Bæjarráð

2880. fundur 24. ágúst 2017 kl. 07:30 - 09:30 á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Fundinn sátu:
  • Hreiðar Oddsson varafulltrúi
  • Karen Elísabet Halldórsdóttir varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalfulltrúi
  • Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir varafulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
  • Kristinn D Gissurarson varafulltrúi
Starfsmenn
  • Páll Magnússon bæjarritari
Fundargerð ritaði: Elísabet J. Þórisdóttir starfsmaður nefndar
Dagskrá
Samkvæmt 35. gr. laga nr. 138/2011 og 32. gr. samþykkta Kópavogsbæjar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella í sumarleyfi hennar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.1703713 - Álalind 14 - 16. Leyfi til veðsetningar

Frá fjármálastjóra, dags. 14. ágúst, lögð fram beiðni f.h. lóðarhafa Álalindar 14-16, Leigugarðar ehf., um heimild til að veðsetja lóðina.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veitt verði umbeðið veðleyfi.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.17081672 - Skilmálar vegna yfirdráttarheimildar veltureiknings

Frá fjármálastjóra, lagður fram til samþykktar samningur um yfirdráttarlán á veltureikningi við Landsbankann hf.
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning um yfirdráttarlán á veltureikningi við Landsbankann hf. með fimm atkvæðum.

Gestir

  • Ingólfur Arnarsson - mæting: 07:33

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.1610154 - Áætlun um stofnun búsetuúrræðis á Nýbýlavegi 30

Frá deildarstjóra ráðgjafa- og íbúðadeildar, dags. 22. ágúst, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimildar til útboðs varðandi stofnun áfangaheimilis á Nýbýlavegi 30.
Bæjarráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum.

Ólafur Þór Gunnarsson tekur undir bókun Arnþórs Sigurðssonar í fundargerð velferðarráðs um málið.

Gestir

  • Aðalsteinn Sigfússon - mæting: 08:12
  • Rannveig María Þorsteinsdóttir - mæting: 08:12

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.1707098 - Samningur um þjónustu Hugarafls

Frá deildarstjóra ráðgajafa- og íbúðadeildar, dags. 21. ágúst, lögð fram drög að samningi við Hugarafl.
Bæjarráð samþykkir samninginn með fimm atkvæðum, enda rúmist hann innan fjárhagsáætlunar.

Gestir

  • Aðalsteinn Sigfússon - mæting: 08:12
  • Rannveig María Þorsteinsdóttir - mæting: 08:12

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.1611147 - Fannborg 2, 4 og 6, sala fasteigna.

Frá bæjarlögmanni, lögð fram drög að auglýsingu vegna sölu fasteigna Kópavogsbæjar í Fannborg.
Fundarhlé hófst kl.07:46. Fundi framhaldið kl. 07:51.
Undirrituð fagna því að húsnæðisskýrsla Kópavogs verði lögð til grundvallar uppbyggingu á reitnum. Ólafur Þór Gunnarsson, Kristinn Dagur Gissurarson og Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

6.17051166 - Austurkór 72, fastanr. 231-3802. Heimild til veðsetningar

Frá lögfræðideild, dags. 16.ágúst, lögð fram beiðni f.h. lóðarhafa Austurkórs 72, um heimild til að veðsetja lóðina.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veðsetning verði heimiluð á lóðinni Austurkór 72 með tryggingabréfi allt að fjárhæð kr. 40.000.000.

Gestir

  • Ingólfur Arnarson - mæting: 07:54

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

7.1707277 - Álfaheiði 4. Birgitta Bjarnadóttir. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi til að starfrækja verslun í heimahúsi

Frá lögfræðideild, dags. 14. ágúst, lögð fram umsögn vegna verslunar í heimahúsi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

8.1703877 - Hamraborg 11. Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts

Frá fulltrúa bæjarlögmanns, dags. 16. ágúst, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Rauða krossins í Kópavogi um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 373.410,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir umsóknina með 5 atkvæðum.

