Bæjarráð

2854. fundur 19. janúar 2017 kl. 08:15 - 10:00 í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Fundinn sátu:
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir formaður
  • Karen Elísabet Halldórsdóttir varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalfulltrúi
  • Ása Richardsdóttir varafulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ármann Kristinn Ólafsson bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

1.16011146 - Mánaðarskýrslur 2016

Frá bæjarritara, lögð fram mánaðarskýrsla vegna starfsemi í nóvember.
Lagt fram.

2.1511228 - Skógræktarfélagið, samstarfssamningur.

Frá verkefnastjóra stjórnsýslusviðs f.h. bæjarstjóra, dags. 17. janúar, lagður fram til samþykktar samstarfssamningur við Skógræktarfélag Kópavogs um áframhaldandi samstarf um skógrækt í Kópavogi árið 2017.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan samning.

3.1701521 - Arakór 5, umsókn um lóð.

Frá bæjarlögmanni, dags. 16. janúar, lögð fram umsókn um lóðina Arakór 5 frá Halldóri I. Christensen, kt. 290682-4369. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda fellur umsóknin að kröfum Kópavogsbæjar fyrir úthlutun.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gefa Halldóri I. Christensen kost á byggingarrétti á lóðinni Arakór 5 og vísar málinu til bæjarstjórnar.

4.1701300 - Austurkór 173, umsókn um lóð.

Frá bæjarlögmanni, dags. 16. janúar, lögð fram umsókn um lóðina Austurkór 173 frá Maríu Rúnarsdóttur, kt. 220178-4639. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda fellur umsóknin að kröfum Kópavogsbæjar fyrir úthlutun.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gefa Maríu Rúnarsdóttur kost á byggingarrétti á lóðinni Austurkór 173 og vísar málinu til bæjarstjórnar.

5.1603751 - Húsnæðismál Skólahljómsveitar

Frá sviðsstjórum menntasviðs og umhverfissviðs, dags. 16. janúar, lagt fram erindi um húsnæði fyrir Skólahljómsveit Kópavogs þar sem lagt er til að staðsetning húsnæðis verði við Álfhólsskóla og að byggt verði við núverandi sal skólahúsnæðisins. Óskað er eftir heimild bæjarráðs fyrir hönnun húsnæðisins og gerð útboðsgagna til framkvæmda.
Bæjarráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum.

6.1701468 - Staða byggingarframkvæmda á hesthúslóðum.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 11. janúar, lagt fram yfirlit um stöðu framkvæmda á hesthúsalóðum sem óskað var eftir á fundi bæjarráðs þann 5. janúar sl.
Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra umhverfissviðs að virkja ákvæði lóðaleigusamninga um framkvæmdahraða og hefja nauðsynlegar aðgerðir til þess að tryggja uppbyggingu svæðisins. Framvinduskýrslu verði skilað til bæjarráðs á fyrsta fundi í febrúar n.k.

7.1609884 - Örútboð Símaþjónustu

Frá forstöðumanni upplýsingatæknideildar, dags. 16. janúar, lagðar fram niðurstöður útboðs á símaþjónustu.
Bæjarráð samþykkir með 5 atkvæðum tilboð lægstbjóðanda Vodafone.

8.1612027 - Örútboð - Internet og erlent gagnamagn fyrir Kópavogsbæ

Frá forstöðumanni upplýsingatæknideildar, dags. 16. janúar, lagðar fram niðurstöður útboðs á internetþjónustu.
Bæjarráð samþykkir með 5 atkvæðum tilboð lægstbjóðanda Vodafone.

9.1511114 - Samþykkt um meðhöndlun úrgangs

Frá Umhverfis- og auðlindaráðuneyti, dags. 11. janúar, lögð fram tilkynning um að ráðuneytið hafi staðfest og sent til birtingar í Stjórnartíðindum samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Kópavogi.
Lagt fram.

