Bæjarráð

2557. fundur 22. júlí 2010 kl. 12:00 - 15:00 í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá

1.1007007 - Byggingarnefnd 20/7

1317. fundur

Bæjarráð samþykkir fundargerð byggingarnefndar.

2.705025 - Fagraþing 5. Óskað eftir framkvæmdaáætlun.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir áætlun lóðarhafa þar sem kemur fram hvenær húsið að Fagraþingi 5 verði fullgert að utan og lóð jöfnuð í rétta hæð.

3.1007006 - Sérafgreiðslur byggingarfulltrúa 20/7

Fskj. 6/2010

Bæjarráð staðfestir sérafgreiðslur byggingarfulltrúa.

4.1007010 - Húsnæðisnefnd 15/7

354. fundur

5.1007005 - Jafnréttisnefnd 12/7

293. fundur

6.1006105 - Reglur um rafræna skjalavörslu og Handbók um skjalavörslu sveitarfélaga

Frá bæjarritara, dags. 20/7, umsögn um lið 2 í fundargerð stjórnar Héraðsskjalasafns frá 11/3 sl., sem tekin var fyrir í bæjarstjórn 8/6 og vísað til bæjarráðs til úrvinnslu, en bæjarráð vísaði þessum lið til umsagnar bæjarritara á fundi sínum þann 16/6 sl. Lagt er til að bæjarráð beini því til stjórnar Héraðsskjalasafns að það leiti samninga við Þjóðskjalasafn um að það sinni viðtöku og varðveislu rafrænna skjalasafna sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir að beina því til stjórnar Héraðsskjalasafns að það leiti samninga við Þjóðskjalasafn um að það sinni viðtöku og varðveislu rafrænna skjalasafna sveitarfélagsins.

7.805067 - Kattahald í Kópavogi

Frá bæjarlögmanni, dags. 20/7, drög að reglum um kattahald.

Bæjarráð frestar afgreiðslu reglnanna.

8.1006332 - Heimsendi, hesthús. Beiðni um að frárennslislögn verði lögð að lóðarmörkum húsanna

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 16/7, umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði 8/7, um erindi varðandi frárennslislagnir að hesthúsalóðum í Heimsenda. Lagning umræddra frárennslislagna er á fjárhagsáætlun 2010 og verður byrjað á verkinu í ágúst nk.

Bæjarráð felur sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs að svara bréfritara.

9.1006452 - Skólaakstur úr Þingahverfi í Vatnsendaskóla

Deildarstjóri framkvæmdadeildar mætti til fundar og gerði grein fyrir stöðu framkvæmda varðandi göngustíga og lýsingu á svæðinu, samkvæmt framlagðri umsögn dags. 21/7.

Bæjarráð samþykkir að nú þegar gönguleiðir að Vatnsendaskóla hafa verið bættar og lýsing aukin verði skólaakstur lagður af. Fræðslusviði verði falið að kynna gönguleiðir fyrir foreldrum.

 

Guðmundur Freyr Sveinsson vék af fundi undir þessum lið.

10.1007177 - Tillaga frá yfirmanni félagsstarfs aldraðra og kynning á starfsemi DGI Syd vest

Frá yfirmanni félagsstarfs aldraðra, dags. 14/7, tillaga að bæjarstjóri færi Sören Sörensen þakkir fyrir framlag hans til starfsins undanfarin ár.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til afgreiðslu.

11.1007159 - Leikskólaráðgjafi. Umsóknir og ráðning

Frá sviðsstjóra fræðslusviðs og leikskólafulltrúa, dags. 9/7, tillaga að ráðningu í starf leikskólaráðgjafa á leikskólaskrifstofu.

Bæjarráð samþykkir að ráða Sigurlaugu Bjarnadóttur í starf leikskólaráðgjafa.

12.1005100 - Aflakór 14. Ósk um bætur vegna verðmætarýrnun eignar

Frá Ergo lögmönnum, fh. Davíðs Freys Albertssonar og Tinnu Þórhallsdóttur, dags. 18/5, tillaga að breyttri upphæð gatnagerðargjalda og annars kostnaðar varðandi yfirtöku lóðarinnar að Aflakór 14.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.

13.701168 - Boðaþing. Hjúkrunar- og dvalarheimili Hrafnistu

Frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu, dags. 14/7, varðandi fyrirhugaða leigu á rými í þjónustumiðstöðinni að Boðaþingi 9.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til frekari úrvinnslu.

14.1007152 - Skólahreysti óskar eftir styrk fyrir árið 2010

Frá Icefitness ehf., dags. í júlí, umsókn um styrk að upphæð 200.000 kr. vegna Skólahreysti 2010.

Bæjarráð vísar erindinu til forvarnanefndar til afgreiðslu.

15.1007154 - Styrkbeiðni varðandi forkeppni Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu

Frá knattspyrnudeild Breiðabliks, dags. 9/7, óskað eftir að bærinn kosti opinberan málsverð fyrir um 30 manns þann 8/8 í tilefni af forkeppni meistaradeildar kvenna (UEFA Women""s Championship League) og óskað eftir að bæjarstjóri og/eða formaður bæjarráðs verði viðstaddur. Einnig óskar Breiðablik eftir að bærinn standi undir kostnaði við málsverð að loknum síðasta leik mótsins 10/8 og að bæjarstjóri og/eða formaður bæjarráðs verði viðstaddur.