Ýmis erindi

9.17081666 - Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Uppgjör á lífeyrisskuldbindingum hjúkrunarheimila

Frá SÍS, dags. 21. ágúst, lagt fram fullnaðaruppgjör á lífeyrisskuldbindingum hjúkrunarheimila sem starfrækt eru á ábyrgð sveitarfélaga.
Lagt fram. Bæjarráð vísar erindinu til fjármálastjóra til úrlausnar.

Ýmis erindi

10.1702284 - Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040. Breyting. Verklýsing. Hágæðakerfi almenningasamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Borgarlína.

Frá SSH, dags. 3. ágúst, lagðar fram vinnslutillögur vegna að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins og aðalskipulagi hlutaðeigandi sveitarfélaga varðandi borgarlínunnar.
Lagt fram. Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsstjóra til kynningar.

Ýmis erindi

11.17081314 - Vaxtamörk í landi Mosfellsbæjar - verkefnalýsing vegna breytingu á svæðisskipulagi send til umsagnar

Frá SSH, dags. 18. ágúst, lögð fram verkefnislýsingu vegna breytingu á svæðisskipulagi varðandi vaxtamörk í landi Mosfellsbæjar.
Vísað til skipulagsráðs.

Ýmis erindi

12.1612207 - Ytra mat á grunnskólum 2017. Hörðuvallaskóli valinn

Frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, dags. 16. ágúst, lagðar fram niðurstöður ytra mats á starfsemi Hörðuvallaskóla.
Lagt fram.

Ýmis erindi

13.17081671 - Þátttaka samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í stýrihóp SSH um Borgarlínu.

Frá SSH, dags. 8. júní, lagt fram bréf varðandi þátttöku samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í stýrihóp SSH um "Borgarlínu".
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14.1708007F - Íþróttaráð - 74. fundur frá 17.08.2017

Fundargerð í 7. liðum.
Lagt fram.
  • 14.3 1706506 Breiðablik-knattspyrnudeild, umsókn um æfingatíma í íþróttamannvirkjum 2017 - 2018
    Lögð fram að nýju, beiðni knattspyrnudeildar Breiðabliks en erindinu var frestað á fundi íþróttaráðs 15. júní sl. Deildin óskar ekki eftir viðbótartímum við það sem hún hefur nú þegar í Fífunni. Hún óskar eftir sömu tímum í Fagralundi og á liðnu tímabili en gera þarf ráðstafanir vegna aðstæðna þar (útvega tíma annarstaðar nóv - mars).
    Óskað er eftir 4 klst í Kórnum frá 20:00 - 22:00 á þriðjudögum og fimmtudögum fyrir meistaraflokka félagsins, likt og deildin hafði fyrir 3 árum. Þá er óskað eftir 5 klst. í íþróttahúsum Fagralundi milli 17:00 - 19:00 tvo virka daga (ekki föstudaga) til að sinna yngstu iðkendum í nærþjónustu.
    Niðurstaða Íþróttaráð - 74 Íþróttaráð samþykkir að Knattspyrnudeild Breiðabliks fái úthlutað sama tímafjölda í Fífunni og síðasta vetur og sömu tímum og á liðnu tímambili á gervigrasi í Fagralundi.
    Íþróttaráð samþykkir að úthluta 2 tímum á miðvikudögum 15:00 - 17:00 í Fagralundi til félagsins jafnframt sem því stendur til boða að nýta 2 tíma til viðbótar á sunnudögum.
    Íþróttaráð getur ekki útvegað félaginu æfingarými í íþróttamannvirkjum sem ekki eru í eigu eða rekstri Kópavogsbæjar.

    Þá óskar Knattspyrnudeild Breiðabliks og Knattspyrnudeild HK eftir nær 10 tímum í Kórnum sem hingað til hafa verið í útleigu.

