Bæjarráð

2941. fundur 10. janúar 2019 kl. 08:15 - 09:55 á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Fundinn sátu:
  • Helga Hauksdóttir varamaður
  • Karen Elísabet Halldórsdóttir varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ármann Kristinn Ólafsson bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Páll Magnússon bæjarritari
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá
Karen Elísabet Halldórsdóttir stýrði fundi í fjarveru formanns bæjarráðs.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.1812444 - Brunavarnaáætlun Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. Ósk um að fá að kynna áætlunina fyrir bæjarstjórn

Frá bæjarstjóra, kynning á nýrri brunavarnaáætlun fyrir höfuðborgarsvæðið frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Bæjarráð samþykkti eftirfarandi ályktun með fimm atkvæðum:
Brunavarnaráætlun Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins undirstrikar hversu aðkallandi og í raun lífsnauðsynlegur Arnarnesvegurinn er fyrir Kópavog og nágrannasveitarfélög. Ljóst er að vegurinn er eina leiðin til að hægt sé að tryggja eðlilegan útkallstíma slökkviliðs og sjúkrabíla í stórum hluta Kópavogs. Bæjarráð Kópavogs ítrekar áskorun til Alþingismanna að tryggja að staðið verði við Samgönguáætlun 2011-2023 um að Arnarnesvegur sé lagður á árunum 2019-2023.

Bæjarráð vísar afgreiðslu brunavarnaráætlunar til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Gestir

  • Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins - mæting: 08:15
  • Birgir Finnsson, varaslökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins - mæting: 08:15
  • Ingveldur Lára Þórðardóttir, skrifstofustjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins - mæting: 08:15

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.1811818 - Kríunesvegur 12, Hótel Kríunes. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi fyrir gististað

Frá lögfræðideild, dags. 27. desember, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 14. desember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Kríuness ehf., kt. 670602-4190, um nýtt rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, að Kríunesi við Vatnsenda, 203 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. í reglugerð nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.1812047 - Nýbýlavegur 16, BB 44 Gisting ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um endurnýjað rekstrarleyfi gististaðar

Frá lögfræðideild, dags. 2. janúar, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 3. desember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn BB 44 Gistingar ehf., kt. 710502-4120, um endurnýjað rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, að Nýbýlavegi 16, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. í reglugerð nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.1901173 - Beiðni um undanþágur (undanþágulisti) vegna verkfalls

Frá sérfræðingi í starfsmannadeild, dags. 8. janúar, lögð fram til samþykktar drög að auglýsingu um skrá yfir þau störf hjá Kópavogsbæ sem eru undanskilin verkfallsheimild.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að auglýsingu með fimm atkvæðum.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.1901138 - Sumarstörf 2019

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 7. janúar, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að auglýsa laus til umsóknar sumarstörf hjá Kópavogsbæ árið 2019 fyrir 18 ára og eldri. Einnig lagðar fram til samþykktar vinnureglur við ráðningar sumarstarfsfólks hjá Kópavogsbæ árið 2019.
Bæjarráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

6.1811396 - Útboð Kórinn - Stúka

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 7. janúar, lagðar fram niðurstöður útboðs um stúku í Kórinn. Lagt er til að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Altis ehf. um verkið "Kópavogur - Kórinn, Vallarkór 16, stúka"
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leitað verði samninga við Altis ehf. um stúku í Kórinn.

Gestir

  • Stefán L Stefánsson, deildarstjóri framkvæmdadeildar - mæting: 09:00

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

7.1811397 - Útboð Vallarlýsing Kópavogs- og Kóravöllur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 7. janúar, lagðar fram niðurstöður útboðs um vallarlýsingu á æfingavöll við Kórinn og Kópavogsvöll. Lagt er til að samið verði við Megatron ehf. um uppsetningu á 200 LUX lýsingu á Kóravöll og 500 LUX lýsingu á Kópavogsvöll.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum gegn atkvæði Péturs Hrafns Sigurðssonar að samið verði við Megatron ehf. um uppsetningu á 200 LUX lýsingu á Kóravöll og 500 LUX lýsingu á Kópavogsvöll.