Því miður getur bæjarráð ekki orðið við erindinu.

16.1007153 - Styrkbeiðni vegna byggingar fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum

Frá Háskóla Íslands, stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, dags. 10/7, styrkbeiðni til byggingar fyrir stofnunina á byggingartíma, sem áætlað er að verði um 2 ár.

Bæjarráð getur því miður ekki orðið við erindinu.

17.1007178 - Skottur, samtök kvennasamtaka á Íslandi

Frá Bryndísi Bjarnarson, fh. Skottanna, dags. 30/4, óskað eftir styrk að upphæð 1.000.000 kr. vegna fyrirhugaðrar dagskrár í tilefni af kvennafrídeginum 24. - 25. október nk.

Bæjarráð samþykkir að veita styrk að upphæð krónur 100.000.

18.1007133 - Boðaþing 1-3, lóðaskil

Frá Húsvirki hf., dags. 8/7, lóðinni að Boðaþingi 1-3 skilað inn.

Lagt fram.

 

Gunnar Ingi Birgisson óskar eftir nettó lóðareikningi fyrstu sjö mánuði ársins.

19.1006158 - Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga

Kosning 7 fulltrúa á landsþing Sambandsins, sem verður á Akureyri 29. september til 1. október 2010.

Kosnir voru Guðríður Arnardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Hjálmar Hjálmarsson, Rannveig H. Ásgeirsdóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson og Ómar Stefánsson.

Til vara voru kjörnir Hafsteinn Karlsson, Pétur Ólafsson, Hildur Dungal og Margrét Björnsdóttir.

 

Einnig mun bæjarstjóri sækja landsþingið, sem áheyrnarfulltrúi.

20.1006264 - Kosningar í almannavarnanefnd 2010 - 2014

Kosning tveggja aðalmanna og jafnmargra til vara. Kosningu var frestað í bæjarstjórn 15/6 og 22/6 sl.

Kosningu hlutu:

Guðrún Pálsdóttir bæjarstjóri og Guðríður Arnardóttir sem aðalmenn og Steingrímur Hauksson og Ármann Kr. Ólafsson til vara.

 

21.1006253 - Kosningar í skólanefnd 2010 - 2014

Kosning fimm varamanna í skólanefnd. Kosningu var frestað í bæjarstjórn 15/6 og 22/6 sl.

Kosningu hlutu:

Af A-lista:

Álfheiður Ingimarsdóttir, Fróðaþingi 18

Guðmundur Tómas Axelsson, Ásbraut 2

Hjálmar Hjálmarsson, Reynigrund 83

Af B-lista:

Hallgrímur Viðar Arnarson, Kjarrhólma 32

Sigurður Sigurbjörnsson,

22.1007179 - Bæklingur um byggingu knattspyrnuleikvanga

Frá Knattspyrnusambandi Íslands, dags. 14/7, upplýsingabæklingur með leiðbeiningum varðandi uppbyggingu knattspyrnuleikvanga á Íslandi.

Lagt fram.

23.1007180 - Kynning á riti samtakanna Norrænn byggingardagur - NBD

Frá Norrænum byggingardegi, ódagsett, upplýsingar um sögu samtakanna og fyrirhugað málþing um skipulags- og byggingarmál sem boðað er til í Finnlandi á næsta ári, en Ísland mun væntanlega vera gestgjafi ráðstefnunnar árið 2015.

Lagt fram.

24.1007149 - Ársrit Skógræktar ríkisins 2009

Frá Skógrækt ríkisins, ársrit ársins 2009.

Lagt fram.

25.1007197 - Tillaga um niðurfellingu gatnagerðargjalda.

Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi tillögu:

"Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að Kópavogsbær felli niður gatnagerðargjöld tímabundið vegna stækkunar á eldra húsnæði.

Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og fjármálastjóra verði falið að leggja fram nánari útfærslu á næsta fundi bæjarráðs.

 

Stjórnvöld hafa í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins efnt til hvatningarátaks í þágu innlendrar atvinnustarfsemi. Ríkisstjórnin hefur m.a. hækkað endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við eigið íbúðarhúsnæði og sumarhús í 100% úr 60%.  Leitað hefur verið til fjármálastofnana um að taka þátt í átakinu og bjóða sérstök framkvæmdalán til almennings á hagstæðum kjörum í tengslum við átakið og hafa nokkrar orðið við því.

Sveitarfélög geta lagt sitt af þeim mörkum í þessum efnum og liggur beinast við að fella niður opinber gjöld vegna framkvæmda á eldra húsnæði."

 

Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar.

 

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska eftir að fá fært til bókar að þeir muni taka málið upp að nýju á næsta fundi ráðsins.

26.1007198 - Fjárhagsáætlun 2010.

Gunnar Ingi Birgisson óskar eftir því að sex mánaða uppgjör verði lagt fram til umræðu á næsta fundi bæjarráðs.

Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Að sjálfsögðu verður sex mánaða uppgjör lagt fram þegar það verður tilbúið.

Guðríður Arnardóttir."

27.1007199 - Styrkveiting til Breiðabliks.

Í tilefni af þátttöku Breiðabliks í forkeppni Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu og keppni í Evrópudeild karla samþykkir bæjarráð Kópavogs að færa Breiðablik styrk að fjárhæð kr 100.000 sem renni til búnaðarkaupa liðanna.

Fundi slitið - kl. 15:00.