Bæjarráð

3062. fundur 14. október 2021 kl. 08:15 - 10:01 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Karen E. Halldórsdóttir varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalmaður
  • Helga Hauksdóttir aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Ármann Kristinn Ólafsson bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Ýmis erindi

1.2110081 - Verkefnaáætlun um kortlagningu á búsetu í atvinnuhúsnæði

Frá SHS, lögð fram verkefnaáætlun um kortlagningu á búsetu í atvinnuhúsnæði.
Kynning.

Gestir

  • Jón Viðar Matthíasson Slökkviliðsstjóri SHS og framkvæmdastjóri AHS - mæting: 08:15

Ýmis erindi

2.2110289 - Bókun 529. fundar stjórnar SSH. Áfangastaða- og markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins

Frá SSH, dags. 11. október 2021, lögð fram bókun varðandi áfangastaða- og markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins.
Kynning og málinu frestað.

Gestir

  • Jón Kjartan Ágústsson svæðisskipulagsstjóri - mæting: 08:45
  • Inga Hlín Pálsdóttir verkefnastjóri - mæting: 08:45

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.2103185 - Glaðheimar - vesturhluti. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju tillaga að breyttu deiliskipulagi Glaðheima vesturhluta dags. 19. apríl 2021 með áorðnum breytingum dags. 16. ágúst 2021.
Skipulagssvæðið, sem er 8.6 ha að flatarmáli, afmarkast af veghelgunarsvæði Reykjanesbrautar til vesturs, til norðurs afmarkast það af fyrirhugaðri tengibraut sem liggur frá gatnamótum Bæjarlindar og Glaðheimavegar að Reykjanesbraut, Álalind 1-3 og til austurs af athafnasvæði við Askalind og Akralind og til suðurs afmarkast það af veghelgunarsvæði Arnarnesvegar. Í gildandi deiliskipulagi frá 2009 er gert ráð fyrir verslunar- og þjónustuhúsnæði á umræddu svæði samtals um 88.000 m2 ofanjarðar. Í breytingunni felst að áður fyrirhugaðri byggð um miðbik deiliskipulagssvæðisins er breytt úr atvinnuhúsnæði á 5-8 hæðum í 9 fjölbýlishús sem verða 3-12 hæða með um 468 íbúðum, leikskóla og opið svæði. Á norðurhluta skipulagssvæðisins nánar tiltekið við húsagötu A nr. 2-3 er fallið frá verslunar- og þjónustuhúsnæði á þremur efstu hæðum hússins (húsa) og þess í stað komið fyrir 32 íbúðum. Heildarfjöldi íbúða á svæðinu öllu verður að hámarki 500 íbúðir. Í miðju skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir leikskóla. Suðvestan fyrirhugaðs Glaðheimavegar (á suðurhluta svæðisins) er gert ráð fyrir 7 lóðum fyrir verslunar- og þjónustuhúsnæði á 2 til 4 hæðum. Byggingarreitir, lóðir og lóðastærðir verslunar- þjónustu og athafnahúsa breytast sem og aðkoma og fjöldi bílastæða. Auk þess er gert ráð fyrir að lega tengibrautar um svæðið í framhaldi af Glaðheimavegi að Arnarnesvegi breytist. Heildarstærð atvinnuhúsnæðis með kjallara og bílageymslum er áætluð um 50.000 m2 en um 36.000 m2 án bílageymslna og heildarstærð íbúðarhúsnæðis með kjallara og bílageymslum er áætluð um 89.000 m2. Stærð leikskóla er um 1.500 m2. Heildar byggingarmagn á deiliskipulagssvæðinu er áætlað um 135.000 m2 þar af um 106.000 m2 án bílageymslna. Svæðisnýtingarhlutfall deiliskipulagssvæðisins miðað við heildarbyggingarmagn er áætlað um 1.57 og 1.22 án bílakjallara neðanjarðar. Gert er ráð fyrir einu stæði á hverja 75 m2 í verslun og þjónustu og einu stæði á hverja 100 m2 í atvinnuhúsnæði, geymslu - og kjallararými. Reikna skal með 1,2 stæðum á hverja íbúð með gestastæðum. Miðað við 2,5 íbúa á íbúð er áætlað að á svæðinu verði um 1.250 íbúar.
Á fundi skipulagsráðs 5. júlí 2021 voru lagðar fram athugasemdir, ábendingar og umsagnir sem bárust á kynningartíma og var málinu vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Í breyttu erindi dags. 19. apríl 2021 og breytt 16. ágúst 2021 er komið að hluta til móts við innsendar athugasemdir sem bárust á kynningartíma sbr. eftirtalin atriði:
Texta um vöktun á loftgæðum og spennistöðvar hefur verið breytt í greinargerð sem og texta um að gert verið minnisblað um vind og áhrif hans á hús sem hærri eru en 9 hæðir bætt inn í greinargerð. Auk þess hefur á skipulagsuppdrætti tengistöð verið komið fyrir við norðurlóðamörk húsagötu D nr. 4 og veghelgunarmörk gerð sýnilegri.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 16. ágúst 2021 um athugasemdir sem bárust á kynningartíma. Uppdráttur í mkv. 1:1000 sem inniheldur greinargerð og skýringarmyndir. Skipulagsskilmálar dags. 19. apríl og breytt 16. ágúst 2021. Skýringahefti B dags. 19. apríl 2021. Með tillögunni fylgir einnig minnisblað verkfræðistofunnar Mannvits um forsendur fyrir bílaumferð dags. 15. apríl 2021, umhverfismat og hljóðskýrsla dags. 19. apríl 2021 og skýrsla um áhrif nýs deiliskipulags Glaðheima á Heimsmarkmiðin dags. 29. 3 2021 en í þeirri sömu skýrslu er að finna umhverfismat Mannvit dags. 19. apríl 2021. Áhættumat vegna loftslagsbreytinga dags. 30. apríl 2021 frá verkfræðistofunni Mannviti. Skýrsla Mannvits um hljóðvist og áhrif mótvægisaðgerða dags. 7. maí 2021 og að lokum rýni á deiliskipulagstillögu á Glaðheimasvæði II.
Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 19. ágúst sl.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.1810809 - Persónuverndarsamþykkt Kópavogs

