Bæjarráð

3044. fundur 29. apríl 2021 kl. 08:15 - 11:19 Fjarfundur - Microsoft Teams
Fundinn sátu:
  • Birkir Jón Jónsson formaður
  • Karen E. Halldórsdóttir varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Einar Örn Þorvarðarson varamaður
Starfsmenn
  • Ármann Kristinn Ólafsson bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.2001710 - Ferðaþjónusta samningur við Teit Jónasson ehf

Frá bæjarstjóra, dags. 27.04.2021, lagður fram viðauki við samning um ferðaþjónustu fatlaðra í Kópavogi 2020-2025 þar sem óskað er eftir því að bæjarráð veiti bæjarstjóra umboð til að skrifa undir samninginn.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan samning.

Gestir

  • Aðalsteinn Sigfússon, sviðsstjóri velferðarsviðs - mæting: 08:15
  • Salvör Þórisdóttir, lögfræðingur - mæting: 08:15
  • Atli Sturluson, yfirmaður rekstrardeildar velferðarsviðs - mæting: 08:15

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.2104661 - Tónahvarf 4, afturköllun úthlutunar.

Frá bæjarlögmanni, dags. 26.04.2021, lagt fram erindi varðandi afturköllun úthlutunnar lóðarinnar að Tónahvarfi 4.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.2104023 - Okkar Kópavogur 2021 - 2023

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 16.04. 2021, lagt fram yfirlit yfir stöðu framkvæmda við verk sem kosin voru inn í verkefnið "Okkar Kópavogur" 2019-2021.
Lagt fram.

Gestir

  • Ásthildur Helgadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs - mæting: 08:48

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.2104655 - Rafrennur, samningar um afnot.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 26.04.2021, lagt fram erindi varðandi samninga við þá aðila sem hafa leyfi fyrir rafrennum og afnot af landi Kópavogsbæjar vegna þeirra. Erindinu fylgja drög að samningi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan samning.

Gestir

  • Ásthildur Helgadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs - mæting: 08:50

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.2103754 - Dalvegur 1. Nýr áningarstaður í Kópavogsdal, erindi.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 26.04.2021, lögð fram umsögn um nýtingu lóðarinnar að Dalvegi 1.
Lagt fram.

Gestir

  • Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs - mæting: 08:56

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

6.2012439 - Lækjarhjalli 34, kæra.

Frá lögfræðideild, dags. 23.04.2021, lögð fram niðurstaða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr.136/2020 varðandi ákvörðun skipulagsstjóra Kópavogs um að hafna erindi lóðarhafa Lækjarhalla 34 þar sem óskað var eftir að koma fyrir auka bílastæði á lóð.
Lagt fram.

Gestir

  • Guðrún Edda Finnbogadóttir lögfræðingur - mæting: 09:01

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

7.2103822 - Lækjarbotnaland 15. Beiðni um endurupptöku

Frá lögfræðideild, dags. 27.04.2021, lögð fram umsögn vegna beiðni um endurupptöku máls.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að endurupptaka málið og vísar því til nýrrar efnismeðferðar skipulagsráðs.

Gestir

  • Guðrún Edda Finnbogadóttir, lögfræðingur - mæting: 09:04

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

8.2011221 - Borgarholtsbraut 39, kæra vegna breytt deiliskipulag.

Frá lögfræðideild, dags. 26.04.2021, lagt fram erindi varðandi úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 112/2020 varðandi byggingarleyfi á fjórbýlishúsi á lóðinni við Borgarholtsbraut 39.
Lagt fram.

Gestir

  • Guðrún Edda Finnbogadóttir, lögfræðingur - mæting: 09:08

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

9.2012554 - Skálaheiði 2, Íþróttahúsið Digranes - Endurnýjun lýsingar

Frá verkefnastjóra eignadeildar, dags. 26.04.2021, lagt fram erindi varðandi endurnýjum lýsingar í íþróttahúsinu Digranesi. Lagt er til við bæjarráð að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Ajraf ehf.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Ajraf ehf.

