Bæjarráð

2654. fundur 20. september 2012 kl. 08:15 - 10:15 í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Fundinn sátu:
  • Rannveig H Ásgeirsdóttir formaður
  • Ármann Kristinn Ólafsson aðalfulltrúi
  • Ómar Stefánsson aðalfulltrúi
  • Guðríður Arnardóttir aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson aðalfulltrúi
  • Hjálmar Hjálmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður
Dagskrá

1.1209013 - Afgreiðslur byggingarfulltrúa, dags. 18. september

57. fundur

Bæjarráð staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa.

2.1209011 - Forvarna- og frístundanefnd, 13. september

11. fundur

Lagt fram.

3.1209007 - Skipulagsnefnd, 13. september

1216. fundur

Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

4.1205200 - Vatnsendablettur 4, Fagrabrekka - Ný íbúðarlóð

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu ásamt ofangreindri umsögn að því gefnu að aðkoma sé tryggð og frárennslismál séu í lagi. Vísað til bæjarstjórnar og bæjarráðs til staðfestingar.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 2 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

5.1204242 - Engjaþing 1, 3 og 5. Breytt deiliskipulag.

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu ásamt umsögn skipulags- og byggingadeildar. Vísað til bæjarstjórnar og bæjarráðs til staðfestingar.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 3 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

 

Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:

"Teldi eðlilegt að málið yrði afgreitt í bæjarráði þar sem allir fulltrúar voru því fylgjandi í skipulagsnefnd og hraða með því afgreiðslu málsins."

 

Bókun Ómars Stefánssonar :

"Ég minni á fyrri bókanir varðandi skipulagsmál og afgreiðslu þeirra."

6.1208332 - Þríhnúkagígur - aðgengi, aðkoma og þjónustubygging.

Lagt fram að nýju erindi Skipulagsstofnunar dags. 3. ágúst 2012 og skýrslu um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðra framkvæmda við Þríhnúkagíg - aðgengi, aðkomu og þjónustubyggingu, ásamt minnisblaði skipulags- og byggingardeildar dags. 18. september 2012 varðandi skýrsluna. Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 4 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

7.1111541 - Kópavogsbraut 98, umsókn um byggingarleyfi.

Lóðarhafar Kópavogsbrautar 96 óska eftir frekari rökstuðningi frá skipulagsdeild vegna umsagnar dags. 19. júlí 2012. Lagt fram að nýju ásamt ítarlegri rökstuðningi dags. 18. september 2012. Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 7 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:

"Teldi eðlilegt að málið yrði afgreitt í bæjarráði þar sem allir fulltrúar voru því fylgjandi í skipulagsnefnd og hraða með því afgreiðslu málsins."

8.1103073 - Kársneshöfn. Athafnasvæði. Breytt deiliskipulag.

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og umsögn skipulags- og byggingardeildar, dags. 7. september. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 12 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

9.1011193 - Kópavogstún - Kópavogsgerði. Breytt deiliskipulag.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem umrædd breyting hefur að mati nefndarinnar ekki grenndaráhrif.
Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 14 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:

"Teldi eðlilegt að málið yrði afgreitt í bæjarráði þar sem allir fulltrúar voru því fylgjandi í skipulagsnefnd og hraða með því afgreiðslu málsins."

10.1209154 - Almannakór 5, umsókn um byggingarleyfi.

Með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er að mat skipulagsnefndar að umrædd breyting hafi ekki grenndaráhrif og samþykkir því erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 15 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

 

Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:

"Teldi eðlilegt að málið yrði afgreitt í bæjarráði þar sem allir fulltrúar voru því fylgjandi í skipulagsnefnd og hraða með því afgreiðslu málsins."

11.1201284 - Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 7. september

799. fundur

Lagt fram.

12.1203097 - Vinnuhópur um atvinnumál. Fyrirspurn frá Hjálmari Hjálmarssyni og Ólafi Þór Gunnarssyni

Frá bæjarstjóra, svar við fyrirspurn varðandi vinnuhóp um atvinnumál.

Lagt fram.