    Íþróttaráð samþykkir ósk deildanna þannig að hvort félag um sig fær 2 tíma. Um er að ræða tíma á þriðjudögum milli 20:00 til 22:00 og fimmtudögum milli 20:00 til 22:00. Rúmist úthlutun þessi ekki innan fjárhagsáætlunar 2017 þá taki úthlutunin gildi við næstu áramót enda verði tekið tillit til þessa við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs, til dæmis með hækkun á gjaldskrá fyrir útleigutíma. Íþróttadeild falið að vinna að útfærslu tillögunnar í samstarfi við félögin.
    Niðurstaða Bæjarráð hafnar erindi Íþróttaráðs með fimm atkvæðum þar sem erindið rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar. Að öðru leyti er erindinu vísað til gerðar fjárhagsáætlunar og þá mun niðurstaða skýrslu um nýtingu knattspyrnumannvirkja liggja fyrir.
  • 14.4 1706499 HK-knattspyrnudeild, umsókn um æfingatíma í íþróttamannvirkjum 2017 - 2018
    Lögð fram að nýju beiðni knattspyrnudeildar HK sem frestað var á fundi ráðsins 15. júní sl., þar sem óskað er eftir að bæta við núverandi tíma í Kórnum á mánu-, þriðju- og fimmtudögum frá 20:00 - 21:00 (alls 3 tímar) og um helgar á sunnudögum frá 13:30 - 16:00, alls 2,5 tímum til viðbótar við samfellu við núverandi tíma.
    Deildin óskar einnig eftir sömu tímum á gervigrasinu úti eins og félagið hefur haft. Samanlögð viðbót er 5,5 tímar.
    Niðurstaða Íþróttaráð - 74 Íþróttaráð samþykkir að úthluta Knattspyrnudeild HK sama tímafjölda í Kórnum og félagið hafði síðasta vetur og sömu tíma og á liðnu tímabili á gervigrasi úti við Kórinn.

    Þá óskar Knattspyrnudeild Breiðabliks og Knattspyrnudeild HK eftir nær 10 tímum í Kórnum sem hingað til hafa verið í útleigu.

    Íþróttaráð samþykkir ósk deildanna þannig að hvort félag um sig fær 2 tíma. Um er að ræða tíma á þriðjudögum milli 20:00 til 22:00 og fimmtudögum milli 20:00 til 22:00. Rúmist úthlutun þessi ekki innan fjárhagsáætlunar 2017 þá taki úthlutunin gildi við næstu áramót enda verði tekið tillit til þessa við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs, til dæmis með hækkun á gjaldskrá fyrir útleigutíma. Íþróttadeild falið að vinna að útfærslu tillögunnar í samstarfi við félögin.
    Niðurstaða Bæjarráð hafnar erindi Íþróttaráðs með fimm atkvæðum þar sem erindið rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar. Að öðru leyti er erindinu vísað til gerðar fjárhagsáætlunar og þá mun niðurstaða skýrslu um nýtingu knattspyrnumannvirkja liggja fyrir.

Fundargerðir nefnda

15.1708006F - Menntaráð - 12. fundur frá 15.08.2017

Fundargerð í 4. liðum.
Lagt fram.

Óskað er eftir að sviðsstjórar menntasviðs og skólastjóri Kársnesskóla komi á næsta fund bæjarráðs til að ræða skólastarf Kársnesskóla og framgang verksins.
  • 15.2 1110178 Kostnaður foreldra við skólagöngu barna sinna
    Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 13. júní s.l. eftirfarandi tillögu menntaráðs um aðgerðir til að lækka kostnað foreldra á ritföngum. "Menntaráð áréttar bókun skólanefndar á fundi dags. 3. október 2016 varðandi lækkun ritfangakostnaðar og mælir með að bæjarstjórn samþykki tillögu þess efnis að grunnskólarnir fari í aðgerðir við að lækka ritfangakostnað. Í þeim tilgangi verði hvatt til þess að grunnskólarnir skipuleggi m.a. sameiginleg innkaup í samstarfi við foreldra. Miðað verði við að kostnaður vegna hvers nemanda verði ekki hærri en 4000 kr. á næsta skólaári 2017 -2018."