Pétur Hrafn Sigurðsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Undirritaður telur ekki skynsamlegt að miða við lágmarkskröfur er varðar lýsingu á Kópavogsvöll sem er aðalleikvangur bæjarins. Mannvirkjunum er ætlað að nýtast næstu áratugi. Hætta er á að slíkar kröfur verði úreltar eftir nokkur ár og situr þá Kópavogur uppi með lýsingu sem ekki mætir kröfum nútímans. Eðlilegra er að miða lýsingarkröfur við 800 lux.
Pétur Hrafn Sigurðsson"

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:
"Ákvörðun um lýsingu stenst þær kröfur sem gerðar eru til lýsingar á knattspyrnuvöllum.
Ármann Kr. Ólafsson"

Gestir

  • Stefán L Stefánsson, deildarstjóri framkvæmdadeildar - mæting: 09:03

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

8.1811395 - Útboð Kópavogsvöllur - Gervigras

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 7. janúar, lagðar fram niðurstöður útboðs vegna lagningar á gervigrasi Kópavogsvallar. Lagt er til að leitað verði samninga við Altis ehf. um tilboð nr. 1 í verkið "Kópavogsvöllur endurnýjun aðalvallar - gervigras".
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leitað verði samninga við Altis ehf. um gervigras á Kópavogsvöll.

Ýmis erindi

9.1901021 - Óskað eftir athugasemdum við tillögur vinnuhóps um endurkoðun á kosningalögum

Frá starfshópi um endurskoðun kosningalaga, dags. 19. desember, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir athugasemdum við tillögur vinnuhópsins um endurskoðun á kosningalögum fyrir 22. janúar nk.
Lagt fram.

Ýmis erindi

10.1901120 - Samþykkt tillaga að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins við Álfsnes. Óskað eftir afgreiðslu aðildarsveitarfélaga

Frá SSH, dags. 4. janúar, lögð fram til samþykktar tillaga að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins sem svæðisskipulagsnefnd vísaði til afgreiðslu aðildarsveitarfélaga á fundi sínum þann 14. desember sl.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Ýmis erindi

11.1812766 - Skýrsla um starfsemi héraðsskjalasafna

Frá Þjóðskjalasafni Íslands, dags. 18. desember, lagðar fram skýrslur um starfsemi héraðsskjalasafna.
Bæjarráð vísar erindinu til lista- og menningarráðs til úrvinnslu.

Fundargerðir nefnda

12.1812003F - Skipulagsráð - 42. fundur frá 07.01.2019

Fundargerð í 13. liðum.
Lagt fram.
  • 12.3 1811317 Langabrekka 1. Kynning á byggingarleyfi.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Huldu Jónsdóttur arkitekts fh. lóðarhafa Löngubrekku 1 þar sem óskað er eftir leyfi fyrir byggingu á sólstofu við suðurhlið hússins, samtals 31 m2 að stærð. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 15. október 2018. Á fundi skipulagsráðs 19. nóvember 2018 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Kynningartíma lauk 7. janúar 2019. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Niðurstaða Skipulagsráð - 42 Skipulagsráð samþykkir erindið með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
  • 12.5 18081615 Bakkabraut 5D. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi lóðarhafa Bakkabrautar 5 d þar sem óskað er eftir leyfi til að breyta skráningu á 120 m2 rými neðri hæðar úr iðnaðarhúsnæði í íbúðarhúsnæði sbr. uppdrætti GLÁMA- KÍM arkitekta dags. 25. maí 2018. Á fundi skipulagsráðs 17. september 2018 var erindinu hafnað og vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Kynningartíma lauk 11. desember 2018. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Niðurstaða Skipulagsráð - 42 Fundarhlé kl. 17:19
    Fundi fram haldið kl. 17:29