Gestir

  • Ari Sigfússon, verkefnastjóri eignadeildar - mæting: 09:15

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

10.2102026 - Útboð - Efnisútvegun malbik 2021

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 20.04.2021, lagt fram erindi með niðurstöðum útboðs í efnisvegun malbiks fyrir Kópavog 2021-2022. Lagt er til við bæjarráð að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Malbikunarstöðina Höfða hf. um efnisvegum malbiks fyrir Kópavog árin 2021-2022.
Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.

Gestir

  • Birkir Rútsson, deildarstjóri gatnadeildar - mæting: 09:19

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

11.2101641 - Útboð - Malbiksyfirlagnir 2021

Frá deildarstjóra gatnadeildar, lagt fram erindi með niðurstöðum útboðs í malbiksyfirlagnir 2021-2022 dags. 16.04.2021, og erindi með niðurstöðum útboðs í malbiksfræsingar 2021-2022 dags. 20.4.2021. Lagt er til við bæjarráð að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Loftorku Reykjavík ehf. um malbiksyfirlagnir í Kópavogi árin 2021-2022 og lægstbjóðanda Colas Ísland hf. um malbiksfræsingar í Kópavogi árin 2021-2022.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Loftorku Reykjavík ehf. um malbiksyfirlagnir í Kópavogi árin 2021-2022
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Colas Ísland hf. um malbiksfræsingar í Kópavogi árin 2021-2022.

Bókun:
"Bæjarráð óskar eftir upplýsingum frá Vegagerðinni um stöðu hreinsunar og malbiksyfirlagna Nýbýlavegar. Knýjandi þörf er orðin á lagfæringu vegarins."

Gestir

  • Birkir Rútsson, deildarstjóri gatnadeildar - mæting: 09:30

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

12.2104648 - Útboð - Skólaakstur og hópbifreiðaþjónusta fyrir Kópavogsbæ 2021 - 2024

Frá rekstrarstjóra menntasviðs, dags. 26.04.2021, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út í opnu útboði skólaakstur og rammasamning um hópbifreiðarþjónustu fyrir Kópavogsbæ.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild til að bjóða út í opnu útboði skólaakstur og rammasamning um hópbifreiðarþjónustu fyrir Kópavogsbæ.

Gestir

  • Sindri Sveinsson, rekstrarstjóri menntasviðs - mæting: 09:43
  • Guðrún Edda Finnbogadóttir, lögfræðingur - mæting: 09:43

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

13.2104666 - Útboð - Rekstur líkamsræktarðastöðu við sundlaugar í Kópavogi

Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 26.04.2021, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út í opnu útboði rekstur og útleigu á líkamsræktaraðstöðu í sundlaugum Kópavogs.
Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.

Gestir

  • Guðrún Edda Finnbogadóttir, lögfræðingur - mæting: 09:58
  • Jón Júlíusson, deildarstjóri íþróttasviðs - mæting: 09:58

Ýmis erindi

14.2005653 - Fjármál sveitarfélaga í kjölfar COVID-19

Frá samgöngu-og sveitarstjórnarráðherra, dags. 13.04.2021, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir upplýsingum um stöðu fjármála á yfirstandandi ári. Meðal þeirra upplýsinga sem kallað er eftir eru fjárhagsáætlanir með viðaukum sem gerðir hafa verið á árinu.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu sviðsstjóra fjármálasviðs.

Ýmis erindi

15.2104647 - Styrkbeiðni vegna reksturs samtakanna

Frá Karlaathvarfinu, dags. 26.04.2021, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir fjárhagsstuðningi frá Kópavogsbæ.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu sviðsstjóra stjórnsýslusviðs.

Ýmis erindi

16.2104616 - Samræming úrgangsflokkunar. Niðurstaða 523. fundar stjórnar SSH

Frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 23.04.2021, lagt fram erindi með niðurstöðu stjórnar varðandi samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.
Lagt fram.