    Skipulag innkaupa á námsgögnum í kjölfar ofangreindrar bókunar kynnt.
    Niðurstaða Menntaráð - 12 Menntaráð fagnar því að tekist hefur í grunnskólum Kópavogs að lækka kostnað við innkaup á námsgögnum með sameiginlegum innkaupum í samstarfi við foreldrafélögin. Það er mikilvægt velferðarmál fyrir fjölskyldur að kostnaður sé lækkaður jafn mikið og raun ber vitni og jafnframt dregið úr fyrirhöfn foreldra við þessi innkaup.

    Aðeins einn skóli, Snælandsskóli, hefur ekki farið í sameiginleg innkaup með foreldrafélaginu og óskar menntaráð eftir skriflegri skýringu á því frá skólastjóra. Menntaráð leggur áherslu á að málið verði leyst farsællega fyrir skólabyrjun.

    Fundarhlé hófst kl. 18:47 - Fundi fram haldið kl. 18:55

    Gísli Baldvinsson, fulltrúi vinstri grænna og félagshyggjufólks, Bergljót Kristinsdóttir, fulltrúi samfylkingar og Helga María Hallgrímsdóttir, fulltrúi Framsóknarflokks lögðu fram eftirfarandi tillögu að áskorun til bæjarstjórnar:
    "Menntaráð skorar á bæjarstjórn að bæjarfélagið taki alfarið ritfangakostnað á sig, líkt og 22 önnur sveitarfélög. Þannig verði stuðlað að jafnrétti til náms."
    Tillagan var felld með fimm atkvæðum gegn tveim.

    Margrét Friðriksdóttir, formaður skólanefndar, Helgi Magnússon og Ólafur Örn Karlsson, fulltrúar Sjálfstæðisflokks auk Hreiðars Oddsonar og Auðar C. Sigrúnardóttur fulltrúa Bjartrar framtíðar lögðu fram eftirfarandi tilögu til bæjarstjórnar:
    "Menntaráð fagnar þeim árangri sem náðst hefur í grunnskólum Kópavogs með lækkun kostnaðar foreldra á ritföngum skólabarna samanber samþykkt bæjarstjórnar frá 13. júní. Menntaráð leggur þá tillögu fram við bæjarráð að taka til umræðu gjaldfrjálsan grunnskóla við gerð næstu fjárhagsáætlunar."
    Tillagan var samþykkt með fimm atkvæðum gegn tveimur.
    Niðurstaða Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16.1708004F - Skipulagsráð - 13. fundur frá 21.08.2017