13.1201292 - Mánaðarskýrslur Kópavogsbæjar maí, júní og júlí 2012

Frá bæjarritara, mánaðarskýrsla í júní 2012, fyrir starfsemi bæjarins í maí 2012, mánaðarskýrsla í júlí fyrir starfsemi bæjarins í júní 2012 og mánaðarskýrsla í ágúst fyrir starfsemi bæjarins í júlí 2012.

Lagt fram.

14.1205409 - Starfshópur um Kópavogstún, Kópavogsbæinn og Kópavogshælið.

Mál sem frestað var í bæjarráði 23. ágúst sl. Atvinnu- og þróunarráð hvetur bæjarráð til að samþykkja tillögur starfshópsins.

Bæjarráð vísar tillögum starfshóps um Kópavogstún, Kópavogsbæinn og Kópavogshælið til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bókun Ómars Stefánssonar:

"Ég legg áherslu á að nefndin hafi í huga að það var búskapur á jörðinni Kópavogur og það kom fram töluverður áhugi á íbúafundi sem haldinn var 7. júní 2012 að það verði horft til þess í framtíðaruppbyggingu gamla býlisins."

Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:

"Þessi tillaga var lögð fyrir bæjarstjórn í júní sl. og lýsir það ótrúlegu sleifarlagi bæjarstjóra að það taki þrjá mánuði að koma málinu á rekspöl."

Ármann Kr. Ólafsson óskar eftir fundarhléi kl. 9:26

Fundi fram haldið kl. 9:46

Hjálmar Hjálmarsson óskar eftir fundarhléi kl. 9:46

Fundi fram haldið kl. 9:50

Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:

"Því skal haldið til haga að á vakt Hjálmars Hjálmarssonar þar sem hann var í meirihluta í ríflega 20 mánuði þá gerðist nákvæmlega ekki neitt í þessu máli annað en að leggja til að stofnuð yrði nefnd. Síðan nýr meirihluti tók við hefur nefndin verið stofnuð, hún unnið mikið og gott starf og skilað skýrslu. Sú skýrsla fékk umfjöllun í bæjarstjórn og var vísað til bæjarráðs þar sem hún var tekin til umræðu 23. ágúst sl. eftir að álit atvinnu- og þróunarráðs lá fyrir. Í öllu þessu ferli kemur inn í sumarfrí bæjarstjórnar og starfsfólks bæjarins. Hér er um að ræða verkefni þar sem allir hafa unnið í sátt bæði meiri- og minnihluti . Að kalla þessa afgreiðslu bæjarstjóra sleifarlag er með hreinum ólíkindum, ekki síst frá fulltrúa sem t.d. fékk það hlutverk að fara fyrir starfshópum t.d. um leiðarkerfi strætó og fundarsköp bæjarstjórnar en varð ekkert úr verki, þar sem aldrei var kallað til fyrstu funda."

Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:

"Ég geri athugasemdir við orðbragð bæjarstjóra í minn garð í fundarhléi."

Ólafur Þór Gunnarsson óskar eftir fundarhlé kl. 9:52

Fundi fram haldið kl. 9:54

Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:

"Að tala um sleifarlag var niðrandi í þessu samhengi þar sem hratt hefur verið unnið í þessu máli og hraðar heldur en Hjálmar kynntist þegar hann var í meirihluta."

Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:

"Bókun bæjarstjóra vísa ég alfarið til föðurhúsanna. Ég kýs að svara ekki þessari staðleysu í bæjarráði og óska eftir því að málið verði rætt á næsta fundi bæjarstjórnar."

15.1201371 - Útboð vátrygginga sveitarfélagsins

Frá fjármála- og hagsýslustjóra og deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 18. september, upplýsingar varðandi útboð á tryggingum Kópavogsbæjar og húsnæðisnefndar Kópavogs.

Lagt fram.

16.1207122 - Álmakór 17 - breytt deiliskipulag

Afgreiðsla skipulagsnefndar frá 5. september á breyttu deiliskipulagi fyrir Álmakór 17.
Skipulagsnefnd samþykkti erindið og vísaði því til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.

Bæjarráð staðfestir samþykkt skipulagsnefndar.

17.1207228 - Digranesvegur 62, umsókn um byggingarleyfi

Afgreiðsla skipulagsnefndar frá 5. september á umsókn um byggingarleyfi við Digranesveg 62.
Skipulagsnefnd samþykkti erindið og vísaði til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.