Ýmis erindi

17.2104604 - Sameining heilbrigðiseftirlita

Frá Heilbrigðiseftirliti(HEF), dags. 21.04.2021, lögð fram drög að samþykkt um Heilbrigðiseftirlit fyrir Garðabæ, Hafnarfjörð, Kópavog, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes.
Bæjarráð frestar erindinu.

Ýmis erindi

18.2104384 - Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um endurskoða landsskipulagsstefnu 2015 - 2026, 705. mál

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 15.04.2021, lagt fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um endurskoðaða landsskipulagsstefnu.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Ýmis erindi

19.2104392 - Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta - og menningarmála (öflun sakavottorðs), 715. mál (stjórnarfrumvarp)

Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 15.04.2021, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmála (öflun sakavottorðs), 715. mál.


Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Ýmis erindi

20.2104386 - Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um staðsetningu vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands, 707. mál

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 15.04.2021, lögð fram til umsagnar þingsályktunartillaga um staðsetningu vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands, 707. mál.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Ýmis erindi

21.2104397 - Til umsagnar frumvarp til laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, 712. mál

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 15.04.2021, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, 712. mál.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Ýmis erindi

22.2104385 - Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun (málsmeðferð virkjunarkosta í vindorku), 709. mál

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags.15.04.2021, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (málsmeðferð virkjunarkosta í vindorku), 709. mál.


Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Ýmis erindi

23.2104568 - Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um skráða sambúð fleiri en tveggja aðila, 539. mál

Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 21.04.2021, lagt fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um skráða sambúð fleiri en tveggja aðila, 539. mál.


Lagt fram.

Ýmis erindi

24.2104391 - Til umsagnar frumvarp til laga um grunnskóla og framhaldsskóla (fagráð eineltismála), 716. mál

Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 15.04.2021, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um grunnskóla og framhaldsskóla(fagráð eineltismála), 716. mál.


Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Ýmis erindi

25.2104395 - Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald, 708. mál

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 15.04.2021, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald (EES-reglur, hringrásarhagkerfi), 708. mál.


Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Ýmis erindi

26.2104543 - Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, 668. mál

Frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, dags. 21.04.2021, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, nr. 162/2006 (gagnsæi, skráning og vinnsla persónuupplýsinga), 668. mál.


Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Ýmis erindi

27.2104369 - Til umsagnar frumvarp til laga um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (níkótínvörur), 713. mál

Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 15.04.2021, lagt fram til umsagnar frumvarp um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur), 713. mál.


Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Ýmis erindi

28.2104598 - Til umsagnar frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð, 702. mál

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 23.04.2021, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð, 702. mál.


Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Fundargerð

29.2104019F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 314. fundur frá 21.04.2021

Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

30.2104012F - Barnaverndarnefnd - 119. fundur frá 14.04.2021

Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.

Fundargerð

31.2104013F - Hafnarstjórn - 119. fundur frá 19.04.2021

Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

32.2104693 - Fundargerð 265. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 26.04.2021

Fundargerð í 37 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

33.2104007F - Íþróttaráð - 110. fundur frá 14.04.2021

Fundargerð í 4 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

34.2104010F - Jafnréttis- og mannréttindaráð - 81. fundur frá 15.04.2021

Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

35.2104442 - Fundargerð 226. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 26.03.2021

Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

36.2104441 - Fundargerð 225. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 24.03.2021

Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

37.2104440 - Fundargerð 224. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 24.03.2021

Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

38.2104677 - Fundargerð 446. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 09.04.2021

Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

39.2104603 - Fundargerð 523. fundar stjórnar SSH frá 12.04.2021

Fundargerð í 20 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

40.2104453 - Fundargerð 338. fundar stjórnar Strætó frá 09.04.2021

Fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

41.2103015F - Skipulagsráð - 96. fundur frá 19.04.2021

Fundargerð í 20 liðum.
Lagt fram.
  • 41.4 2101743 Kársnesskóli. Lausar kennslustofur.
    Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga umhverfissviðs að breyttu fyrirkomulagi færanlegra kennslustofa við Kársnesskóla. Í breytingunni felst að komið verði fyrir tveimur færanlegum kennslustofum í viðbót við þær sem frir eru, ásamt tengibyggingu á suðurausturhluta skólalóðarinnar. Tillagan hefur jafnframt í för með sér tilfærslu á leiksvæði. Uppdráttur í mkv. 1:150 dags. í febrúar 2021. Á fundi skipulagsráðs 1. febrúar 2021 var samþykkt með tilvísan í 44. mgr. 43. gr. skipulagslagar nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Vallargerðis 2, 4, 6, 8, 10, 12, 14, 16, 18 og Kópavogsbrautar 41, 43, 45, 47, 49, 51, 55, 57. Kynningartíma lauk 16. apríl 2021. Engar ábendingar eða athugasemdir bárust á kynningartímanum. Niðurstaða Skipulagsráð - 96 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 41.6 2011188 Mánalind 8. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Arnars Þórs Jónssonar arkitekts dags. 28. október 2020 fh. lóðarhafa Mánalindar 8 með ósk um breytingu á deiliskipulagi. Á lóðinni stendur 212,8 m2 steinsteypt einbýlishús, byggt 1999. Í breytingunni felst að reisa viðbyggingu á vesturhlið hússins, samtals 60,3 m2. Stækkunin á við um anddyri og bílskúr ásamt hluta af óútgröfnu rými á jarðhæð. Byggt verður yfir svalir og rýmið sem áður voru svalir verða hluti af stofu á efri hæð hússins. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:200 dags. 28. október 2020. Á fundi skipulagsráðs 16. nóvember 2020 var samþykkt með tilvísan í 2. gr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Mánalindar 6, 9, 10, 11, 12, 13, 15, 17, 19, Laxalindar 5, 7 og 9. Kynningartíma lauk 8. apríl 2021. Engar ábendingar eða athugasemdir bárust á kynningartímanum. Niðurstaða Skipulagsráð - 96 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 41.7 2010120 Gulaþing 23. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Einars Ólafssonar arkitekts, dags. 13. nóvember 2020 fh. lóðarhafa Gulaþings 23 þar sem óskað eftir breytingu á deiliskipulagi. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja einbýlishús á tveimur hæðum á lóðinni, heildarbyggingarmagn samtals 400 m2. Í framlögðu erindi er óskað eftir að breyta einbýlishúsi í parhús á tveimur hæðum með óbreyttu heildarbyggingarmagni þ.e. samtals 400 m2. Bílastæðum fjölgar úr þremur í fjögur. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:2000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 13. nóvember 2020. Á fundi skipulagsráðs 7. desember 2020 var samþykkt að auglýsa framlagða tillögu með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar 22. desember 2020 var afgreiðsla skipulagsráðs staðfest. Kynningartíma lauk 2. apríl 2021. Engar ábendingar eða athugasemdir bárust á kynningartímanum. Niðurstaða Skipulagsráð - 96 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 41.8 2101741 Álfhólsvegur 53. Kynning á byggingarleyfi.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Birgis Teitssonar arkitekts dags. 16. desember 2020 fh. lóðarhafa Álfhólsvegar 53. Óskað er eftir rífa skúr sem stendur á lóðinni og reisa samliggjandi bílgeymslu og vinnustofu, samtals 69,8 m2, við lóðarmörk Álfhólsvegar 51 og Löngubrekku 15. Undirritað samþykki lóðarhafa Álfhólsvegar 51, Löngubrekku 15, 15a og 17 liggur fyrir. Uppdráttur í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 16. desember 2020. Á fundi skipulagsráðs 1. mars 2021 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Álfhólsvegar 51, Löngubrekku 15, 15a, og 17. Kynningartíma lauk 8. apríl 2021. Engar ábendingar eða athugasemdir bárust á kynningartíma. Niðurstaða Skipulagsráð - 96 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 41.9 2101471 Borgarholtsbraut 19. Kynning á byggingarleyfi.