10.1701604 - Óskað tilnefninga í skólanefnd Menntaskólans í Kópavogi

Frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti, dags. 12. janúar, lagt fram erindi þar sem óskað er tilnefninga í skólanefnd Menntaskólans í Kópavogi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að tilnefna eftirfarandi aðal- og varamenn:

Anna María Bjarnadóttir aðalmaður og Vignir Halldórsson varamaður
Flosi Eiríksson aðalmaður og Ása Richardsdóttir varamaður

11.1701497 - Skráning menningarminja, fornleifa, húsa og mannvirkja - skil á gögnum

Frá Minjastofnun Íslands, dags. 10. janúar, lagt fram erindi um skil á gögnum vegna skráningar menningarminja; fornleifa, húsa og mannvirkja.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til skipulagsráðs til afgreiðslu.

12.1701393 - Vakin athygli á athugasemdum KÍ við yfirlýsingu samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Frá Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, dags. 9. janúar, lagt fram erindi vegna kjaradeilu þar sem vakin er athygli á athugasemdum Kennarasambands Íslands við yfirlýsingu samninganefndar sveitarfélaga.
Lagt fram.

13.1611394 - Beiðni um styrk

Frá Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, lagt fram þakkarbréf fyrir stuðning við starfsemina á árinu 2016.
Lagt fram.

Bókun bæjarráðs:
Ennfremur eru Mæðrastyrksnefnd færðar þakkir fyrir þeirra framlag til samfélagsins.

14.1701019 - Lista- og menningarráð 66. fundur frá 12.01.2017.

66. fundur í 5. liðum.
Lagt fram.