Bæjarráð staðfestir samþykkt skipulagsnefndar.

18.1206431 - Digranesvegur 64, umsókn um byggingarleyfi.

Afgreiðsla skipulagsnefndar frá 5. september á umsókn um byggingarleyfi við Digranesveg 64.
Skipulagsnefnd samþykkti erindið og vísaði til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.

Bæjarráð staðfestir samþykkt skipulagsnefndar.

19.1208145 - Dalaþing 8, girðing og garðskýli.

Afgreiðsla skipulagsnefndar frá 5. september á umsókn um að fá að reisa skjólgirðingu og smáhýsi á lóðarmörkum við opið svæði bæjarins.
Skipulagsnefnd samþykkti erindið og vísaði til staðfestingar bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð staðfestir samþykkt skipulagsnefndar.

20.1206392 - Dagforeldrar - þjónustusamningar og breytingar á niðurgreiðslum

Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 17. september og 19. september, tillögur varðandi reglur og framlög vegna barna hjá dagforeldrum.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

21.1206550 - Viðbótarúthlutun sérkennslu skólaárið 2012 - 2013

Erindi skólastjóra grunnskóla í Kópavogi varðandi skerðingu á kennslukvóta grunnskólanna.

Lagt fram.

22.1209304 - Kostnaðarupplýsingar vegna þátttöku starfsmanna í ráðstefnu Félags héraðsskjalavarða á Akureyri 27.-

Frá héraðsskjalaverði, dags. 18. september, upplýsingar sem óskað var eftir á fundi bæjarráðs þann 13. september sl.

Lagt fram.

23.1209305 - Óskir um ný stöðugildi

Frá héraðsskjalaverði, dags. 18. september, óskað eftir 3,5 nýjum stöðugildum á Héraðsskjalasafni Kópavogs.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar.

24.1009232 - Eftirfylgni með úttekt á Leikskólanum Álfaheiði.

Erindi mennta- og menningarmálaráðuneytisins, dags. 10. september, varðandi eftirfylgni með úttekt á Leikskólanum Álfaheiði sem gerð var haustið 2010.

Bæjarráð vísar málinu til menntasviðs.

25.1209182 - Til umsagnar: Drög að heilbrigðisáætlun til ársins 2020

Lögð fram drög að heilbrigðisáætlun frá velferðarráðuneytinu, dags. 10. september, þar sem óskað er umsagnar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarritara til úrvinnslu.

26.1104298 - Vatnsendi. Reiðstígar um land Vatnsenda

Frá Sigurbirni Þorbergssyni hrl., dags. 19. september, afrit af bréfi til hestamannafélagsins Kjóavöllum.

Lagt fram.

27.1209270 - Tilkynning um ágóðahlutagreiðslu 2012

Tilkynning frá Brunabót, dags. 13. september, varðandi ágóðahlutagreiðslu 2012.

Lagt fram.

28.1209187 - Beiðni um gögn til afnota í alþjóðlega verkefninu OpenStreetMap

Lagt fram erindi frá Svavari Kjarrval Lúthersson, dags. 6. september, varðandi beiðni um gögn til afnota í OpenStreetMap.

Bæjarráð vísar málinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til úrvinnslu.

29.1209243 - Strætisvagnaskýli í efstu byggðum Kópavogs

Lagt fram erindi, dags. 14. september, frá Mörtu Ólafsdóttur, varðandi strætivagnaskýli í efstu byggðum Kópavogs.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu.

Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:

"Í janúar á þessu ári skipaði bæjarráð starfshóp undir forystu fulltrúa Kópavogs í Strætó b.s. Var starfshópnum ætlað að fara yfir öll þau mál sem tengjast almenningssamgöngum í Kópavogi. Eðlilegt væri að umrætt mál yrði tekið þar fyrir. Hins vegar hefur fyrrgreindur starfshópur ekki gert neitt og aldrei komið saman. Þetta sýnir glöggt áhugaleysi Gunnars Inga Birgissonar fulltrúa Kópavogs í Strætó b.s. í þessum málaflokki. Það er ámælisvert að bæjarstjóri skuli ekki hafa fylgt eftir ákvörðunum bæjarráðs hvað þetta varðar og lýsir vel sinnuleysi meirihluta Sjálfstæðis og Framsóknarflokksins."

Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:

"Þetta var starfshópurinn sem stofnaður var á meðan Hjálmar Hjálmarsson var í meirihluta og undir hans forystu var aldrei kallaður saman fundur. Það er mjög eðlilegt að fela umhverfis- og samgöngunefnd að fjalla um þetta mál og þarf ekki sérstakan starfshóp til. Þá fjallar erindið ekki um slæmar strætósamgöngur heldur biðskýli."

Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:

"Fyrrverandi bæjarstjóra var falið að framfylgja ákvörðun bæjarráðs. Þar var fulltrúa Kópavogs í Strætó b.s. falið að stýra vinnu starfshópsins. Í febrúar var bæjarstjórinn rekinn og Ármann Kr. Ólafsson ráðinn í hans stað. Þá var Gunnar Ingi Birgisson kjörinn fulltrúi Kópavogs í stjórn Strætó bs. Eðli málsins samkvæmt er það í verkahring nýs bæjarstjóra að fylgja eftir ákvörðun bæjarráðs og nýs fulltrúa í stjórn Strætó bs. að stýra vinnu starfshópsins. Þó svo að undirritaður, fyrrverandi fulltrúi Kópavogs beri ábyrgð á því að umræddur starfshópur var settur á laggirnar getur hann ekki tekið ábyrgð á sleifarlagi Ármanns Kr. Ólafssonar og Gunnars Inga Birgissonar í þessu máli."

Bókun Rannveigar Ásgeirsdóttur:

"Að gefnu tilefni vill formaður bæjarráðs minna fundarmenn á að hafa í huga háttvísi í bókunum sínum og gæta að því að niðrandi ummæli sem geta talist beinast að persónum eru fulltrúum í bæjarráði ósæmandi."

Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:

"Það er formanna nefnda og starfshópa að boða til funda og það eiga bæjarfulltrúar að vita."

Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:

"Ég vil benda bæjarstjóra á að kynna sér feril málsins en undirritaður var aldrei skipaður í þennan hóp með formlegum hætti."

30.1204251 - Akrakór 12. Umsókn um lóð undir íbúðarhúsnæði

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs, dags. 19. september, umsögn um afturköllun lóðarumsóknar.

Bæjarráð samþykkir beiðni lóðarhafa í samræmi við umsögn skrifstofustjóra umhverfissviðs.

31.1209027 - Austurkór 81 og Austurkór 83. Óskað eftir að skila lóðum.

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs, dags. 19. september, umsögn um lóðarskil á Austurkór 81 og 83.

Bæjarráð samþykkir beiðni lóðarhafa í samræmi við umsögn skrifstofustjóra umhverfissviðs og vísar málinu að öðru leyti til sviðsstjóra umhverfissiviðs.

32.1206515 - Lækjarbotnaland. Endurnýjun lóðarleigusamninga.

Frá félagi sumarhúsaeigenda í Lækjarbotnalandi, dags. 27. ágúst, athugasemdir við lóðarleigusamninga í Lækjarbotnalandi.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til sviðsstjóra umhverfissviðs.

33.1209302 - Viðtalstímar bæjarfulltrúa haustið 2012

Frá bæjarritara, dags. 19. september, tillaga að viðtalstímum bæjarfulltrúa, á tímabilinu frá 27. september til 6. desember 2012.

Bókun Guðríðar Arnardóttur:

"Undirrituð er með viðtalstíma allt árið skv. samkomulagi og er kynnt á heimasíðu bæjarins."

34.1001158 - Dagskrá bæjarstjórnarfundar

Rannveigar Ásgeirsdóttur óskar eftir því að sett verði á dagskrá næsta fundar bæjarstjórnar liðurinn kosningar. 

35.1209332 - Fyrirspurn um tímatöflur íþróttafélaganna að beiðni Hjálmars Hjálmarssonar

Bæjarráð samþykkir að vísa fyrirspurninni til úrvinnslu bæjarritara.

Fundi slitið - kl. 10:15.