Bæjarráð

2969. fundur 12. september 2019 kl. 08:15 - 10:00 á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Fundinn sátu:
  • Helga Hauksdóttir varamaður
  • Karen E. Halldórsdóttir varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ármann Kristinn Ólafsson bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður
Fundargerð ritaði: Pálmi Másson bæjarlögmaður
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.1909161 - Tónahvarf 12. Umsókn um lóð undir atvinnuhúsnæði

Frá bæjarlögmanni, dags. 9. september, lögð fram umsókn um lóðina Tónahvarf 12 frá Byggingarfélaginu Bestlu ehf. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.1908544 - Fífuhvammur 20, niðurrif.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 9. september, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til niðurrifs Fífuhvamms 20. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 22. ágúst.
Bæjarráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum fyrir sitt leyti.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.1906243 - Okkar Kópavogur 2019 - 2021

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 10. september, lagt fram erindi um stöðu framkvæmda við verk sem voru kosin inn í verkefnið Okkar Kópavogur 2018-2019.
Lagt fram.
Fundarhlé hófst kl. 9:10, fundi fram haldið kl. 9:20

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.1905502 - Tillaga Samfylkingar, BF Viðreisnar og Pírata að kolefnisjöfnun ferða starfsfólks Kópavogsbæjar

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 9. september, lögð fram umsögn um tillögu sem barst í bæjarráði þann 23. maí sl. um að Kópavogsbær kolefnisjafni ferðir starfsfólks á vinnutíma jafnt innanlands og utanlands.
Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum.

Gestir

  • Steingrímur Hauksson sviðsstjóri umhverfissviðs - mæting: 08:25
  • Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar - mæting: 08:25

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.1905501 - Tillaga Samfylkingar, BF Viðreisnar og Pírata um trjáræktarsvæði fyrir almenning

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 9. september, lögð fram umsögn um tillögu sem barst á fundi bæjarráðs þann 23. maí sl. um að Kópavogsbær skilgreini svæði fyrir skógrækt þar sem bæjarbúar geti gróðursett tré til að vinna gegn eigin kolefnisspori og grætt upp örfoka land á sama tíma þar sem tillaga var um nýtingu ógróins svæðis milli Lækjarbotna og Bláfjallaafleggjara. Einnig lagðar fram nánari skýringar með usmögn frá sviðsstjóra umhverfissviðs dags. 10. september.
Bæjarráð samþykkir minnisblað sviðsstjóra umhverfissviðs með fimm atkvæðum.

Gestir

  • Steingrímur Hauksson sviðsstjóri umhverfissviðs - mæting: 08:40
  • Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar - mæting: 08:40

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

6.1907291 - Vetrarþjónusta stofnleiðir 19-22, útboð

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 9. september, lagðar fram niðurstöður útboðs á vetrarþjónustu stofnleiða í Kópavogi 2019-2022. Lagt er til við bæjarráð að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Íslenska gámafélagið um verkið.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Theodóru S. Þorsteinsdóttur að leitað verði samninga við Íslenska gámafélagið um verkið "Vetrarþjónusta stofnleiða í Kópavogi 2019-2022".

Gestir

  • Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar - mæting: 08:48

Ýmis erindi

7.1908660 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar um lögfræðikostnað vegna Sorpu

Frá framkvæmdastjóra Sorpu, dags. 4. september, lagt fram svar við fyrirspurn um lögfræðikostnað vegna Sorpu sem barst á fundi bæjarráðs þann 22. ágúst sl.
Lagt fram.

Ýmis erindi

8.1909132 - Drög að nýjum reglugerðum um Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga birtar á samráðsgátt til umsagnar

Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, dags. 3. september, lögð fram til umsagnar drög að nýjum reglum um fjárhagslegan stuðning Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til að greiða fyrir sameiningu sveitarfélaga, sem hafa verið birtar í samráðsgátt stjórnvalda.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Ýmis erindi

9.1909242 - Tillaga til þingsályktunar um stefnu í málefnum sveitarfélaga og reglur um fjárhagslegan stuðning Jöfnunarsjóðs

Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, dags. 5. september, lögð fram tilkynning um ný fylgiskjöl sem hafa bæst við tillögu til þingsályktunar um stefnu í málefnum sveitarfélaga í samráðsgátt Stjórnarráðsins.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Ýmis erindi

10.1909224 - Ósk um samstarf um íþróttaveislu UMFÍ

Frá Ungmennasambandi Kjalarnessþings, dags. 20. ágúst, lagt fram erindi um samstarf við Kópavogsbæ, Breiðablik, HK og Gerplu vegna Íþróttaveislu UMFÍ 2020 sem yrði haldin í Kópavogi, ásamt drögum að samstarfssamningi aðila.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.

Ýmis erindi

11.1909217 - Rekstrar- og samstarfssamningur Leikfélagsins og Kópavogsbæjar. Ársreikningur og skýrsla stjórnar fyrir liðið leikár

Frá leikfélagi Kópavogs, dags. 27. ágúst, lagður fram reikningur vegna árlegs styrks bæjarins til leikfélagsins skv. rekstrar- og samstarfssamningi þar um, ásamt reikningum félagsins og skýrslu stjórnar fyrir liðið leikár.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til lista- og menningarráðs.

Ýmis erindi

12.1909313 - Umsókn um leyfi fyrir staðsetningu matarvagns í Ögurhvarfi

Frá Mörtu Svavarsdóttur, dags. 6. september, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir leyfi fyrir staðsetningu matarvagns á bæjarlandi í Ögurhvarfi.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs

Fundargerð

13.1908013F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 274. fundur frá 30.08.2019

Fundargerð í 11 liðum
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

14.1908014F - Barnaverndarnefnd - 95. fundur frá 05.09.2019

Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

15.1909140 - Fundargerð 18. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 26.08.2019

Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16.1909312 - Fundargerð 19. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 02.09.2019

Fundargerð í 2 liðum.

Fundargerðir nefnda

17.1908010F - Menntaráð - 46. fundur frá 03.09.2019

Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

18.1909158 - Fundargerð 872. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 21. júní 2019

Fundargerð í 19 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

19.1909159 - Fundargerð 873. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30. ágúst 2019

Fundargerð í 38 liðum.

Fundargerð

20.1909007F - Velferðarráð - 49. fundur frá 09.09.2019

Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.
  • 20.5 1901896 Endurskoðun á reglum um ferðaþjónustu fatlaðra
    Drög að reglum lögð fram til afgreiðslu. Niðurstaða Velferðarráð - 49 Velferðarráð samþykkti reglurnar fyrir sitt leyti. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 20.6 1905602 Endurskoðun á reglum um akstursþjónustu aldraðra
    Drög að reglum lögð fram til afgreiðslu. Niðurstaða Velferðarráð - 49 Velferðarráð samþykkti reglurnar fyrir sitt leyti. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 20.8 16082183 Reglur um félagslega heimaþjónustu. Breyting á 2.gr.
    Lögð fram tillaga deildarstjóra dags. 2. september 2019 um reglubreytingu. Niðurstaða Velferðarráð - 49 Velferðarráð samþykkti breytingatillöguna fyrir sitt leyti. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 10:00.