15.1701002 - Skipulagsráð 1. fundur frá 16.01.2017

1. fundur í 28. liðum.
Lagt fram.
  • 15.8 16051144 Austurkór 177. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju tillaga Stefáns Ingólfssonar arkitekts fyrir hönd lóðarhafa um að reisa einbýlishús á einni hæð án kjallara á lóðinni Austurkór 177 auk þess að lækka botnplötu um 27 cm, samanlagt 205 m2 að grunnfletri. Uppdrættir í mælikvarða 1:100 og 1:500 dags. 20 maí 2016.
    Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum við Austurkór 157, 167, 169, 171, 173, 175, 179, 181, 183, 185. Kynningu lauk 23. desember 2016. Engar athugasemdir og ábendingar bárust.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 1 Skipulagsráð samþykkir tillöguna. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
  • 15.9 1611459 Álmakór 2. Breyting á deiliskipulagi.
    Lögð fram að nýju tillaga Luigi Bartolozzi, arkitekts fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 2 við Álmakór. Í breytingunni felst að hámarks vegghæð hækkar um 0,4 m. Uppdráttur í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 18. nóvember 2016.
    Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndakynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Álmakórs 1, 3 og 4. Kynningartíma lauk 30. desember 2016. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 1 Skipulagsráð samþykkir tillöguna. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
  • 15.10 16061213 Fjallalind 94. Breyting á deiliskipulagi.
    Frá byggingarfulltrúa:
    Lögð fram að nýju tillaga Stefáns Ingólfssonar arkitekts, dagsett 30. apríl 2016, þar sem óskað er eftir að byggja sólpall, kalda geymslu og setlaug að Fjallalind 94. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100.
    Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Fjallalindar 92, 96 og 98. Kynningu lauk 5. desember 2016. Engar athugasemdir og ábendingar bárust.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 1 Skipulagsráð samþykkir tillöguna. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
  • 15.11 1610247 Dalaþing 26. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram að nýju erindi lóðarhafa Dalaþings 26 dags. 12. október 2016 þar sem óskað er eftir að breyta deiliskipulagi lóðarinnar. Í breytingunni felst að í stað einbýlishúss á 2 hæðum verði byggt parhús á tveimur hæðum, byggingarreitur færist ekki til, grunnflötur fyrirhugaðs húss er leyfilegur 260 m2 að grunnfleti með heildarbyggingarmagn að 400 m2. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Dalaþings 13, 15, 17, 19, 20, 21, 23, 24, 25, 27, 28, 30, 32, 34, 36. Kynningartíma lauk 19. desember 2016. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Niðurstaða Skipulagsráð - 1 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
  • 15.12 1611552 Álmakór 6. Breyting á deiliskipulagi.
    Lögð fram að nýju tillaga Kristins Ragnarssonar, arkitekts fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Álmakórs 6. Í breytingunni felst að vegghæð hækkar úr 3,6 m í 4,1 m; hámarkshæð hússins lækkar úr 7,5 m í 6, 3 m; gert er ráð fyrir skyggni 1,2 m x 13,5 m út fyrir byggingarreit á suðurhlið og glerskála á vesturhlið hússins. Uppdrættir í mkv. 1:1000 og 1:500 dags. 28.október 2016. Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndakynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Álmakórs 3, 4, 5 og 8. Þá lagður fram kynningaruppdráttur með árituðu samþykki ofangreindra lóðarhafa við Álmakór. Niðurstaða Skipulagsráð - 1 Skipulagsráð samþykkir tillöguna. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
  • 15.13 1701368 Gulaþing 19. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram erindi Hildar Bjarnadóttur, arkitekts fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi við Gulaþing 19. Í breytingunni felst að í stað einbýlishúss á tveimur hæðum verður byggt einbýlishús á einni hæð liðlega 190 m2 að grunnfleti. Fyrirhuguð bygging mun jafnframt ná um 50 sm út úr innri byggingareit til vesturs, um 3 m út úr innri byggingarreit til suðurs og norðurs. Aðkomuhæðir breytast þannig að fyrir bílskúr er gólfkóti áætlaður 89,80; fyrir anddyri 90,65 og fyrir íbúð 91.84. Uppdrættir í mkv. 1:200 dags. í janúar 2017. Niðurstaða Skipulagsráð - 1 Skipulagsnefnd samþykkir erindið með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa ofangreinda tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
  • 15.20 1605472 Holtagerði 8. Kynning á byggingarleyfi.
    Frá byggingarfulltrúa:
    Lagt fram að nýju erindi Teiknistofunnar Kvarða, dags. 7.4.2016, f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breytingum á Holtagerði 8. Í breyingunni felst að nýta þak bílskúrs fyrir svalir og reisa skjólgirðingu kringum svalir, 1,5 - 1,8 metra á hæð sbr. uppdráttum dags. 7.4.2016.
    Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Holtagerðis 5, 6, 7 og 10; Kársnesbrautar 57 og 59. Þá lagt fram samþykki aðliggjandi lóðarhafa sbr. meðfylgjandi uppdrátt.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 1 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
  • 15.21 1701362 Hólmaþing 5 og 5b. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram erindi Björns Árdal, lóðarhafa Hólmaþingi 5 dags. 13. janúar 2017 þar sem óskað er eftir að skipta 3.165 m2 lóð að Hólmaþingi 5 í tvær lóðið. Hólmaþing 5 verður eftir breytingu 2.020 m2 og lóðin að Hólmaþingi 5b verður 1.145 m2. Ný aðkoma er gerð að Hólmaþingi 5 sem færist frá Hólmaþingi að Gulaþingi. Á lóðinni að Hólmaþingi 5 verður byggingarréttur óbreyttur en á lóðinni Hólmaþingi 5b er gert ráð fyrir einbýlishúsi á einni hæð auk kjallara. Grunnflötur er áætlaður 136 m2 og samanlagður gólfflötur 272 m2. Gert er ráð fyrir þremur bílastæðum á lóð. Aðkoma yrði óbreytt sbr. gildandi deiliskipulag þ.e. milli Hólmaþing 3 og 7. Uppdrættir í mkv. 1:2000 ásamt skýringarmyndum og greinargerð dags. 13. janúar 2017. Niðurstaða Skipulagsráð - 1 Skipulagsnefnd samþykkir erindið með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa ofangreinda tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
  • 15.23 1701534 Gunnarshólmi. Endurbætur og breytingar útihúsa.
    Frá byggingarfulltrúa.
    Lagt fram erindi Dark studió dags. 24. nóvember 2016 fh. eiganda jarðarinnar Gunnarshólma. Í erindinu felst ósk um endurbætur og breytingar á hlöðu og útihúsum sem reist voru á jörðinni 1930 í veitingastað og tvær stúdóíbúðir. Uppdrættir og skýringarmyndir í mkv. 1:100 ásamt greinargerð.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 1 Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
  • 15.24 1701507 Austurkór 50. Breyting á deiliskipulagi.
    Lagt fram erindi Stefáns Hallssonar, byggingartæknifræðings fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi við Austurkór 50. Í breytingunni felst að svalir fara út úr ytri byggingarreit til norðurs og vesturs sbr. uppdrætti í mkv. 1:200 og 1:100. Þá lagður fram áritaður uppdráttur með framangreindri breytingu þar sem fram kemur samþykki lóðarhafa Austurkórs 42, 44, 48 og 52. Niðurstaða Skipulagsráð - 1 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
  • 15.26 1701367 Fossvogsdalur stígar. Breyting á deiliskipulagi.
    Lagt fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 3. desember 2016 varðandi stíga í Fossvogsdal. Í erindinu felst að skipulagsmörk deiliskipulagsins er breytt í samræmi við mörk deiliskipulags Vigdísarlundar þannig að skipulagssvæðið minnkar og nær skipulagið ekki yfir Vígdísarlund. Legu stígs sem flokkast sem aðrir stígar og liggur upp á Fossvogsveg er breytt lítillega. Einnig er tekin út landnotkunin "Skipulagi frestað". Uppdráttur í mkv. 1:2000 dags. 12. desember 2016 ásamt greinargerð. Niðurstaða Skipulagsráð - 1 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

