þegarbyggðu rými ( bátaskýli) sem áður var ósamþykkt rými. Ekki er verið að byggja við húsið, á lóð Sunnubrautar 29.
Frestað, vísað til athugasemda

Fundi slitið - kl. 11:27.