Frá lögfræðideild, dags. 8. október 2021, lögð fram til samþykktar uppfærð persónuverndarsamþykkt.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.2109219 - Skjalastefna Kópavogsbæjar

Frá skjalastjóra dags. 11. október 2021, lögð fram til samþykktar skjalastefna Kópavogsbæjar 2021-2025.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

6.2109683 - Fundir nefnda og ráða

Frá forsætisefnd, dags. 7. október 2021, vísað áfram umsögn lögfræðideildar varðandi þóknanir fyrir fundi nefnda og ráða hjá Kópavogsbæ.
Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

7.2101252 - Hamraborg 6. Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 7. október 2021, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Tónlistarskóla Kópavogs, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 7.326.988,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að upphæð kr. 7.326.988,-

Ýmis erindi

8.2109922 - Gullsmári 9. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 29. september, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Félags eldri borgara í Kopavogi, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 242.109,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að upphæð kr. 242.109,-

Ýmis erindi

9.2110251 - Styrkbeiðni frá skólasöfnum í Kópavogi vegna Barnabókamessu

Frá forstöðumönnum skólasafna grunnskóla í Kópavogi, dags. 8. október 2021, lögð fram umsókn um styrk til bókakaupa.
Bæjarráð samþykkir með fimm atvæðum að vísa málinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.

Ýmis erindi

10.2110193 - Styrkbeiðni til bæjarráðs vegna gerð heimildarmyndar

Frá Marteini Sigurgeirsyni dags. 7. október 2021, lögð fram beiðni um styrk til gerðar heimildarmyndarinnar Bræðurnir frá Kópavogsbúinu.
Bæjarráð hafnar erindinu með vísan til þess að lista og menningarráð hefur þegar styrkt verkefnið um kr. 300.000,-

Ýmis erindi

11.2110297 - Styrkbeiðni frá Fjölskylduhjálp Íslands

Frá Fjölskylduhjálp Íslands, dags. 30. september, lögð fram beiðni um styrk að upphæð kr. 7.000.000,-
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að styrkja Fjölskylduhjálp Íslands um kr. 150.000,-

Ýmis erindi

12.2110295 - Breyting á reglugerð 1212-2015 vegna reikningskil sveitarfélaga

Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dags. 12. október 2021, lagt fram erindi varðandi breytingu á reglugerð 1212-2015 vegna reikningskil sveitarfélaga.
Lagt fram.

Ýmis erindi

13.2110133 - Starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar 2022

Frá SSH, dags. 5. október 2021, lögð fram til afgreiðslu Starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar 2022.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar 2022.

Fundargerð

14.2110006F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 327. fundur frá 07.10.2021

Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

15.2110007F - Velferðarráð - 91. fundur frá 11.10.2021

Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16.2110285 - Fundargerð 529. fundar stjórnar SSH frá 04.10.2021

Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

17.2110292 - Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðasvæðunum frá 13.09.2021

Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

18.2110287 - Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðasvæðunum frá 17.09.2021

Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

19.2110231 - Fundargerð 33. eigendafundar stjórnar Strætó frá 04.10.2021

Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

20.2110322 - Fundargerð 394. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 06.10.2021

Fundargerð í níu liðum.
Lagt fram.
Fylgiskjöl:

Fundi slitið - kl. 10:01.