Fundargerð í 23. liðum.
Lagt fram.
  • 16.12 1707232 Austurkór 171. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram að nýju erindi lóðarhafa Austurkórs 171 þar sem óskað er eftir heimild til að reisa á lóðinni einlyft timburhús á einni hæð með innbyggðri bílageymslu á steyptum grunni, 189 m2 að grunnfleti. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja á lóðinni einlyft einbýlishús með kjallara, hámarksstærð grunnflatar er 180 m2 og hámarksflatarmál 250 m2. Í breytingunni felst að á lóðinni verði reist einbýlishús á einni hæð án kjallara og kóti aðkomhæðar er lækkaður úr 122,8 í 122,45. Einnig er grunnflötur hússins stækkaður um 9 m2. Aðrir skilmálar haldast óbreyttir. Uppdráttur í mkv. 1:200 og 1:1000 ásamt greinargerð dags. 31. júlí 2017.
    Skipulagsráð samþykkti 31. júlí 2017 með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Austurkór 157, 159, 161, 169 og 183. Lagt fram samþykki ofangreindra lóðarhafa.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 13 Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð samþykkir framlagt erindi með fimm atkvæðum.
  • 16.13 1703542 Kársnesskóli við Vallargerði. Færanlegar kennslustofur.
    Lögð fram að lokinn kynningu tillaga skipulags- og byggingardeildar að fjölgun færanlegra kennslustofa á lóð Kársnesskóla við Vallargerði (á gamla Vallargerðisvellinum) um 8 miðað við fyrri kynningu og samþykkt bæjaryfirvalda þannig að alls verði staðsettar 20 færanlegar kennslustofur á skipulagssvæðinu. Í tillögunni kemur jafnframt fram að sleppisvæði fyrir þá nemendur sem keyrðir eru í skólann verður frá núverandi bílastæði austan við Vallargerðisvöll og frá Kópavogsbraut. Uppdráttur í mkv. 1:2000 ásamt greinargerð dags. í júní 2017. Athugasemdafresti lauk 31. júlí 2017. Athugasemdir og ábendingar bárust. Á fundi skipulagsráðs 31. júlí 2017 var afgreiðslu tillögunar frestað og henni vísað til umsagnar skipulags- og byggingardeildar.
    Tillagan lögð fram að nýju ásamt umsögn dags. 18. ágúst 2017.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 13 Skipulagsráð samþykkir erindið ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 18. ágúst 2017 og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð samþykkir framlagt erindi með fimm atkvæðum.
  • 16.14 16111197 Fagraþing 2. Breyting á deiliskipulagi.
    Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga ARK þing arkitekta fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 2 við Fagraþing. Í breytingunni felst að breyta núverandi einbýlishúsi í parhús. Jafnframt er lagt til að bætt verði við bílskýli norðvestan til í húsinu og á annari hæð verði svölum lokað að hluta. Fjöldi bílastæða breytist úr þremur stæðum í fimm og nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,34 í 0,43. Uppdrættir í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 12. apríl 2017.
    Á fundi skipulagsráðs 18. apríl 2017 var samþykkt með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna ofangreinda breytingu og var málinu vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar 9. maí 2017 var framgreind afgreiðsla skipulagsráðs staðfest. Tillagan var auglýst frá 23. júní 2017 með athugasemdafrest til 8. ágúst 2017. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 13 Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð samþykkir framlagt erindi með fimm atkvæðum.
  • 16.15 1509372 Hafnarbraut 9, 13-15 og Bakkabraut 10. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram tillaga Hans-Olav Andersen, arkitekt fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi við Hafnarbraut 9, 13-15 og Bakkabraut 10. Í breytingunni felst að byggingarreitur 4. hæðar Hafnarbrautar 9 færist um fjóra metra til vesturs. Uppdrættir í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmyndum og greinargerð dags. 15. ágúst 2017. Niðurstaða Skipulagsráð - 13 Skipulagsráð samþykkir framlagt erindi með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð samþykkir framlagt erindi með fimm atkvæðum.
  • 16.20 1703424 Furugrund 3. Breytt aðalskipulag. Tillaga.
    Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að breyttu aðalskipulagi fyrir Furugrund 3. Breytingin nær til reits VÞ-5, lóðarinnar nr. 3 við Furugrund þar sem verslun og þjónustu er breytt í íbúðarsvæði. Verslun- og þjónusta auk geymslna fyrir íbúðir verður í u.þ.b. 1/3 húsnæðisins (kjallara) en íbúðir í u.þ.b. 2/3 hluta (1-2 hæð). Breyta á núverandi húsnæði að Furugrund 3 þannig að byggð verður hæð ofan á núverandi hús. Eftir breytinguna verður húsið að Furugrund 3 um 1.800 m2 að samanlögðum gólffleti með allt að 12 íbúðum. Ofangreind breyting kemur til af því að innan reits VÞ-5 hefur verslunarstarfsemi dregist saman á undanförnum árum og færst á önnur verslunar- og þjónustusvæði meðal annars við Nýbýlaveg.
    Greint frá samráðsfundum sem haldnir voru á skipulags- og byggingardeild með íbúum næst Furugrund 3 16. mars og 30. mars 2017. Þá kynntar mögulegar breytingar á húsnæði Furugrundar 3, útlit, þversnið og grunnmyndir ásamt fyrirkomulagi á lóð (aðkoma og bílastæði).
    Á fundi skipulagsráðs 29. maí 2017 var samþykkt að kynna framlögð drög (tillögu á vinnslustigi) að breyttu aðalskipulagi fyrir Furugrund 3 í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýsing birtist í Fréttablaðinu 1. júlí 2017 þar sem vakin er athygli á því að vinnslutillaga vegna fyrirhugaðrar breytingar á aðalskipulagi væri til kynningar á heimasíðu bæjarins og í afgreiðslu skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs. Vinnslutillagan var send til kynningar sveitarfélaginu Ölfusi, bæjaryfirvöldum í Garðabæ, Reykjavíkurborg og svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins sbr. bréf dags. 13. júlí 2017. Jafnframt var auglýst opið hús 13. júlí og 10. ágúst 2017 í Fannborg 6 2h frá kl. 17 - 18 þar sem drögin voru kynnt sérstaklega þeim sem þess óskuðu. Alls mættu sex íbúar 13. júlí og 10. ágúst mætti enginn.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 13 Skipulagsráð samþykkir með tilvísan í 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa tillöguna og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Bókun frá Ásu Richardsdóttur:
    "Undirrituð styður að verkefnið sé unnið áfram en telur að fækka eigi fyrirhuguðum íbúðum í húsinu um fjórar. Íbúðir verði allt að 8 talsins."