    Lagt fram að nýju erindi Hrólfs Karls Cela arkitekts dags. 16. desember 2020 fh. lóðarhafa Borgarholtsbrautar 19. Á lóðinni stendur steinsteypt 243,7 m2 íbúðar- og verslunarhús byggt 1952 auk bílgeymslu sem í dag er notuð sem lagerrými. Óskað er eftir að íbúð á efri hæð hússins verði breytt í veitingarými og sameinuð veitingastað/bakaríi á jarðhæð hússins. Eftir breytingu verður veitingarýmið 214,2 m2. Auk þess verður komið fyrir brunastiga frá svölum á suðurhlið hússins. Uppdráttur í mkv. 1:100 dags. 16. desember 2020. Á fundi skipulagsráðs 1. febrúar 2021 var afgreiðslu málsins frestað og vísað til umsagnar. Þá lagt fram breytt erindi dags. 12. febrúar 2021. Á fundi skipulagsráðs 15. febrúar 2021 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða breytingu fyrir lóðarhöfum Borgarholtsbrautar 17, 17a, 20-24, Melgerðis 2, 4, 6 og Urðarbrautar 9. Kynningartíma lauk 26. mars 2021. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma. Á fundi skipulagsráðs 29. mars 2021 var afgreiðslu frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 16. apríl 2021 auk yfirlýsing frá lóðarhöfum Borgarholtsbrautar 19 dags. 15. apríl 2021. Niðurstaða Skipulagsráð - 96 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 41.10 2104170 Dimmuhvarf 3, 5, 7, 7A, 7B, 9B og Melahvarf 6, 8, 10, 12. Ósk um stækkun lóða.
    Lagt fram erindi lóðarhafa Dimmuhvarfi 3, 5, 7, 7a, 7b, 9b og Melahvarfi 6, 8, 10 og 12 dags. 6. apríl 2021 þar sem óskað er eftir stækkun lóða inn á bæjarland sem húsin mynda hring utan um. Umrætt bæjarland er um 3000 m2 og eru óskir um lóðastækkanir breytilegar eftir lóðum. Dimmuhvarf 3 er í dag 3222 m2 en væri eftir breytingu 3281 m2. Dimmuhvarf 5 er í dag 1403 m2 en væri eftir breytingu 1888 m2. Dimmuhvarf 7 er í dag 852 m2 en væri eftir breytingu 1115 m2. Dimmuhvarf 7a er í dag 608,5 m2 en væri eftir breytingu 773,5 m2. Dimmuhvarf 7b er í dag 608,5 m2 en væri eftir breytingu 932,5 m2. Dimmuhvarf 9b er í dag 1032 m2 en væri eftir breytingu 1201 m2. Melahvarf 6 er í dag 1919 m2 en væri eftir breytingu 2891 m2. Melahvarf 8 er í dag 2891 m2 en væri eftir breytingu 3376 m2. Melahvarf 10 er í dag 2011 m2 en væri eftir breytingu 2482 m2. Melahvarf 12 er í dag 2255 m2 en væri eftir breytingu 2541 m2. Hagsmunaaðilar við Dimmuhvarf 9A og Melahvarf 4 eru samþykkir þessum tillögum en óska ekki eftir stækkun á sínum lóðum. Meðfylgjandi skýringarmyndir og undirritað samþykki lóðarhafa, dags. 6. apríl 2021. Auk þess lögð fram samantekt um hugmyndasöfnun um opin svæði frá verkefnastjóra íbúatengla dags. 3. mars 2021 og minnisblað skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2021.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 96 Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 11:16 og tók Einar Ö. Þorvarðarson sæti í hennar stað.

Fundargerðir nefnda

42.2104009F - Leikskólanefnd - 128. fundur frá 15.04.2021

Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

43.2104014F - Menntaráð - 77. fundur frá 20.04.2021

Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

44.2104004F - Ungmennaráð - 23. fundur frá 21.04.2021

Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

45.2104021F - Velferðarráð - 83. fundur frá 26.04.2021

Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 11:19.