16.1701558 - Fundargerð 438. fundar stjórnar SSH frá 9.1.2017

438. fundur í 5. liðum.
Lagt fram.

17.1701388 - Fundargerð 257. fundar stjórnar Strætó bs. frá 06.01.2017

257. fundur í 5. liðum.
Lagt fram.

18.1612962 - Leiðrétt fundargerð 72. fundar svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 16.12.2016

72. fundur í 8. liðum.
Lagt fram.

Bókun vegna liðs 3 í fundargerðinni:
"Mér vitanlega hefur aldrei farið fram formleg umræða, né gerð samþykkt um, að Borgarlínan fari um brú yfir Fossvog og eftir Kársnesi endilöngu, innan nefnda eða ráða Kópavogsbæjar.
Ólafur Þór Gunnarsson"

Bókun Birkis Jóns Jónssonar:
"Tek undir bókun Ólafs Þórs Gunnarssonar"

19.1701713 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa Ólafs Þórs Gunnarssonar

Undirritaður óskar eftir upplýsingum/yfirliti um

a) Fjölda s.k. óleyfisíbúða í Kópavogi

b) Áætlaðan fjölda íbúa í slíku húsnæði

c) Skiptingu íbúða milli húsnæðis í iðnaðarhverfum og íbúðahverfum

d) Skiptingu (fjölda) eftir hverfum

e) Upplýsingar um brunavarnir og eftirliti með þeim á þessum stöðum

Nokkur umræða skapaðist um liðna helgi vegna bruna á Smiðjuvegi í iðnaðarhúsnæði, þ.s. kom í ljós að voru all-margir íbúar. Góð samstaða hefur verið um húsnæðismál í bæjarstjórn Kópavogs og upplýsingar sem þessar mikilvægt innlegg í umræðu um lausnir á húsnæðisvanda og til að gera áætlanir um aðgerðir til lausnar.

Ólafur Þór Gunnarsson
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu sviðsstjóra umhverfissviðs.

Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:
"Í kjölfar brunans í Smiðjuhverfinu í síðustu viku fundaði ég með slökkviliðsstjóra vegna brunans og stöðunnar í bænum hvað óleyfisíbúðir varðar."

Fundi slitið - kl. 10:00.