    Bókun frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur:
    "Ég legg til að íbúðir verði að hámarki 6-8 og stærri en gert er ráð fyrir. Í umræddu hverfi er meðalstærð íbúða ein sú minnsta í Kópavogi og skortur á stærri íbúðum."

    Bókun frá Ármanni Kr. Ólafssyni, Guðmundi Geirdal, Júlíusi Hafstein, Andrési Péturssyni og Sigríði Kristjánsdóttur:
    "Eftir fjölmarga samráðsfundi með íbúum Snælandshverfis þá er ánægjulegt að það sé að sjást til lands i þessu máli. Tillagan endurspeglar þá stefnu sem birtist í Húsnæðisskýrslu Kópavogsbæjar sem allir flokkar stóðu að og samþykktu."

    Bókun frá Kristni Degi Gissurarsyni:
    "Vinnubrögð meirihlutans hafa verið ámælisverð í þessu máli. Það er ánægjulegt að sjá sinnaskipti á þeim bæ."
    Niðurstaða Bæjarráð samþykkir framlagt erindi með fimm atkvæðum.
    Kristín Sævarsdóttir tekur undir bókun Ásu Richardsdóttur, Ólafur Þór Gunnarsson tekur undir bókun Margrétar Júlíu Rafnsdóttur, Hjördís Ýr Johnson, Karen Elísabet Halldórsdóttir og Hreiðar Oddsson taka undir bókun meirihlutans.

Fundargerðir nefnda

17.1708005F - Velferðarráð - 13. fundur frá 14.08.2017

Fundargerð í 5. liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

18.17081111 - Fundargerð 377. fundar Sorpu frá 16.8.2017

Fundargerð í 4. liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

19.17081553 - Fundargerð 445. fundar stjórnar SSH frá 13. júní 2017

Fundargerð í 1. lið.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

20.17081237 - Fundargerð 446, fundar stjórnar SSH frá 14.8.2017

Fundargerð í 5. liðum.
Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

21.17081667 - Tillaga frá Ólafi Þ. Gunnarssyni. Breyting á bæjarmálasamþykkt, fjölgun bæjarfulltrúa

Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni, bæjarfulltrúa um breytingu á bæjarmálasamþykkt Kópavogs.
Bæjarráð samþykkir að 1. grein Bæjarmálasamþykktar Kópavogs hljóði þannig:
1.
grein
Skipan bæjarstjórnar
Bæjarstjórn Kópavogs er skipuð 15 fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt lögum um kosningar til bæjarstjórna.