    Skipulagsráð samþykkir erindið með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Kristinn Dagur Gissurarson og J. Júlíus Hafstein greiða atkvæði gegn erindinu.
    Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
  • 12.7 1802241 Dalvegur 32. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram erindi Krark arkitektar fh. lóðarhafa Dalvegar 32 að breyttu deiliskipulagi. Í breytingunni felst að lóð stækkar inn á bæjarland í austurhluta skipulagssvæðisins um 1,254 m2/ og verður stærð lóðar efir breytingu 19.872 m2/. Byggingarreitur á miðri lóðinni minnkar og verður eftir breytingu 60x28 metrar. Byggingarreitur á austurhluta lóðar breytist og stækkar til vesturs og austurs en minnkar til norðurs og suðurs og verður 75x40 metrar. Hæð byggingarreitar breytist og verður 5 og 6 hæðir. Hámarks vegghæð og þakhæð verður 22.5 metrar. Þakform er frjálst. Hámarks byggingarmagn með kjöllurum og niðurgrafinni bílageymslu er 15.897 m2/. Aðkoma, fyrirkomulaga bílastæða og bílastæða krafa breytist og verður eitt stæði 100 m2/ í geymslurými, eitt stæði á hverja 50 m2/ í skrifstofurými og eitt stæði á hverja 35 m2/ í verslunarrými. Að öðru leyti er vísað til gildandi deiliskipulags fyrir Dalveg birt í B- deild Stjórnartíðinda 4. október 2007 og samþykkt af bæjarstjórn 13. júlí 2007 m.s.br. birt í B- deild 6. des. 2017 og 8. júní 2018. Á fundi skipulagsráðs 3. desember sl. var afgreiðslu erindisins frestað. Niðurstaða Skipulagsráð - 42 Skipulagsráð samþykkir með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
  • 12.13 1901120 Samþykkt tillaga að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins við Álfsnes. Óskað eftir afgreiðslu aðildarsveitarfélaga
    Lagt fram erindi Hrafnkells Á. Proppé, svæðisskipulagsstjóra höfuðborgarsvæðisins dags. 4. janúar 2019 um breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 er varðar legu vaxtarmarka milli þéttbýlis og dreifbýlis á Álfsnesi. Með breytingunni verður rými fyrir uppbyggingu og þróun efnisvinnslusvæðis sem staðsett yrði við jaðar núverandi iðnaðarsvæðis á Álfsnesi. Tilefni breytingarinnar eru áform Reykjavíkurborgar um færslu á starfssemi Björgunar frá Sævarhöfða. Niðurstaða Skipulagsráð - 42 Skipulagsráð samþykkir tillöguna í samræmi við 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Fundargerðir nefnda

13.1901085 - Fundargerð 297. fundar stjórnar Strætó bs. frá 21.12.2018

Fundargerð í 5. liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14.1812013F - Umhverfis- og samgöngunefnd - 108. fundur frá 21.12.2018

Fundargerð í 1. lið.
Lagt fram.

Hlé var gert á fundi kl. 9.27. Fundi var fram haldið kl. 9.36.

Fulltrúar Samfylkingar, BF Viðreisnar og Pírata lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Undirrituð lýsa furðu sinni á að bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem jafnframt er varafulltrúi í umhverfis og samgöngunefnd hafi látið kjósa sig inn á fund nefndarinnar þann 21. desember síðastliðinn. Slíkt er skýrt brot á bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar.
Pétur Hrafn Sigurðsson, Theódóra S Þorsteinsdóttir, Sigurbjörg Erla Egilsdóttir"

Hlé var gert á fundi kl. 9.44. Fundi var fram haldið kl. 9.53.

Fulltrúar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Undirrituð beina því til bæjarritara að hann komi á framfæri reglum bæjarmálasamþykktar Kópavogs hvað varðar fundarsetu í nefndum og ráðum.
Karen Halldórsdóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Helga Hauksdóttir, Hjördís Ýr Johnson"

Erindi frá bæjarfulltrúum

15.1901205 - Tillaga um endurskoðun á fjárhagsrömmum. Frá Samfylkingu, BF Viðreisnar og Pírötum.

Frá Pétri Hrafni Sigurðssyni, Theódóru Þorsteinsdóttur og Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur bæjarfulltrúum, tillaga um að bæjarráð hefji vinnu sem fyrst við endurskoðun á þeim römmum sem settir voru fyrir fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar á árinu 2011.
Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 09:55.