Jafnframt að 27. grein orðist svo:

27. gr. Kosning bæjarráðs.
Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa sjö aðalmenn og jafnmarga varamenn í bæjarráð til eins árs. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga. Þeir bæjarfulltrúar og varabæjarfulltrúar, sem kosningu hafa hlotið af sama lista og hinn kjörni bæjarráðsmaður eru varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann bæjarráðs úr hópi kjörinna bæjarráðsmanna. Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Kosning í bæjarráð skal vera leynileg og bundin hlutfallskosning sé þess óskað. Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráðið.


Vísað til forsætisnefndar.

Erindi frá bæjarfulltrúum

22.1707116 - Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni og Kristínu Sævarsdóttur um að kannaður verði kostnaður við námsgögn barna í grunnskóla í Kópavogi

Frá deildarstjóra grunnskóladeildar, dags. 2. ágúst, lagt fram minnisblað um kostnað vegna kaupa á námsgögnum fyrir nemendur í grunnskólum Kópavogs.
Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni : Bæjarráð Kópavogs samþykkir að greiða kostnað vegna námsgagna grunnskólabarna skólaárið 2017-2018, sbr. nýlega samantekt menntasviðs á kostnaði þar að lútandi. Þar sem gera má ráð fyrir að foreldrar margra barna hafi þegar lagt út fyrir kostnaði er menntasviði falið að gera tillögur um hvernig hægt verði fyrir komandi skólaár að endurgreiða kostnað sem svarar að hámarki 5000 kr fyrir 1.-4. bekk og 3500 fyrir 5.-10. bekk, eins og kemur fram í svari menntasviðs.

Greinargerð. Mörg sveitarfélög hafa farið þá leið að undanförnu að jafna aðstöðu barna til náms m.þ.a. standa straum af kostnaði vegna námsgagna, þ.m.t. ritfanga o.þ.h. að fullu. Kópavogsbær má ekki vera eftirbátur annarra sveitarfélaga hvað þetta varðar og því mikilvægt að tillagan verði samþykkt. Þ.s. ætla má að foreldrar hafi þegar keypt inn námsgögn, eða hluta námsgagna err menntasviði falið að útfæra þá aðferð sem notuð verður til að endurgreiða þennan kostnað fyrir þetta skólaár. Jöfnuður og réttlæti snúast um að gera það strax sem er hægt til að jafna aðstöðu barna. Að bíða er að neita börnum um jöfnuð.
Fundarhlé hófst kl. 09:08. Fundi aftur framhaldið kl. 09:13

Lögð fram bókun frá Hjördísi Ýr Johnson, Karen Elísabetu Halldórsdóttur og Hreiðari Oddssyni.
Samþykkt var af öllum bæjarfulltrúum Kópavogsbæjar tillögu þess efnis að grunnskólar bæjarins fari í aðgerðir við að lækka ritfangakostnað. Í samvinnu við foreldrafélögin hefur tekist að lækka kostnað við námsgögn umtalsvert en miðað hefur verið við að kostnaður vegna hvers nemanda verði ekki hærri en 4.000 kr. á skólaárinu 2017-2018. Kópavogsbær hefur lagt út ríflega 300 milljónir til spjaldtölvuvæðingar grunnskóla bæði kennara og nemenda sem er í takt við stefnu bæjarins um jafnrétti til náms og vistvænni rekstur skólanna.
Þess má einnig geta að Menntaráð samþykkti á síðasta fundi sínum þann 15.08.2017 að taka til umræðu um gjaldfrjálsan grunnskóla við gerð næstu fjárhagsáætlunar sem samþykkt var með fimm atkvæðum meirihluta gegn tveimur atkvæðum minnihluta.
Fundarhlé gert kl. 09:15. Fundi framhaldið kl. 09:20.
Kópavogsbær er í ágætum færum til að jafna aðstöðumun barna. Því má ekki fresta. Ólafur Þór Gunnarsson, Kristín Sævarsdóttir,
Kristinn Dagur Gissurarson.

Fundi slitið - kl. 09:30.